Morgunblaðið - 30.04.2020, Qupperneq 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
vorverkin
Sumarið kemur með Sólar
Tökum að okkur útiverkin fyrir
fyrirtæki, húsfélög og heimili
Láttu okkur um að þrífa planið,
stéttina, bílastæðahúsið,
gluggana og sorpgeymslurnar
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Kexbotnar
150 g smjör, við stofuhita
150 g sykur
150 g hveiti
½ tsk. lyftiduft
Stillið ofn á 220°C. Hrærið saman smjör og
sykur þangað til létt og ljóst. Bætið hveiti og
lyftidufti saman við og hrærið saman.
Takið kökuform eða eitthvað hringlaga sem
er 18-20 cm í þvermál og teiknið eftir hringnum
á bökunarpappír, þrjá hringi. Deilið deiginu í
þrennt eða 150 g hvert og þrýstið niður eftir
hringnum einfaldlega bara með höndunum.
Setjið inn í ofn í 6-7 mínútur og leyfið að kólna
alveg.
Rjómablanda
400 ml rjómi
1½ tsk. skyndikaffi
1 tsk. vatn, sjóðandi
1 tsk. flórsykur
Þeytið rjómann, blandið kaffi og vatni saman
á meðan. Þegar rjóminn er fullþeyttur er kaffi
og flórsykri blandað saman við með sleikju.
Samsetning: Setjið fyrsta botninn á köku-
disk, gott er að setja örlitla rjómaslettu undir
botninn svo kakan geti ekki runnið af diskinum.
Setjið helminginn af rjómanum ofan á og
dreifið vel úr og setjið næsta botn ofan á, end-
urtakið ferlið.
Súkkulaðikrem
80 g súkkulaði
2 msk rjómi
½ dl pekanhnetur
Bræðið súkkulaði og rjóma saman við vægan
hita yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Dreifið yf-
ir efsta botninn.
Saxið hneturnar lítillega og dreifið yfir í hring
meðfram súkkulaðikreminu.
Gott er að leyfa kökunni að hvíla inni í ísskáp í
2-3 klst, þá mýkir rjóminn botnana örlítið og
betra er að skera hana. En ekki nauðsyn.
Mögnuð mokkakaka
Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlur & smjör segist hafa fengið æði
fyrir þessari köku fyrir nokkrum árum. Í búðarferð nýlega hafi
hún rekist á mikið af rjóma á afslætti þar sem hann hafi verið
kominn yfir síðasta söludag. Hún hafi gripið nokkrar fernur með
sér og þá kviknað sú hugmynd að skella í þessa einföldu köku.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Snjöll hugmynd Kakan er í senn
einföld og sérlega bragðgóð.
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Pottabrauð
1 þurrgersbréf (11,8 g)
1 msk. sykur
250 ml volgt vatn
2 tsk. salt
350 g hveiti
Setjið þurrger, sykur og volgt vatn saman í
hrærivélarskálina og leyfið að standa í um
fimm mínútur þar til gerið fer að freyða.
Hellið þá saltinu saman við og hveitinu í
nokkrum skömmtum, hrærið á lægsta hraða
með króknum þar til deigið byrjar að losna frá
hliðunum (deigið er aðeins klístrað og það er
allt í lagi).
Hjúpið deigkúluna með vel af hveiti og leyfið
að hefast í hrærivélarskálinni í klukkustund.
Takið deigið þá úr skálinni og færið yfir á
hveitistráðan flöt á borði, togið deigið inn að
miðju eins og þið séuð að pakka því inn allan
hringinn, snúið því svo við og mótið fallega
kúlu.
Setjið kúluna í skál með sléttu hliðina upp
sem búið er að strá hveiti í botninn og stráið
aftur hveiti allan hringinn svo deigið festist
ekki við skálina í seinni hefun, leyfið að hefast í
skálinni í 30 mínútur.
Hitið á meðan ofninn í 220°C og setjið pott-
inn inn í á meðan til að hita hann.
Takið deigkúluna varlega upp úr skálinni og
leggið hana í heitan pottinn, nú má slétta kúlu-
hliðin snúa niður svo smá óreglulegt mynstur
komi við baksturinn.
Bakið með lokið á pottinum í 30 mínútur,
takið lokið þá af og bakið aftur í 10 mínútur.
Leyfið brauðinu síðan að kólna í um 15 mín-
útur áður en það er skorið niður.
Heimabakað pottbrauð
Þjóðin hefur bakað mikið undanfarið og virðist allt deig leika í
höndum landsmanna ef marka má myndir á samfélagsmiðlum.
Heimabakstur vex þó enn einhverjum í augum (eðlilega) en hér
er uppskrift að pottabrauði frá Berglindi Hreiðarsdóttur á
Gotterí.is sem er í senn ofureinföld og bragðgóð.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Dúnmjúkt og dásamlegt Það er fátt betra en
nýbakað brauð með stökkri skorpu.