Morgunblaðið - 30.04.2020, Side 14

Morgunblaðið - 30.04.2020, Side 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Eftir nokkuð harðan vetur,sem einkenndist af válynd-um veðrum og farsótt, sjást fyrstu teikn um vorið. Á þessum tíma vaknar gróður eftir vetrardvala og því fylgir óhjá- kvæmilega aukning á frjókornum sem allt að þriðjungur þjóðarinnar hefur óþægindi af og eru grasfrjó þar langtum algengust. (1) Einkenni ofnæmis eru marg- vísleg og mismikil á milli fólks. Al- gengust eru nefstíflur og nef- rennsli, tárarennsli, kláði í augum og hnerri. Að auki eru astma- einkenni, hósti og mæði, ekki óal- geng. (1, 2) Hvað er til ráða? Frjókornatíminn hérlendis er breytilegur frá ári til árs. Ein- kenni birkiofnæmis koma yfirleitt fram í maí-júní, en grasfrjó byrja oftast að berast í loftið um miðjan júní og fram í ágúst. (1) Besta meðferðin við frjóofnæmi verður að teljast sú að forðast of- næmisvakann. (1, 2) Nú hefur þjóðin samviskusamlega haldið sig heima síðustu vikurnar og bíður spennt eftir þurrum og heitum blíðviðrisdögum, en það eru dag- arnir þar sem magn frjókorna er hvað mest. Ýmislegt er hægt að hafa í huga til að lágmarka einkenni: Eftir góðviðrisdaga í grasinu geta frjó- kornin sest á fötin, húðina og hár- ið, því getur verið gott að fara í sturtu áður en lagst er til hvílu. Að hafa dyr og glugga lokuð getur reynst hjálplegt og saltvatns- dropar í nef og augu hafa sannað gildi sitt. (2) Mörg lyf eru til við einkennum frjóofnæmis og í mörgum til- fellum er hægt að tryggja góða líðan með réttri notkun þeirra. Innan heilsugæslunnar starfar fagfólk sem veitir ráð um ábend- ingar og notkun. Hægt er að hafa samband í síma 1700 eða í gegnum vefinn www.heilsuvera- .is. Eins má hafa beint samband við sína heilsugæslu. Auk þess hafa astma- og ofnæmissamtökin gefið út greinargóðan bækling; Frjóofnæmi, sem er aðgengilegur á vef Samtakanna www.ao.is  Ofnæmistöflur: Við ofnæmi verður mikil losun á efninu hista- míni í líkamanum sem veldur m.a. kláða, nefrennsli og hnerra. Of- næmistöflur eru svokölluð and- histamínlyf og miða að því að hefta virkni histamíns og draga þannig úr einkennum. (2) Margs- konar tegundir eru á markaði, bæði með lyfseðli og í lausasölu.  Nefúðar: Staðbundnir stera- nefúðar eru góð meðferð við nef- stíflum.(2) Hafa ber í huga að verkun þeirra byggist upp á nokkrum dögum og meðferðin krefst daglegrar notkunar. Til að fá sem besta verkun er gott að byrja notkun um tveimur vikum áður en líklegast er að einkenni geri vart við sig, t.d. í byrjun júní við grasfrjóofnæmi og ennþá fyrr við birkifrjóofnæmi. (2) Til við- bótar við steranefúða má nota and-histamínnefúða, en varast skyldi mikla notkun nefúða sem herpa saman æðar í nefi og draga þannig hratt úr nefstíflum. Til langs tíma geta þeir valdið viðvar- andi bjúg í nefslímhúð. (1)  Augndropar: Innihalda and- histamín og eru hjálplegir við tárarennsli og kláða í augum. Þeir eru oftast notaðir eftir þörfum en má nota daglega.  Steratöflur og -sprautur gegn ofnæmi: Gagnast vissum ein- staklingum, þegar önnur með- ferð er fullreynd og að vel at- huguðu máli. Hafa ber í huga að sterar á þessu formi dreifast um allan líkamann og hafa fjölþætt- ar aukaverkanir s.s. beinþynn- ingu, bælingu á ónæmiskerfi og þar með aukna hættu á sýk- ingum auk fleira. (3) Því skal gæta varúðar við notkun þeirra.  Frjóofnæmi telst ekki vera alvarlegur sjúkdómur en getur valdið mikilli vanlíðan þegar ein- kenni eru mikil. Með réttri með- ferð er hægt að halda einkenn- um í skefjum og einstaklingar með frjóofnæmi geta þannig not- ið blíðviðrisdaganna í sumar, sem allir eiga svo sannarlega skilið. 1) Sigurveig Þ. Sigurðardóttir og Björn Árdal. 2014. Frjó- ofnæmi. Bæklingur gefinn út af GlaxoSmithKleine 2) DeShazo, Richard og Kemp, Stephen. 2020, 10. apríl. Pharmacotherapy of allergic rhi- nitis. Vefslóð: www.uptodate.com 3) Saag, Kenneth G og Furst, Daniel E. 2020. 21. febrúar. Major side-effects of systemic glucocorticoids. Vefslóð: www.uptodate.com Nokkur ráð við frjóofnæmi Gróandi Baldursbrá og sóley eru skínandi falleg blóm og veita mörgum gleði, enda þótt gróandinn geti valdið mörgum óþægindum með ofnæmi. Unnið í samstarfi við Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. Heilsuráð Ragna Sif Árnadóttir sérnámslæknir í heimilis- lækningum, Heilsugæslunni Sólvangi í Hafnarfirði Morgunblaðið/Sigurður Bogi „Ég er svo heppin að eiga fimm barnabörn sem gera mikið af því að teikna þeg- ar þau eru í heimsókn hjá mér og myndir þeirra gleðja mig sannarlega. Það er hluti af því að ég fékk þá hugmynd að leyfa eldra fólki á þessum covid- tímum að njóta þeirra mynda sem börn þessa lands teikna heima, nú eða í leik- skólum og grunnskólum,“ segir Sara Magnúsdóttir sem er hugmyndasmið- urinn á bak við verkefni sem fer af stað í dag og heitir Knús í kassa, en það gengur út á að hvetja krakka til að teikna fyrir vistmenn á hjúkrunarheim- ilum, koma teikningunum í ákveðna kassa sem svo verður dreift til dval- arheimila. „Ég var í mínum daglega göngutúr þegar ég datt niður á þessa hugmynd. Ég var eitthvað að hugsa um eldri kyn- slóðina og ástandið núna, hvernig hægt væri að gleðja heimilisfólk á hjúkrunarheimilum sem hefur átt erf- iða daga undanfarnar vikur. Þetta er samfélagsverkefni, að fá börn á leik- og grunnskólaaldri til að senda smá knús til heimilismanna á hjúkrunar- heimilum landsins í formi teikninga. Þannig geta þau látið gott af sér leiða og margir glaðst sem njóta,“ segir Sara og bætir við að heilmikil undirbúnings- vinna sé að baki við að fá fólk til liðs við verkefnið. „Bókabúðirnar Penninn/ Eymundsson ætla að taka þátt og verða kassar í öll- um verslunum þeirra merktir verkefn- inu. Börn landsins geta því komið sín- um teikningum í næstu verslun þeirra. Ég leitaði til Péturs, forstjóra á Hrafnistu, um hvort það gæti gengið upp að starfsfólk heimilanna tæki að sér að hengja upp myndirnar í sam- eiginlegum rýmum eða göngum á hverjum stað. Allir tóku vel í það. Ég hef fengið lista yfir 40 hjúkrunarheim- ili á landinu sem verður boðið að fá svona kassa til sín. Ég talaði líka við Víði okkar Reynisson, því þetta snertir sóttvarnamál. Honum fannst þetta æð- islegt,“ segir Sara og bætir við að átakið muni standa frá og með degin- um í dag, 30. apríl, til og með 10. maí. Að því loknu verður kössunum safnað saman og myndunum dreift til hjúkr- unarheimila. khk@mbl.is Knús í kassa verður sent til vistmanna á hjúkrunarheimilum Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson Glæsilegur hópur Sara ásamt manni sínum Skafta og barnabörnunum síteikn- andi. F.v. Mikael, Felix, Emilía í fangi ömmu, Benedikt og Róbert í fangi afa. Langaði að gera eitthvað til að gleðja eldri kynslóðina Öryggisíbúðir Eirar til langtíma leigu Grafarvogi Reykjavík Eir öryggisíbúðir ehf. Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.  522 5700 milli 8:00 og 16:00 virka daga. Nánari upplýsingar í síma 522 5700 virka daga milli kl. 8 og 16 eða sendið fyrirspurn á netfangið sveinn@eir.is Nokkrar tveggja og þriggja herbergja vandaðar öryggisíbúðir Eirar til leigu í Grafarvogi, Reykjavík. Eirborgir, Fróðengi 1—11, 112 Reykjavík. Eirarhús, Hlíðarhúsum 3—5, 112 Reykjavík. • Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti búið lengur heima. • Öryggisvöktun allan sólarhringinn. • Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð. • Góðar gönguleiðir í nágrenninu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.