Morgunblaðið - 30.04.2020, Page 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerrusmíða
2012
2019
70 ára Jón er frá Mið-
húsum í Akrahreppi og
var fyrst sauðfjárbóndi
þar og síðan kúabóndi
en er hættur búskap.
Jón er harmonikuleik-
ari og spilaði mikið áð-
ur fyrr, hann er bús-
ettur í Miðhúsum.
Maki: Sigríður Garðarsdóttir, f. 1952,
kennari.
Börn: Garðar, f. 1970, Guðrún, f. 1975,
og Stefán Jökull, f. 1978, d. 2013. Barna-
börnin eru 11 og barnabarnabörnin þrjú.
Foreldrar: Gísli Jónsson, f. 1926, d.
2009, og Guðrún Stefánsdóttir, f. 1926,
d. 2003. Þau voru bændur í Miðhúsum,
Gísli var þaðan, en Guðrún var frá Syðri-
Bakka í Kelduhverfi.
Jón Stefán Gíslason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ættir að líta vandlega í eigin
barm áður en þú skellir sökinni á aðra.
Gleymdu ekki hvaða áhrif og afleiðingar
þínar gjörðir hafa á aðra.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur ekkert upp úr því að við-
urkenna ekki valdsvið yfirmanna þinna.
Farðu þér hægt og gáðu vel að þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu óhræddur við að bera upp
þær spurningar, sem þér liggja á hjarta. Ef
þú ert með hugmynd sem þú vilt koma
áleiðis áttu að gera það í dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú stendur frammi fyrir þeim val-
kosti að geta tekið á þig aukna ábyrgð.
Sýndu viðeigandi þakklæti og þá færðu
meira af því sama.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú getur komist að óvæntum leynd-
armálum í dag. Láttu ekkert hnika þér af
leið heldur haltu þínu striki hvað sem á
dynur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sérstakrar þolinmæði er þörf í
samskiptum við vini og félaga. Hegðaðu
þér eins og þú myndir gera ef þú hefðir
engu að tapa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dagurinn í dag hentar sérstaklega vel
til að hefjast handa við nýtt verkefni.
Kynntu þér málin frá sem flestum hliðum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Mundu að hlutirnir eru ekki
bara hvítir eða svartir. Gættu þess að hafa
þitt á hreinu svo þú verðir sigurvegari
dagsins.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lífið yrði mun auðveldara ef
þú sameinaðir vissa þætti þess. Ef þú ert
bjartsýnn og gefst ekki upp muntu ná tak-
marki þínu þótt síðar verði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur reynt á þolinmæðina
að þurfa að hafa hlutina fyrir sig. Reyndu
að sætta sig við það að fólk skilji ekki allt-
af orkuna þína.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver reynir að setja þér stól-
inn fyrir dyrnar og þú þarft að komast að
því hvað fyrir honum vakir. Getir þú ekkert
fyrir einhverja gert hikaðu þá ekki við að
vísa þeim annað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert ekki ánægður með alla hluti
og skalt skoða þá í víðara samhengi áður
en þú ákveður að láta til skarar skríða.
jafnframt færðar í stafrænt horf og
gerðar aðgengilegar almenningi á
ismus.is.“ Undanfarin ár hefur Lára
starfað sjálfstætt og var meðal ann-
ars sýningarhöfundur sýningar um
heimili Ingibjargar Einarsdóttur og
Jóns Sigurðssonar sem Þjóðminja-
safnið setti upp fyrir Alþingi í Jóns-
húsi í Kaupmannahöfn í tilefni
„Ég var hjá Háskólanum á Skaga-
strönd til ársins 2017 og stóð þá
meðal annars fyrir ýmsum mál-
þingum og fyrirlestrahaldi og kom
að verkefnum sem vörðuðu menn-
ingarmiðlun af ýmsu tagi. Þar má
nefna skráningu á hljóðupptökum
sem Fræðafélag Vestur-Húnvetn-
inga átti frá síðustu öld sem voru
L
ára Magnúsardóttir
fæddist 30. apríl 1960 í
Reykjavík og ólst upp á
Kaplaskjólsvegi. „Fjöl-
skyldan bjó í nokkur ár
á Seltjarnarnesi þegar ég var ung-
lingur en foreldrar mínir fluttu svo í
hús móðurafa og -ömmu á Sólvalla-
götu en ég var mikið hjá þeim á ung-
lingsárunum,“ segir Lára.
Hún gekk í Landakotsskóla og
Hagaskóla, hljóp yfir annan bekk og
tók landspróf og eftir verslunarpróf
1977 fór hún sem skiptinemi til Kali-
forníu. Hún vann tvö sumur í Kerl-
ingarfjöllum, en á árunum 1978-1981
vann hún á skrifstofu, í fiskvinnslu
og við ræstingar, var í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og dvaldi
um tíma á Ísafirði. Þá var hún tvö
sumur í Kaupmannahöfn og vetur í
Gautaborg, en fór svo til Líma í
Perú, þar sem hún lærði spænsku
frá miðju ári 1981 til ársloka 1982.
Lára tók stúdentspróf frá Öld-
ungadeild MH vorið 1984, og fór í
Háskóla Íslands og lauk prófi í sagn-
fræði og almennum málvísindum
1993. Ári síðar lá leiðin til Genfar í
Sviss, þar sem hún stundaði fram-
haldsnám í sagnfræði, lærði frönsku
og stýrði heimili næstu fjögur árin.
Árið 2007 varði hún doktorsritgerð
við Háskóla Íslands í sömu grein.
„Í doktorsnáminu fékk ég styrk
frá Kristnihátíðarsjóði en fyrst og
fremst vann ég fyrir mér með ýms-
um tilfallandi verkefnum, svo sem
fyrirlestrum fyrir ferðamenn og
stundakennslu við háskóla. Ég vann
eitt og annað fyrir fjölmiðla og með-
al annars vann ég stundum í útvarpi
yfir sumarmánuðina, fyrst í Víðsjá
og síðar í fréttaþáttum Ríkis-
útvarpsins. Þar var ég í starfi að
loknu prófi, en réð ég mig á Hálend-
ismiðstöðina í Hrauneyjum þegar
bankakreppan skall á árið 2008. Þar
var ég um veturinn og síðan hótel-
stjóri í Skógum undir Eyjafjöllum
fram eftir sumri.“ Lára ritstýrði
fréttaþættinum Speglinum fram á
haust og gerðist þá forstöðumaður
Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á
Norðurlandi vestra og á árunum
2009-2013 var hún stjórnarformaður
Stofnunar Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum.
aldarafmælis fullveldisins fyrir
tveimur árum.
Spurð út í áhugamálin segir Lára
þau samtvinnast vinnaunni. Hún var
í ritstjórn Veru á árunum upp úr
1990 og hefur setið í stjórn Sagn-
fræðingafélags Íslands og Félags ís-
lenskra fræða, þar sem hún var for-
maður um hríð. „En viðfangsefni
mín eru yfirleitt um áhugamálin,
sem lúta að þeirri hlið stjórnmála
sem snýst um löggjöf og stofnanir
sem varða andlegt og tilfinningalegt
líf mannsins í vestrænni sögu. Um
það hef ég skrifað réttarsögulegar
fræðigreinar og gefið út bók um
sagnfræðirannsóknir.“ Í gegnum
tíðina hefur Lára einnig unnið við
þýðingar, m.a. á barnabókum og
tekið saman ýmiss konar efni fyrir
almenning í útvarpi og aðra fjöl-
miðla.
Fjölskylda
Fyrrverandi eiginmaður Láru er
Karl Roth, f. 17.11. 1957, tölvunar-
fræðingur hjá Íslenskri erfðagrein-
ingu. „Við skildum árið 1998 en í
Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur – 60 ára
Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Viðfangsefnin eru um áhugamálin
Ljósmynd/Ragnheiður Pálsdóttir
Afmælisbarnið Lára í starfi hjá RÚV
2008 á Landsmóti hestamanna á Hellu.
Sumar Lára, Friðrik og Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra
á leið frá athöfn til minningar
um Ok í ágúst 2019.
Fjölskyldan Lára
ásamt börnum sínum
og barnabörnum í
liðinni viku.
50 ára Elma er frá
Ingjaldsstöðum í Þing-
eyjarsveit en býr í
Reykjavík. Hún er
söngkennaramenntuð
frá Söngskólanum í
Reykjavík og með
meistarapróf í menn-
ingarstjórnun frá Bifröst. Elma vinnur á
þýðingadeild RÚV.
Maki: Þráinn Óskarsson, f. 1976, múr-
arameistari og kennari við Tækni-
skólann.
Sonur: Atli Þráinsson, f. 2005.
Foreldrar: Atli Sigurðsson, f. 1945, og
Kristín Sigurðardóttir, f. 1937, d. 2015.
Kristín fæddist á Ingjaldsstöðum og bjó
þar alla sína tíð. Atli er ennþá bóndi þar
en er frá Lundarbrekku í Bárðardal.
Elma Atladóttir
Til hamingju með daginn
Hella Wiktor Kacperski fæddist 30.
apríl 2019 kl. 16.11 á Landspítalanum í
Reykjavík. Wiktor á því eins árs afmæli
í dag. Hann vó 3.336 g og var 49 cm
langur. Foreldrar hans eru Anna
Kacperska og Pawel Kacperski.
Nýr borgari