Morgunblaðið - 30.04.2020, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020
Storkaskæri
3.960 kr.
NÝ SENDING AF SPÆNSKU
EÐALSTÁLI
Hárskæri
6.730 kr.
Sax 16 cm
6.490 kr.
Brauðhnífur 20 cm
4.190 kr.
Kokkahnífur 10 - 25cm
2.495 - 5.980 kr.
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Keramik hnífur
3.980 kr.
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-
16
Rifjárn
1.980 kr.
Steikarhnífur
1.495 kr.
Hnífasegull
30 - 60cm
2.590 - 4.360 kr.
Gaffall
3.140 kr.
Rafmagnsbrýni
17.420 kr.
Santoku Hnífur
5.980 kr.
Takkaskæri
5.980 kr.
Bróderskæri
2.780 kr.
Klæðskeraskæri
Stærðir 8“-12“
6.450 - 9.590 kr.
Rakbursti
1.440 kr.
Stál
5.540 kr.
Tappatogari
þjóna
1.380 kr.Tappatogari
1.095 kr.
Steinbrýni
8.980 kr.
Hnífabrýni
2.440 kr.
Kjötstandur
8.980 kr.
Hnetubrjótur
890 kr.
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Frír heimsending út maí
Spegill
5.980 kr.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi slær upp sínum
einstöku og sívinsælu tónleikum í beinni út-
sendingu á K100 klukkan 20 í kvöld og ætlar
að koma landsmönnum í góðan gír fyrir
helgina. Siggi Gunnars verður Eyþóri til halds
og trausts en hlustendur munu geta haft bein
áhrif í gegnum síma eða samfélagsmiðla.
„Fyrir nokkru keyrði ég í gang tónleikaröð
sem var í raun og veru hálfgerð blanda af
uppistandi og tónleikum. Þar bregður fyrir
eftirhermum, rugli og bulli. Þetta eru yfirleitt
frekar lifandi tónleikar og allir mínir brestir
skína þarna í gegn. Stundum er það til ama og
stundum er það kannski einhverjum til
ánægju,“ segir Eyþór Ingi í samtali við K100.
„Inni í öllum þessum athyglisbresti spretta
upp hinir og þessir karakterar þannig að þetta
er svolítið skrítið eins manns „festival“,“ bætir
hann við kíminn í bragði. Hefur Eyþór þegar
haldið nokkra tónleika í beinni útsendingu í
gegnum Facebook-síðu sína, sem hafa heldur
betur slegið í gegn meðal landsmanna.
Geta óskað eftir eftirhermum og lögum
„Þetta verður svipað en þó öðruvísi því að
núna hef ég einhvern til að spjalla við og gefa
mér „feedback“. Það er bæði Siggi sem verður
þarna með mér sem mun, ef ég þekki hann
rétt, skella upp úr eins og Hemmi Gunn forð-
um,“ segir Eyþór.
„Svo ætlum við að tala við hlustendur og
áhorfendur og bjóða þeim upp á að fá óska-
fíflagang eða óskalag,“ bætir hann við og stað-
festir að áhorfendur muni meðal annars geta
óskað eftir því ákveðnum eftirhermum.
„Það er hugmyndin. Mig langar til að gera
þetta dálítið sérstakt, að fólk geti haft áhrif á
dagskrána.“
Saknaði þess að fá hnút í magann
Eyþór segist hafa saknað þess að finna fyrir
spennunni sem fylgir því að koma fram án
þess að vera mikið undirbúinn.
„Maður saknaði þess að fá hjartað til að slá
aðeins hraðar, fá smá hnút í magann. Þá er
einmitt best að vera lítið undirbúinn. Af því að
maður veit að maður er í beinni og þá kemur
pressa og þá fer adrenalínið af stað,“ segir
hann.
„Mér finnst það spennandi. Ég leik mér
rosalega mikið með það þegar ég er einn að
halda tónleika. Ég fæ hugmyndir „on the
spot“. Bæði eitthvert brandaradæmi sem
kannski getur alveg misheppnast. En ef mér
dettur eitthvert lag í hug þá reyni ég það. Ef
það misheppnast er það fyndið og ef það tekst
er það spennandi.“
Eyþór segir að viðbrögðin við Facebook-
tónleikunum hafi verið ótrúleg og framar öll-
um vonum enda hafi fyrstu tónleikarnir verið
„í algjöru gríni“. Þá fylgdust þó fleiri þúsundir
með tónleikunum.
Eyþór Ingi hvetur fólk til að fylgjast með
tónleikunum í kvöld en hægt verður að horfa á
og hlusta í útvarpinu á K100, á K100.is, í sjón-
varpinu á rás 9 í Sjónvarpi Símans eða í Nova
TV-appinu kl. 20:00.
Eyþór Ingi kemur lands-
mönnum í gírinn fyrir helgina
Hinum vinsælu tónleikum
Eyþórs Inga verður breytt í út-
varps- og sjónvarpsþátt á K100
fimmtudagskvöldið 30. apríl kl.
20 þar sem öllum bestu hliðum
Eyþórs Inga mun bregða fyrir í
beinni útsendingu.
Ljósmynd/Hljómaland
Skemmtikraftur Eyþór Ingi býður hlust-
endum að hafa áhrif á áhrif á dagskrána á
tónleikunum með því að óska eftir ákveðnum
eftirhermum og biðja um óskalög.
Veðurguðirnir og gyðj-
urnar hafa svo sann-
arlega verið í góðum gír
undanfarna daga og það
er alveg ótrúlegt hvað
sólin getur fyllt mann af
miklu þakklæti með því
einu að láta sjá sig. Ég
fór í góðan göngutúr í
gær með mömmu minni
og það var svo skemmtilegt að sjá græna lit-
inn gera vart við sig á trjánum. Allt er að
kvikna til lífsins á ný og er það svo sann-
arlega eitthvað til þess að gleðjast yfir. Vorið
og vonin haldast oft hönd í hönd. Heilræði
mitt fyrir daginn í dag er að gefa sér tíma, ef
þú hefur tök á, til þess að fara í rólegan
göngutúr, staldra við á nokkrum stöðum og
taka eftir því sem er í kringum þig. Stundum
fara hlutir framhjá okkur sem annars gætu
gert okkur svo gott einungis vegna þess að
við gefum okkur ekki tíma til að staldra við.
Njótum náttúrunnar og loftsins sem er
frískara en nokkru sinni fyrr. Við erum ómet-
anlega heppin með það. dorajulia@k100.is
Ljósi punkturinn
Stöldrum við
og njótum
náttúrunnar
DJ Dóra Júlía finnur ljósa
punktinn í tilverunni og flytur
góðar fréttir reglulega yfir dag-
inn í útvarpinu og á vefnum.