Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leikur Krakkarnir eru kátir og hlakka allir og alltaf til morgundagsins. Eygja betri tíma Íslenskt samfélag hefur umhverfst. Þúsundir eru án atvinnu og ferðaþjónustan stopp. Stjórnvöld berja í brestina en enginn veit hver útkoman verður. Sjón- armiðin eru mörg enda miklir hagsmunir í húfi. Þrátt fyrir allt eygja viðmælendur Morgunblaðsins betri tíma. Börnin eru framtíðin og vorið og sumarið eru fram undan. sbs@mbl.is „Uppsagnabréfið kom mér ekki á óvart, heldur lít ég á það sem eðlilega ráðstöfun við þessar aðstæður sem við erum komin í,“ segir Matthías Sveinbjörnsson, flug- maður hjá Icelandair og forseti Flugmálafélags Íslands. Hann er nú án avinnu en 431 flugmaður var í hópi um 2.000 starfsmanna Icelandair sem var sagt upp. Matthías á að baki langan feril hjá Icelandair, meðal annars sem forstöðumaður tekjustýringar í nokkur ár. „Uppsagnirnar eru varúðarráðstöfun ef allt fer á versta veg. Hin dökka mynd sem hefur verið dregin upp getur ræst komi stjórnvöld ekki með kröftugar aðgerðir í þágu flugstarfsemi. Í alþjóðlegri samkeppni hefur Ice- landair haft einstaka stöðu sem getur glatast sé ekki rétt á málum haldið. Leiðarkerfi Icelandair er lykillinn og staðsetningin – að við erum hér mitt á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Leiðarkerfið verður ekki skapað á einni nóttu og það verður heldur ekki byggt upp með tak- mörkuðum flugflota annars félags. Leiðarkerfið skapar tengingar og tíðni sem býr til tækifæri,“ segir Matthías og heldur áfram: „Í þeim aðstæðum sem nú skapast, þegar lönd opnast hvert á fætur öðru, má nota margrómaða leiðarkerfið til að leita uppi tengingar sem keppinautar okkar geta ekki gert með sama sveigjanleika. Og þarna er Ísland sjálft lykillinn. Auk víðernis hefur árangursrík meðhöndlun sýkingarinnar hér skapað sérstöðu sem verður frábært að vinna með. Svo felst líka mikill auður í starfsfólkinu, sem vonandi verður endurráðið sem fyrst.“ Morgunblaðið/Eggert Leiðakerfið er lykill til nýrrar sóknar Matthías Hin dökka mynd sem hefur verið dregin upp getur ræst komi stjórnvöld ekki með aðgerðir. „Vandamálin hafa hrannast upp síðustu daga en ég tel að þetta fordæmalausa ástand verði ekki langvarandi,“ segir Daníel Jakobsson, hótelstjóri og formaður bæjar- ráðs Ísafjarðarbæjar „Bæjarsjóður stendur vel; reksturinn á síðasta ári var vel í plús og lán greidd niður svo við höfum borð fyrir báru. Ætlunin er að fara í atvinnuskapandi að- gerðir í sumar eða um leið og búið er að brjóta veiruna á bak aftur. Vissulega finnur bæjarfélagið alveg fyrir samdrætti þegar ferðaþjónustan dettur út að veruleg- um hluta. Í Ísafjarðarhöfn hafa komið rúmlega 100 skemmtiferðaskip á hverju ári og tekjurnar sem þau skila hafnarsjóði eru um ein milljón króna per skip fyr- ir utan það sem farþegarnir skilja eftir í bænum.“ Daníel og fjölskylda hans eiga og reka Hótel Ísa- fjörð, með um 100 gistiherbergjum á nokkrum stöðum í bænum. „Tekjur okkar nú í apríl eru aðeins um 10% af því sem var í sama mánuði í fyrra þegar hér voru skíða- mót, tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður og fleira. Núna gildir að horfa til framtíðar. Íslendingar eru hvattir til að ferðast innanlands í sumar og því verður ferðaþjónustan að finna verð á gistingu og veitingum sem landinn getur sætt sig við. En til framtíðar litið sé ég sóknarfæri, því við sem landið byggjum höfum styrkst sem samfélag á þessum erfiða tíma og baráttan gegn veirunni hefur gengið vel. Kröfur verkalýðsfélag- anna um kauphækkanir einmitt nú þegar fyrirtækin eru að segja upp fólki í stórum stíl eru afar óábyrgar.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kröfur um launa- hækkanir óábyrgar Daníel Höfum styrkst sem samfélag á þessum erfiða tíma og baráttan gegn veirunni hefur gengið vel. „Ástandið er hrikalegt nú eftir upp- sagnir hjá Icelandair,“ segir Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis (VSFK). „Af þeim 2.000 sem nú missa vinnuna hjá flugfélaginu eru um 400 okkar félagsmenn, til dæmis starfsfólk sem sinnir hleðslu og þrifum á flugvélum og svo þau sem starfa í eldhúsi. Við þetta bætist að flestir sem störfuðu hjá WOW air sem fór í þrot í fyrra eru enn án vinnu.“ Um 5.000 manns eru í VSFK og tel- ur formaðurinn að nú sé ríflega helm- ingur þeirra án vinnu, það er á bótum eða vinnutengdum úrræðum sem rík- ið og sveitarfélög bjóða. „Ég hef sér- stakar áhyggjur af því fólki sem er með fötlun eða glímir við fátækt. Einnig útlendingum sem komu hingað til að vinna en eru nú í læstri stöðu og hafa veikt bakland hér. Eiga fáa að. Til þess hóps þarf að horfa sér- staklega. Staðan í atvinnulífinu hér á Suðurnesjum er því óneitanlega mjög dökk. Hér höfum við samt áður verið í vanda, séð það svart en síðan hefur ræst úr. Ég leyfi mér því að vera bjartsýn.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Helmingur félagsmanna er á bótum Guðbjörg Hef áhyggjur af útlend- ingum sem eru hér í læstri stöðu. „Óvissan er verst; að ekki sé vitað hvenær ferðafólk geti komist aftur óhindrað til landsins. Vissulega verður lífið nær eðlilegum gangi frá og með næsta mánudegi, 4. maí, en við eigum langt í land enn. Mik- ilvægt er að gefa út jafn fljótt og verða má upplýsingar sem skýrt geta myndina,“ segir Helgi Kjart- ansson, oddviti Bláskógabyggðar. Í Bláskógabyggð, sem nær yfir Þingvelli, Laugardal og Biskups- tungur, er ferðaþjónustan í aðal- hlutverki. Við eðlilegar aðstæður fara þúsundir ferðamanna þarna í gegn á hverjum degi, sem skapar um 70% starfa í sveitarfélaginu. „Höggið er mikið. Atvinnuleysi hér í sveit er nú komið í 26,6% og slíkar tölur höfum við aldrei séð áður. Ég er þó bjartsýnn fyrir sumarið. Ís- lendingum býðst hér margvísleg af- þreying og fólk sem hér á sumar- hús þarf þjónustu. Margir hér sem eru með ferðatengdan rekstur hafa notað dauða tímann að undanförnu til viðhaldsframkvæmda, vitandi að alltaf rætist úr erfiðri stöðu. Þetta er bara spurning um tíma.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Alltaf mun rætast úr erfiðri stöðu Helgi Höggið er mikið. Atvinnuleysi hér í sveit er nú komið í 26,6%. „Sólin er komin upp,“ segir Ragn- heiður Jóna Ingimarsdóttir, sveit- arstjóri í Húnaþingi vestra. Kór- ónuveiran var aðsópsmikil á því svæði; á tímabili voru 300 manns í sóttkví og 30 veiktust af Covid-19 – fólk sem nú hefur allt náð bata. Mannlífið í sveitinni er líka aftur að komast í eðlilegt horf, svo sem skóla- starf, en bragur margs breytist. „Ferðaþjónustan er í erfiðri stöðu og verður væntanlega næsta árið, skv. spám sem fyrir liggja. Slíkt hef- ur í för með sér samdrátt í útvars- tekjum sveitarfélagsins, svo við þurfum að endurskoða allar okkar áætlanir. Þar við bætist að tilkynnt hefur verið lækkun á framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ráð- stafanir sem ríkisstjórnin hefur kynnt koma mörgum að góðum not- um, þó svo að lítið hafi verið litið til sveitarfélaga ennþá. Ég fagna því að sveitarfélögin fá virðisaukaskatt af vinnu við framkvæmdir endur- greiddan, en það eru ráðstafanir sem nýstast okkur hér í Húnaþingi vestra þar sem verið er að fara í framkvæmdir við grunnskólann.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ráðstafanir sem munu nýtast vel Ragnheiður Jóna Lítið hefur verið litið til sveitarfélaganna ennþá. Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar á sanngjörnu verði og að auki förum við með bílinn þinn í endurskoðun, þér að kostnaðarlausu. www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi HITABLÁSARAR ertu tilbúin í veturinn? Þegar aðeins það besta kemur til greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.