Morgunblaðið - 30.04.2020, Page 34

Morgunblaðið - 30.04.2020, Page 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Ég vil byrja með að þakka Stígamótum, kvennathvörfum, neyðarmóttöku v. nauðgana LSH, Heim- ilisfriði, svo og öllum sem vinna að og hafa unnið að upprætingu of- beldis gegn minni mátt- ar. Nú síðast ríkisstjórn Íslands fyrir að veita 200 milljónir til baráttu gegn ofbeldi sem minni máttar eru beitt. Þú tekur ef til vill eftir því að ég endurtek „minni máttar“? Ég geri það sökum þess að fórnar- lömb ofbeldis eru ekki bara konur, heldur ekki síður börn. Einstöku sinnum karlar. Sértu viðkvæm/ur fyrir orðinu fórnarlamb, þá er það svo að orðið brotaþoli er ekki nógu raunhæft að mínu mati, því ofbeldi gegn minni máttar snýst um líf. Í fréttum á hverjum degi heyrum við um „aukinn gleðskap“ og jafn- framt að heimilisofbeldi hafi aukist. Tilfellin hafi verið svo og svo mörg. Heimilisofbeldi. Punktur. Búið. Afleiðing gleðskap- arins. Og allir jafna sig? Í áranna rás hefur leyndarhjúpur verið um orðið heimilis- ofbeldi. Einkamál fjölskyldunnar, sök skipt niður á heim- ilisfólk. Fræðingar sitja á skrifstofum sínum í öryggi og tjá sig, ráðleggja yfir- völdum, en eru svo allt of oft óralangt frá raunveruleika fórnarlambanna og þolenda að engu tali tekur. Við sem erum í daglegum tengslum við hryllinginn missum á stundum and- litið við að hlusta á fræðingana. Biðst forláts, gæti kallast fræð- ingur sjálf, en ég er að minnsta kosti í hringiðunni og daglegum tengslum við fleiri en eitt fórnar- lamb. Hverjum með nokkurt innsæi dettur í hug árið 2020 að hægt sé að dæma fórnarlömb til sátta við of- beldismenn? Einhver fræðingurinn stendur á bak við þá „snilldarhugmynd“. Nútíma ofbeldi í einkalífi er ekki lengur bundið við heimilin. Þess vegna er orðið heimilisofbeldi orðið að steinaldarorði. Ofbeldið og gerandinn elta þig. Hvar sem þú ert. Það ofbeldi sem áður hét heimilis- ofbeldi má greina í fimm gerðir of- beldis: Líkamlegt, kynferðislegt, andlegt, fjárhagslegt og félagslegt. Ágreiningur er um hvort netofbeldi sé 6. gerð ofbeldis eða skuli teljast hluti af einhverri hinna fimm. Sama gildir um ofbeldi sem framið er í neyslu. Sé einhverri einni tegund þessa ofbeldis eða fleiri beitt yfir lengri tíma er það eltihrelling eða of- sóknir, stalking á heimsmálinu. „Stalking by proxy“ er eltihrelling/ ofsóknir með aðstoð, þá því miður oft með aðstoð yfirvalda. Eltihrelling með aðstoð yfirvalda. Sértu fórnarlamb ofbeldis í nánu sambandi (heimilisofbeldis) ertu hvergi óhult/ur. Það er hægt að ná til þín alls staðar. Tíminn sem þú þarft að þola þetta getur verið ára- tugir. Sífellt, stöðugt, dag og nótt. Lög gengu í gildi í Noregi 1.7. 2016 gegn stölkun/eltihrellingu og tilsvarandi lög í Danmörku 1.1. 2017. Einu sinni hefur verið dæmt eftir þeim lögum í Noregi, þá í fimm ára fangelsi. Mér er ekki kunnugt um að lögin hafi nokkurn tíma verið notuð í Danmörku. Spyrja má: Til hvers var verið að setja lögin? Börnin sem búa við ofbeldið skað- ast óhjákvæmilega. Mikið og oft var- anlega. Að halda öðru fram er stein- aldarhugsun. Það er efni í aðra grein, ef gera á grein fyrir skaðanum sem eltihrell- ing veldur. Börnin fara oft inn í sjálf sig, sektarkennd og reiði eitra sálar- lífið. Allt of mörg hafna í óafturkall- anlegri ógæfu og fremja e.t.v. sjálfs- víg. Foreldrið sem er fórnarlamb missir heilsuna, enda er það mark- mið ofbeldisins (sbr. kennsluefni Juliens Blancs um að „husla“ konur, birt í Mbl. fyrir u.þ.b. áratug). Ég vil benda á ágæta grein Magdalenu Ásgeirsdóttur læknis í Læknablaðinu, 7-8/2016, 102. árg.: 317-368. Í greininni skrifar Magdalena um ofbeldi, segir að litið sé á ofbeldi út frá sjónarhóli lýðheilsufræða. Hún er með óhrekjanlegar tilvitnanir. Skrifar að karlar séu um 15% þol- enda ofbeldis (sem þýðir að konur séu hin 85% þolenda). Af þessum 15% karla er mikill meirihluti ann- aðhvort ungir drengir eða gamlir menn og stalkarinn fullorðinn karl- maður. Hún skrifar einnig að karl- menn (bandarísk heimild) fái að meðaltali 2-6 ára dóm fyrir að drepa maka sinn en konur að meðaltali 15 ára dóm fyrir sambærilegt brot. Þessa dagana er mál fyrir rétti í Noregi þar sem réttað er yfir föður sem myrti 15 ára gamlan son sinn eftir að hafa nauðgað honum og beitt hann öðru kynferðisofbeldi. Kannski of erfitt fyrir flesta að lesa, en þetta er nútímalíf (Kappsaken ef þú vilt kynna þér það). Noregur hefur tapað 43 barna- verndarmálum fyrir Mannréttinda- dómstólnum á undanförnum árum og tveimur í efri deildinni þar. Lesandi minn. Beitum ekki of- beldi og látum ekki viðgangast að aðrir beiti því. Heimilisofbeldi – er það úrelt steinaldarorð? Eftir Þóreyju Guðmundsdóttur » Beitum ekki ofbeldi og látum ekki við- gangast að aðrir beiti því. Höfundur er félagsráðgjafi, handleið- ari, prestur og fv. sáttamaður. Þórey Guðmundsdóttir Sú árátta færist mjög í vöxt í ræðu, frásögn og samtali að sá er orðið hefur segir, sennilega að segja viðmælanda sínum, „þú veist „ Mér verður þá oftar en ekki spurn; hvurn fjandann? Til hvers að segja mér eitthvað sem ég veit? Eitt sinn var alþing- ismaður á nefndarfundi og virtist ætla að spyrja gest fundarins, en flutti fyrst langa og óskiljanlega ræðu, þar sem „þú veist“ kom fyrir níu sinnum, en svo kom spurningin; mér langar að spyrja Ráðherrar koma í sjónvarpsþætti og troða inn „þú veist“, sennilega vegna þess að hugsun er í ólagi, oftar en tölu verður á komið. Og Rotary- og Lions- fundir eru svipuðu marki brenndir; ræðu- menn segja „þú veist“ „Hvern fjandann veit ég?“ Sennilega er „þú veist „ til að tjá yf- irburðaþekkingu á íslensku, ellegar er sagt „you know“. Ef til vill er ég gamall geðvondur karl, en ég á minn rétt þegar málmengun skekur eyru. „Þú veist“ hvurn fjandann? Eftir Vilhjálm Bjarnason Vilhjálmur Bjarnason »Ef til vill er ég gamall geðvondur karl en ég á minn rétt þegar málmengun skekur eyru. Höfundur var alþingismaður. Tæplega helmingur þeirra sem látist hafa af völdum kórónuveir- unnar í Evrópu voru íbúar hjúkrunarheim- ila eða langlegudeilda fyrir aldraða að því er fram kom í máli full- trúa Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar á blaðamannafundi nýlega. Þetta eru dap- urlegar fréttir, ekki síst í huga þeirra sem tengjast starfsemi hjúkrunarheimila, hvort sem er íbúa, starfsfólks eða aðstandenda. Til allra heilla á þessi veruleiki ekki við um Ísland þar sem hér hefur tekist einstaklega vel að vernda líf og heilsu aldraðra með þeim úrræðum sem flestum eru kunn. Þótt vel hafi tekist til hér á landi er þó enn of snemmt að fagna sigri í baráttu landsmanna gegn veirunni skæðu. Staðan nú er engu að síður sú, miðað við tölur um fjölda smita í samfélaginu, þar á meðal á hjúkrunarheimilum, að full ástæða er til að gleðjast yfir árangrinum hér á landi. Hann má þakka markvissum aðgerðum og ráðleggingum yfirvalda, ekki síst „þríeykisins“ magnaða og þess hæfa samstarfsfólks sem haldið hefur vel á málum í góðri sam- vinnu við stjórnvöld. Stjórnendur hjúkrunarheimila hafa átt gott samstarf við alla hlutaðeigandi að- ila, ekki síst frá þeim tíma er stefndi í lokun heimilanna sem kom til framkvæmda 6. mars. Vissulega hafa sorgleg tíðindi borist frá Vestfjörðum þar sem tveir íbúar hjúkrunarheimilis hafa látist af völdum veirunnar. En staðreyndin er þó sú að tekist hef- ur að verja heilsu og velferð allra hinna, um 2.800 íbúa hjúkr- unarheimila landsins, sem til þessa hafa sloppið við smit. Það má eins og áður segir þakka markvissum aðgerðum ofangreindra aðila, en ekki síður einstökum viðbrögðum og vinnubrögðum starfsfólks hjúkrunarheimilanna. Árangurinn er einstakur á heimsmælikvarða. Að því sögðu er engu að síður mikilvægt að við, sem tengjumst hjúkrunarheimilunum, höldum áfram vöku okkar með áframhald- andi góðu samstarfi starfsfólks heimilanna, íbúa þeirra og að- standenda. Allir þurfa að leggjast á eitt til að varðveita árangurinn svo komast megi hjá sýkingum sem haft gætu ófyrirséðar afleið- ingar eins og dæmin sanna. Forsenda þess að viðhalda megi árangrinum er ekki síst komin undir framúrskarandi vinnubrögð- um starfsfólks hjúkrunarheim- ilanna sem stendur í framlínu við umönnun aldraðra allan sólar- hringinn 365 daga ársins. Velferð heimilisfólks er mjög háð því að hver og einn starfsmaður sé starfi sínu vaxinn og sýni viðeigandi ábyrgð í leik og starfi þannig að ekki skapist hætta á að smit berist inn á hjúkrunarheimilið sem hann starfar hjá. Enda þótt ekkert hafi verið staðfest teljum við eðlilegt að stjórnvöld geri ráð fyrir þessum mikilvæga hópi, sem starfsfólk hjúkrunarheimilanna er, í þeim áformum ríkisstjórnarinnar að umbuna framlínustarfsfólki í heil- brigðisgeiranum sérstaklega. Við- horf og viðmót starfsfólks hjúkr- unarheimila hefur verið algerlega magnað undanfarnar vikur og starfsmenn sýnt mikla fórnfýsi og einstakan samstarfsvilja í þeim áskorunum sem blasað hafa við og í raun leitt til algerlega nýs skipu- lags á hverju einasta hjúkr- unarheimili landsins. Eins og margir aðrir í samfélaginu, sem sýnt hafa góðan árangur í starfi, á starfsfólk hjúkrunarheimila svo sannarlega skilið þakklæti og umbun stjórnvalda fyrir framlag sitt í baráttunni við skaðvaldinn skæða sem við ætlum öll að sigr- ast á. Árangur á heimsmælikvarða Eftir Björn Bjarka Þorsteinsson og Pétur Magnússon »Eðlilegt væri að stjórnvöld umbun- uðu starfsfólki hjúkr- unarheimilanna eins og öðru framlínufólki í heil- brigðisgeiranum sem stjórnvöld áforma að gera. Björn Bjarki Þorsteinsson Höfundar eru varaformaður og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Pétur Magnússon Núna í miðjum heimsfaraldri kór- ónuveiru þrengir að mörgum rekstri, sér í lagi í hvers kyns þjón- ustustarfsemi. Ég finn það á eigin skinni en ég hef undanfarin 14 ár rekið veitingastaðinn Rossopomodoro á Laugavegi 40 og allan tímann á sömu kenni- tölu. Ég hef alltaf borgað mína skatta og skyldur skilvíslega og stöðugildi eru að jafnaði tólf til fimmtán. Við sem rekum starfsemi í mið- bænum höfum þó þurft að eiga við annars konar faraldur undanfarin átta ár, faraldur sem birtist í lok- unum gatna og sífellt meiri höftum á aðgengi að miðbænum. Þetta hefur gert það að verkum að Íslendingar sækja miklu minna í bæinn en áður. Þeir koma jafnan á sínum bíl en götu- lokanir hafa fælt stóran hluta þeirra frá því að koma í bæinn. Þannig hefur fólk kerfisbundið verið vanið á að fara annað að sækja verslun og þjónustu. Ég þekki eðlilega vel til í mið- bænum eftir 14 ára starf og er í sam- bandi við fjölmarga vini mína á svæð- inu, veitingamenn og kaupmenn. Enginn þeirra er hlynntur þessum lokunum og borgaryfirvöldum er fullkunnugt um and- stöðu afgerandi meiri- hluta rekstraraðila. Hinir háu herrar í ráð- húsinu hafa þó kosið að skella skollaeyrum við tilmælum okkar. Ekk- ert samráð er við okkur haft og okkur ítrekað sýnd lítilsvirðing af þeirra hálfu. Við höfum mátt þola hroka og yfirgang. En það eru ekki bara lokanir sem spilla fyrir viðskiptum heldur tóku borgaryfirvöld upp á því að snúa við akstursstefnu á Laugavegi milli Klapparstígs og Frakkastígs. Sú að- gerð gerir ekkert annað en ergja þá sem eiga erindi í bæinn og má jafna því við að götunni sé lokað. Það er hægt að snúa vörn í sókn og mikilvægt nú sem aldrei fyrr nú þegar farsóttin er í rénun. Þær að- gerðir sem þarf að grípa til strax eru eftirfarandi: Afnema allar götulokanir á Laugavegi, Skólavörðustíg og Bankastræti. Snúa aftur við akstursstefnunni á Laugavegi milli Klapparstígs og Frakkastígs. Bjóða frítt í bílastæðahúsin í ná- grenninu fyrstu þrjár klukkustund- irnar. Hætta að innheimta bílastæðagjöld og taka upp framrúðuskífur þess í stað þannig að frítt verði að leggja, til dæmis frá 90 mínútum og upp í 180 mínútur eftir fjarlægð frá Laugavegi. Borgin taki strax upp samráð við Miðbæjarfélagið í Reykjavík enda eru þar innandyra flest elstu og þekktustu fyrirtækin á svæðinu sem gera það spennandi og eftirsóknar- vert að koma í bæinn. Nú er ögurstund fram undan fyrir marga rekstraraðila og bregðast þarf strax við ef ekki á illa að fara. Meira en nóg er komið af götulokunum og öðrum höftum á aðgengi í bæinn! Borgarstjóri: Nú er nóg komið! Eftir Lárus Guðmundsson » Bregðast þarf strax við ef ekki á illa að fara. Meira en nóg er komið af götulokunum og öðrum höftum á aðgengi í bæinn! Lárus Guðmundsson Höfundur er veitingamaður á Rossopomodoro. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.