Morgunblaðið - 30.04.2020, Page 8

Morgunblaðið - 30.04.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Blessuð sólin er nú farin aðminna á sumarið eftir langan og harðan vetur. Hún er alltaf vel- komin en sjaldan sem nú. Ferða- fiðringurinn gerir vart við sig eins og jafnan á þessum árs- tíma, en ekki síst nú eftir ítrekuð ofsa- veður sem fylgt var eftir af kórónuveiru sem lokaði fólk af svo að ætla má að spennan fyrir því að viðra sig og sína hafi magnast sem aldrei fyrr.    Fólk ætti ekki að gera ráð fyrirmiklum ferðalögum til útlanda þetta sumarið og jafnvel ekki það sem eftir lifir árs, þó að um það verði svo sem ekkert fullyrt að svo stöddu. Hið sama á við um þá sem búa erlendis, þeir eru ekki líklegir til að sækja Ísland heim þetta árið og veldur það sem kunnugt er veru- legum áhyggjum.    Stjórnvöld og stofnanir ríkisinsreyna að bregðast við þessu sem eðlilegt er og liður í því er að hvetja Íslendinga til að ferðast inn- anlands.    Það hefur hins vegar vakið furðumargra að Ferðamálastofa ríkisins skuli hafa ákveðið að senda drýgstan hluta þess fjár sem á að hvetja Íslendinga til að ferðast um Ísland til erlendra stórfyrirtækja sem þurfa ekki að lúta sömu reglum og íslenskir miðlar.    Í þessari umræðu hefur líka kom-ið fram að stjórnvöld hafa enga stefnu um það hvernig stofnanir þess auglýsa. Hvernig stendur á því? Er ekki sjálfsögð krafa að ís- lenska ríkið auglýsi í íslenskum miðlum frekar en hjá þeim sem ekkert leggja af mörkum til ís- lensks samfélags? Sérkennilegt stefnuleysi STAKSTEINAR Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar árið 2019 var jákvæð um 655 milljónir króna, sem er 301 milljón króna betri afkoma en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun ársins með viðaukum. Það skýrist fyrst og fremst af auknum útsvarstekjum og fast- eignaskatti, að því er fram kemur í frétt frá bæn- um. Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2019 var lagður fram í bæjarráði þriðjudaginn 14. apríl síðastliðinn og var vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Akraness sem fór fram hinn 28. apríl. Þar kemur fram að skatttekjur voru 282 millj- ónum króna meiri en árið áður. Framlög Jöfn- unarsjóðs lækkuðu um 22 m.kr. frá fyrra ári. Aðr- ar tekjur jukust um 140 milljónir króna á milli ára. Fjármagnsliðir hækka um 81 m.kr. sem skýrist að stærstum hluta af auknum arðgreiðslum af eign- arhlutum og hærri vaxtatekjum af innistæðum í banka. Heildareignir í lok árs námu samtals 15.038 milljónum króna og jukust um 846 milljónir milli ára. Helstu framkvæmdir í fyrra voru þjón- ustumiðstöð aldraðra, 303 milljónir, og fimleika- hús, 281 milljón. sisi@mbl.is Hagnaður hjá Akraneskaupstað  Afkoman 301 milljón betri en ráð var fyrir gert Akranes Vitarnir tveir njóta sín í fallegri birtunni. Eimskip fékk í gærmorgun afhent nýtt skip, Dettifoss, sem er annað tveggja 2.150 gámaeininga skipa sem fyrirtækið hefur verið með í smíðum í Kína. Gert er ráð fyrir að hitt skipið, Brúarfoss, verði afhent undir lok þriðja ársfjórðungs. Starfsmenn Eimskips hafa verið í Kína til að vinna að móttöku Detti- foss. Þurftu sumir þeirra að vera í 14 daga sóttkví vegna COVID-19- veirunnar. Áformað er að skipið hefji siglinguna frá Kína til Íslands snemma í maí og er gert ráð fyrir að hún muni taka um 40 daga. Skip- ið mun sigla frá Guangzhou til Tai- cang í Kína þar sem farmur verður lestaður til Evrópu. Þegar komið er til Danmerkur fer Dettifoss inn í siglingaáætlun félagsins. Áætlað er að skipið komi til Íslands í fyrsta sinn seinnihluta júnímánaðar. Á myndinni, sem tekin var í gær- morgun, eru Bragi Björgvinsson skipstjóri, Jóhann Steinar Stein- arsson, forstöðumaður skiparekstr- ar Eimskips, og Gunnar Stein- grímsson vélstjóri ásamt fulltrúum skipasmíðastöðvarinnar í Kína. sisi@mbl.is Siglingin heim tekur 40 daga Ljósmynd/Eimskip Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Gerið verðsamanburð Full búð af nýjum og fallegum vörum Sendum frítt um allt land Pantanir í síma 588 4499 Tökum líka pantanir á FB 5.990 kr. Túnika Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.