Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 46
46 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 30. apríl 1967 Ármann J. Lárusson vinnur Grettisbeltið eina ferðina enn eftir að hafa lagt alla andstæðinga sína að velli í Ís- landsglímunni á Hálogalandi í Reykjavík. Þetta er hans fjórtándi sigur í röð og sá fimmtándi á sextán árum. Um leið var þetta síðasti sigur Ár- manns sem er sigursælasti glímumaður Íslandssögunnar. 30. apríl 1980 Haukar fagna sínum fyrsta bikarmeistaratitli í karla- flokki í handknattleik þegar þeir sigra KR-inga í hörku- spennandi úrslitaleik í Laugardalshöllinni, 22:20. Andrés Kristjánsson fyrirliði tekur við bikarnum í leikslok en markahæstir Haukanna eru Árni Hermannsson og Ingimar Haraldsson með 5 mörk hvor. 30. apríl 2000 Kvennalandslið Íslands í körfuknattleik sigrar Lúxem- borg, 66:47, á alþjóðlegu móti í Lúxemborg og er komið með fjögur stig eftir að hafa unnið Noreg líka í fyrsta leiknum. Kristín Jónsdóttir skorar 21 stig og Anna María Sveins- dóttir, sem leikur sinn 50. landsleik, fyrst íslenskra körfuboltakvenna, skorar 19 stig. Ísland vann síðan mótið þrátt fyrir tap í lokaleiknum. 30. apríl 2005 Eiður Smári Guðjohnsen er enskur meistari í knattspyrnu með Chelsea sem vinnur sinn fyrsta meistaratitil í 50 ár, á fyrsta ári sínu undir stjórn José Mourinho. Chelsea vinn- ur Bolton, 2:0, á útivelli og er með 14 stiga forskot þegar þrír leikir eru eftir. Eiður end- ar sem næstmarkahæsti leik- maður liðsins með 12 mörk í úrvalsdeildinni. 30. apríl 2005 Magdeburg sigrar Essen á sannfærandi hátt, 30:22, í fyrri úrslitaleik þýsku Íslend- ingaliðanna um EHF- Evrópubikarinn í handknatt- leik. Sigfús Sigurðsson skorar tvö mörk fyrir Magdeburg, undir stjórn Alfreðs Gísla- sonar, en Arnór Atlason missir af leiknum vegna meiðsla. Guðjón Valur Sigurðsson skorar fyrir Essen sem á seinni leikinn eftir. 30. apríl 2006 Ólafur Stefánsson á stórleik með Ciudad Real þegar liðið tryggir sér Evr- ópumeistaratit- ilinn í hand- knattleik með því að vinna Portland San Antonio, 37:28, í seinni úrslita- leik spænsku liðanna. Ólafur skorar 7 mörk í leiknum og leggur fjölmörg upp fyrir samherja sína. Á ÞESSUM DEGI GUÐJÓN VALUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Þau tímamót urðu í íslensku íþrótta- lífi í gær að fyrirliði landsliðsins í handknattleik, Guðjón Valur Sigurðs- son, tilkynnti á Instagram að hann væri hættur handknattleiksiðkun. Síðasta verk Guðjóns á löngum og glæsilegum ferli var að vinna Frakk- landsmeistaratitil með stórliðinu Par- is St. Germain. Þegar kappinn lét nú staðar numið, á fertugasta og fyrsta aldursári, var hann enn að spila með og á móti bestu leikmönnum í heimi. Hvort heldur sem var í Meistaradeild Evrópu eða með íslenska landsliðinu. Þegar íþróttamaður í þessum gæðaflokki lætur staðar numið er það frétt víðar en á Íslandi. Fjölmiðlarnir L’Equipe í Frakklandi, Marca á Spáni, Handball-World í Þýskalandi og TV2 í Danmörku birtu til að mynda frétt um ákvörðun Guðjóns í gær. Áhugaverðar áskoranir Þegar Morgunblaðið hafði sam- band við Guðjón í gær sagðist hann vera ánægður með ákvörðunina. Hann hefði haft nægan tíma til að velta þessu fyrir sér í ljósi þeirra að- stæðna sem eru uppi vegna kórónu- veirunnar. Guðjón lék síðast fyrir franska stórliðið Paris Saint Germain í mars en fyrr í þessum mánuði var ákveðið að liðið væri franskur meist- ari 2020. Átján umferðum af tuttugu og sex tókst að ljúka áður en samko- mubann var sett á í Frakklandi og víðar. Guðjón segist af og til hafa velt því fyrir sér að hætta allt frá því að samningur hans við stórlið Barcelona var að renna út árið 2016 en árið 2015 vann Guðjón Meistaradeildina með Barcelona. „Já já, ég hafði fyrst velt því fyrir mér þegar ég hætti hjá Barcelona að það væri kannski ekki mikið eftir hjá mér í þessu. En svo lengdist í þessu hjá Rhein-Neckar Löwen. Þegar maður er íþróttamaður þá veit maður að ferillinn tekur einhvern tíma enda. Ég vissi alltaf að ég gæti hætt þegar mig langaði til en ég hef yfirleitt feng- ið tilboð sem hafa kitlað eða góð lið hafa sýnt mér áhuga. Þegar manni bauðst að spila í hæsta gæðaflokki þá ýtti það undir löngunina að halda áfram. Maður hefur fengið að spila með mörgum af bestu hand- boltamönnum í heimi og mörgum af bestu liðunum. Áskoranirnar hafa því verið áhugaverðar. Ég átti alveg eins von á því að þetta gæti orðið síðasta tímabilið hjá mér. En þegar maður fer á stórmót þá er maður hátt uppi og á slíkum tíma- punkti er maður til í að gera þetta í fjörutíu ár í viðbót. En eins og staðan er núna í heiminum þá veit maður ekkert hvenær boltinn fer aftur af stað. Ég ákvað því bara að rýma mín- ar stöður, segja þetta gott og vera bara nokkuð ánægður með það,“ sagði Guðjón. Spurður um hvort hann sjái fyrir sér að vera viðloðandi íþróttirnar með einhverjum hætti segist Guðjón ekki sjá fyrir sér að hann geti svo auðveld- lega sagt skilið við handboltannn eftir öll þessi ár. Þjálfarastarfið er líklegt „Mér finnst nú mjög líklegt að ég fari út í þjálfun og ég á ábyggilega eftir að vera áfram viðloðandi hand- boltann. Ég held að ég sé aðeins of djúpt inni til að klippa alveg á þann streng. Hvenær það nákvæmlega gerist er ekki alveg komið á hreint. Það er ýmislegt sem ég er að skoða. Ég viðurkenni það alveg. Við eigum eftir að sjá hvenær íþróttirnar fara af stað aftur og í hvaða formi. Þá kemur betur í ljós hvaða áhugaverðu kostir verða í stöðunni. En ég get alveg svarað þessu játandi að ég býst fast- lega við því að vera áfram viðloðandi handboltann,“ útskýrði Guðjón en á honum má skilja að hefðu aðstæður verið aðrar þá hefði hann mögulega spilað hér heima. „Já já, ég hugleiddi það alveg. En eins og aðstæður eru núna þá er spurning hvort maður myndi nenna að koma sér aftur á þann stað sem maður vill vera á sem leikmaður. Ég ákvað því bara að nota tímann og kalla þetta gott. Ég geng sáttur frá borði og hef haft nægan tíma núna til að hugsa málið.“ Kynslóðaskiptin í íslenska landslið- Hraðaupphlaupin verða ekki fleiri  Einn sigursælasti íþróttamaður þjóðarinnar lætur staðar numið eftir aldarfjórðung í meistaraflokki EPA Evrópumeistari Guðjón Valur Sigurðsson skorar í leik með Barcelona í Meistaradeild Evrópu en hann vann keppnina með liðinu árið 2015. BELGÍA Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Stórskrítið er fyrsta orðið sem kem- ur upp í huga Ara Freys Skúlason- ar, landsliðsmann Íslands í knatt- spyrnu og leikmanns Oostende í belgísku A-deildinni, þegar hann er spurður út í ástandið í belgíska fót- boltanum þessa dagana. Þann 2. apríl síðastliðinn greindu fjölmiðlar í Belgíu frá því að ákveðið hefði verið að aflýsa tímabilinu þar í landi og krýna Club Brugge meist- ara. Club Brugge var með fimmtán stiga forskot fyrir lokaumferð deild- arkeppninnar og þá var einnig greint frá því að ekkert lið myndi falla úr deildinni. Félögin í deildinni áttu svo að kjósa um þá ákvörðun að fresta tímabilinu um miðjan apríl en þeirri kosningu var frestað til 24. apríl. Henni var svo aftur frestað á dög- unum og er nú stefnt að því að kjósa um örlög tímabilsins í efstu deild Belgíu hinn 4. maí næstkomandi. „Þetta er stórskrítið allt saman,“ sagði Ari Freyr í samtali við Morg- unblaðið í gær. „Það er enn og aftur búið að fresta fundinum þar sem kosningin átti að fara fram um framtíð keppnistímabilsins. For- ráðamenn deildarinnar hafa verið að bíða eftir skýrum svörum frá stjórn- völdum um það hvað sé best að gera því það þurfa auðvitað að vera ein- hverjar reglur eða tilmæli sem hægt er að fylgja. Þessi fundur félaganna mun fara fram 4. maí, sama dag og einhverjar tilslakanir á tilmælum stjórnvalda munu eiga sér stað, og þá verða reglurnar um framhaldið vonandi skýrari. Eins og staðan er í dag þá er bara gríðarlega mikil óvissa í kringum fótboltann hérna og fram- tíð deildarinnar.“ Sjálfskipuð sóttkví Síðast var spilað í belgísku A- deildinni 7. mars síðastliðinn en Ari Freyr og fjölskylda hans hafa verið í sjálfskipaðri sóttkví síðan 13. mars. Landsliðsmaðurinn fer því lít- ið út úr húsi nema til þess að sækja allra helstu nauðsynjavörur. „Við fjölskyldan erum búin að vera í sjálfskipaðri sóttkví síðan 13. mars og ég er sá eini sem fer út í búð eða apótek, ef þess þarf. Það er ekki beint eitthvert samkomubann í Belgíu en það er mælst til þess að fólk haldi sig heima. Einu búðirnar sem eru opnar eru matvöruversl- anir og apótek. Það er mælst til þess að það séu alltaf tveir metrar á milli manna hér og fólk virðir það. Börnin mín hafa ekki farið í skól- ann síðan 13. mars og ég og konan mín erum því bara búin að vera að kenna þeim hérna heima. Það hefur aðeins verið í umræðunni hérna hvenær skólahald hefst á nýjan leik en ennþá hefur ekkert skýrt svar borist sem er pirrandi. Við fullorðna fólkið þraukum en það er erfiðara fyrir krakkana að mega varla fara út úr húsi og hitta vini sína.“ Æfir með börnunum Oostende er í fimmtánda og næst- neðsta sæti deildarinnar með 22 stig þegar ein umferð er eftir af deildar- keppninni, tveimur stigum frá fall- sæti. Ari hefur ekki heimsótt æf- ingasvæði liðsins síðan í byrjun mars og ítrekar að hann sé heppinn að geta æft heima hjá sér. „Við fengum æfingaáætlun frá fé- laginu til að byrja með en svo eftir að þessum fundum var frestað trekk í trekk varð þetta heldur óljóst. Þetta voru mestmegnis þolæfingar í bland við styrktaræfingar. Ég hepp- inn að því leytinu til að ég er með æfingasal heima hjá mér sem nýtist vel núna. Liðsfélagar mínir sem eru staddir í Oostende hafa aðeins verið að æfa og þá bara tveir og tveir á heilum velli. Það er þá mest verið að æfa sendingar og annað í þeim dúr. Þar sem ég bý aðeins frá bænum er ég ekki að leggja það á mig að keyra á milli, bara til þess að sparka í bolta, þegar ég get gert það með börn- unum mínum í garðinum heima. Ég get alveg viðurkennt það fús- lega að það tekur virkilega á haus- inn á manni að hvetja sig áfram þegar maður veit í raun ekkert hve- nær maður er að fara að æfa eða spila með félögunum. Ég er hins vegar búinn að vera mjög duglegur þótt ég segi sjálfur frá og ég læt börnin hjóla mikið á meðan ég hleyp með.“ Innihaldslausar hótanir Ari Freyr viðurkennir að það sé pirrandi hversu langan tíma það hefur tekið að fá skýr svör frá knattspyrnuyfirvöldum í Belgíu um framtíð tímabilsins. Þá hefur UEFA hótað því að þær deildakeppnir sem ekki verði kláraðar muni missa sæti sín í Evrópukeppnum á næstu leik- tíð en Ari Freyr hefur enga trú á því að það verði raunveruleikinn. „Það er skrítið hvernig staðið hef- ur verið að þessu. Ef það á að slaufa tímabilinu þá skilur maður alveg að Club Brugge verði krýnt meistari. Heppinn að geta æft heima  Stórskrítið ástand í belgíska fótboltanum segir Ari Freyr Skúlason  Fjölskyldan hefur verið í sjálfskipaðri sóttkví frá 13. mars  Æfingasalurinn á heimilinu nýtist vel Hvíta-Rússland Bikarinn, undanúrslit, seinni leikur: BATE Borisov – Slavia Mozyr ............... 2:0  Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður hjá BATE á 78. mínútu.  BATE sigraði 2:1 samanlagt og mætir Dinamo Brest í úrslitaleik. 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.