Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 6
SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Borgarstjóri hefur borið það upp við sóttvarnalækni hvort grípa eigi til götulokana í Reykjavík til að tryggja nálægðarreglu almannavarna. Í samtali við Morgunblaðið segist Þór- ólfur Guðnason sóttvarnalæknir ekki hafa skoðun á því hvort loka eigi fyr- ir bílaumferð í miðbænum eða ekki. „Við höfum ekki sérstaka skoðun á því hvernig menn útfæra þær tillög- ur sem við komum með,“ segir hann og bætir við: „Ef menn vilja loka göt- um, þá er það bara þeirra mál.“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins og Miðflokksins hafa stigið fram í samtölum við Morgunblaðið og sagt borgarstjóra vera að nýta sér kór- ónuveiruna í pólitískum tilgangi til að loka fyrir bílaumferð um fleiri götur. Undir þetta sjónarmið tekur einnig Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins. „Að mínu mati er bara verið að nýta sér ástandið og nota það sem yfirskin. Það að hafa spurt sótt- varnalækni sýnir að verið er að reyna að finna fólk sem almenningur treystir til að koma með svör um götulokanir eða ekki,“ segir Kolbrún og bætir við að fjölmargir íbúar og rekstraraðilar séu mjög ósáttir við götulokanir meirihlutans í miðbæn- um. „Það er alveg ljóst að þessar ákvarðanir hafa gengið gegn vilja mjög margra. Ég skil bara ekki af hverju menn geta ekki endurskoðað meirihlutasáttmála sinn í ljósi þess að rekstur hefur hrunið. Það þarf ekki annað en að ganga þarna um og sjá öll auðu plássin,“ segir Kolbrún. Segir þetta ekki tengjast pólitík Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir það af og frá að verið sé að nýta sér kórónuveiru í pólitískum tilgangi. Engin ákvörðun hafi verið tekin um frekari lokanir. „Við erum fyrst og fremst að hugsa um til hvaða aðgerða hægt sé að grípa vegna Covid-19,“ segir Líf og bætir við að áfram verði farið eftir meirihlutasáttmálanum sem kveður meðal annars á um að Laugavegur verði göngugata allt árið. Þá segir Líf það vera mjög frum- lega túlkun að halda því fram að borgarstjóri sé með einhverju móti að draga almannavarnir inn í kosn- ingaloforð Samfylkingarinnar, líkt og borgarfulltrúi Miðflokksins sagði nýverið í Morg- unblaðinu. „Þetta er afar langsótt og ekk- ert annað en rakalaus della. Að búa til borg fyrir gangandi vegfar- endur er ekki einkamál Sam- fylkingarinnar. Þetta eru bara út- úrsnúningar,“ segir Líf og ítrekar að engin vinna sé hafin við nýjar götu- lokanir í miðbænum. Nánar má lesa um þetta mál á mbl.is í vefútgáfu Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Miðbær Nýleg ummæli borgarstjóra um hugsanlegar götulokanir vöktu hörð viðbrögð hjá borgarfulltrúum minnihlutans og kaupmönnum. Engin ákvörðun tek- in um frekari lokanir  Sóttvarnalæknir hefur ekki skoðun á götulokun í miðbæ Líf Magneudóttir Þórólfur Guðnason Kolbrún Baldursdóttir 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Raforkunotkun landsmanna minnk- aði á síðasta ári. Er það óvenjulegt því aukning hefur verið flest ár hing- að til. Formaður raforkuhóps orku- spárnefndar segir að aðstæður á árinu skýri samdráttinn að mestu leyti. Raforkuvinnsla í landinu nam sam- tals 19.489 gígavattstundum á árinu 2019 og minnkaði um 341 GWst eða um 1,7% frá árinu á undan. Sam- drátturinn varð bæði í almennri notk- un og hjá stórnotendum. Raforku- notkun hefur aukist ár frá ári en þó er ekki langt síðan ár komu með sam- drætti. Nefna má árið 2016 en þá varð mikill samdráttur í loðnuvinnslu. Þá varð samdráttur á árunum 2009 og 2010 vegna samdráttar í hagkerf- inu í kjölfar bankahrunsins. Fram kemur í yfirliti raforkuhóps orkuspárnefndar að raforkunotkun stórnotenda minnkaði mest við ál- framleiðslu. Meginástæða þess var rekstrarvandamál hjá álverinu í Straumsvík. Eins og fram kom á þeim tíma þurfti að hætta framleiðslu í einum kerskála vegna vandamála um mitt ár. Einnig varð samdráttur hjá öðrum stórnotendum en á móti jókst raforkunotkun gagnavera. Hlýtt ár olli því að minna þurfti af rafmagni til að hita húsakynni hjá þeim sem notast við rafkyndingu. Loðnubrestur síðasta árs veldur verulegri minnkun á raforkunotkun fiskimjölsverksmiðja sem er orku- frekasta almenna iðnaðarstarfsemi hér á landi. Ekki einungis nota bræðslurnar mikla orku heldur er einnig mikil orka notuð við frystingu loðnuafurða. Hagvöxtur var á síðasta ári minni en árin áður og kom það fram í raf- orkunotkun. Þá hefur smáiðnaður átt í erfiðri samkeppni við innflutning. Á undanförnum árum hefur orðið mikil breyting á orkuþörf til lýsingar og heimilistæki orðið orkugrennri. Því hefur orkunotkun heimila farið minnkandi. Rafbílavæðing með hleðslu á heimilum hefur ekki komið neitt að ráði á móti. Að litlu leyti vegna þróunar Sverrir Jan Norðfjörð, fram- kvæmdastjóri hjá Landsneti og for- maður raforkuhóps orkuspárnefndar, segir að meginhluta samdráttarins megi rekja til aðstæðna á síðasta ári en ekki þróunar til lengri tíma. Það er helst að tæknibreytingar sem leiða til orkusparnaðar, bætt lýsing og það að fólk fari betur með orkuna geti orðið viðvarandi og leitt til minni orkunotk- unar á mann í framtíðinni. Eigi að síð- ur gefi þróunin í ár ekki tilefni til sér- stakra aðgerða. Minni notkun vegna hlýinda og loðnubrests  Raforkunotkun minnkaði nokkuð á síðasta ári  Ýmsir þættir hafa áhrif Morgunblaðið/Hari Nauthólsvík Raforkunotkun minnkaði vegna hlýinda í fyrra. Skannaðu kóðann til að lesa meira um þetta á mbl.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er vitað að eftir hamfarir og áföll þá gerist eitthvað í kjölfarið. Við erum að búa okkur undir það að geta tekið á móti öllum sem þurfa á okkur að halda,“ segir Kristín Ólafs- dóttir, framkvæmdastjóri Píeta sam- takanna. Tvö ár eru liðin síðan Píeta sam- tökin hófu starfsemi sína en þau sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvíg- um og sjálfsskaða auk þess að styðja við aðstandendur. Kristín segir í samtali við Morgunblaðið að augljóst sé að andlegt ástand þjóðarinnar hafi liðið fyrir þær aðstæður sem skapast hafi af völdum kórónuveiru- faraldursins. „Við fundum fyrir því fyrstu tvær vikurnar í faraldrinum að þá voru allir hræddir og þá var ekki mikið að gera hjá okkur. En svo hefur þetta verið að aukast mjög þétt hjá okkur. Við vorum með sím- ann opinn allan sólarhringinn um páskahelgina og fundum þá augljósa þörf fyrir aukna þjónustu.“ Hún segir að það sé eðli sjálfsvígs- hugsana að þær fari ekki mann- greinarálit, þó vissir áhættuþættir séu þekktir, og því leiti fjölbreyttur hópur fólks til samtakanna. „En við finnum núna fyrir töluverðri aukningu í sím- tölum frá að- standendum fólks sem er með sjálfsvígshugsan- ir. Það eru margir sem hringja og vilja vita hvað þeir eigi að gera og hvað þeir geti gert. Það er enda örugglega svakalegt álag að búa með manneskju sem langar ekki að vera til.“ Kristín segir að til að mæta þess- ari auknu þörf ætli Píeta samtökin að bjóða upp á 24 tíma símaþjónustu. „Við höfum bara haft opið milli kl. 9 og 16 en það breytist vonandi um miðjan maí auk þess sem fagteymi okkar eru að þróa nýja hópa. Til þessa hefur 1717 sinnt símsvörun á næturnar og starfsfólk þar finnur einnig fyrir aukningu í sjálfsvígs- stímtölum. Þau vísa á okkur og von- andi getum við sinnt þessum hóp betur. Það er mikið að gerast og margt að breytast og við viljum vera til staðar þegar fólk óskar eftir hjálp.“ Auka þjónustu vegna veirunnar  Æ fleiri aðstandendur leita nú ráða Kristín Ólafsdóttir Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: Mán-fös: 12-18. Lau: 12-15. Alltaf opið í netverslun. VELKOMIN í NÝJA NETVERSLUN FRÍ HEIMSENDING! www.spennandi-fashion.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.