Fréttablaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 2
Tilkynningum um vanrækslu og neyslu for- eldra fyrstu 6 mánuði ársins fjölgaði úr 83 í 119. Veður Norðaustan 8-15 með rigningu, en úrkomuminna norðvestan til. Kólnar heldur fyrir norðan. SJÁ SÍÐU 16 Hoppað á hjóli Helgi Trausti Stefánsson sýndi ótrúlegar listir á hjóli sínu þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í Nauthólsvík í gær. Þar var hann ásamt góðum félögum sínum, sem fögnuðu honum ákaft, á fjallahjólaæfingu. Allir voru þeir vel græjaðir, með bæði hjálma og hlífar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Virgill við sauðfjárhólfið sem ekki hefur verið haldið við. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SUÐURNES Virgill Scheving Einars- son, landeigandi í Skjaldarkoti og Efri-Brunnastöðum, hafnaði því að leyfa sveitarfélaginu Vogum að leggja hjólreiða- og göngustíg inn á land sitt og framkvæmdin er nú sögð í uppnámi. Hann segist ekkert hafa á móti stígnum sem slíkum, en framkoma sveitarstjórnarinnar gagnvart honum á undanförnum árum sé ástæðan fyrir því að hann leyfi þetta ekki. Vegurinn átti að vera tveir og hálfur kílómetri og að stærstum hluta innan veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar. Hafði Vegagerðin þess utan lagt til styrk til verkefnis- ins. Í pistli í Víkurfréttum í ágúst sagði bæjarstjórinn, Ásgeir Eiríks- son, að einn landeigandi hefði aftur- kallað samþykkið og liti út fyrir að ekkert yrði af framkvæmdinni. En málið á sér forsögu. „Ég var búinn að samþykkja þetta en snerist hugur,“ segir Virgill, sem er alinn upp á þessum jörðum og erfði þær fyrir 10 árum, það er Skjaldarkot og Efri-Brunnastaði I og II. „Ég hugsaði með mér: Nú er tíminn til að hefna mín á þeim.“ Rótina að þessum deilum má rekja til ársins 2010 þegar Virgill lokaði vegi á landi sínu vegna mikils hávaða, ryks og ónæðis sem hann varð fyrir af umferðinni. Bæjar- stjórn vildi halda veginum opnum, en ekkert leyfi var fyrir honum. „Ég fékk verktaka til að setja grjót í veg- inn og bærinn lét kasta því í sjóinn. Þetta var stríð,“ segir Virgill. Endaði þetta með málarekstri sem Virgill segir að hafi reynt mikið á sig, hafi kostað sig umtalsverðan lögfræði- kostnað og að hann hafi þurft að leita til sálfræðings eftir á. Síðan þá hafa einnig staðið yfir deilur um lausagöngu fjár, en sonur Virgils heldur 70 sauðkindur á jörð- unum. Segir Virgill bæinn ekki hafa haldið við sauðfjárhólfi sunnan við Reykjanesbrautina, eins og hann eigi að gera samkvæmt samkomu- lagi við Vegagerðina frá árinu 1991. Hafi þeir feðgar fengið símtöl bæði frá lögreglu og bæjarstjóra út af lausagöngu, en Virgill segir öruggt að samkomulagið frá 1991 sé niður- fallið vegna skorts á viðhaldi. „Þessi göngustígur skiptir mig engu máli,“ segir Virgill. „Ég væri alveg til í að draga ákvörðun mína til baka ef bærinn myndi borga lögfræðikostnaðinn til baka vegna vegamálsins.“ Þetta hafi verið um 600 þúsund krónur sem væri hægt að framreikna í á aðra milljón í dag. Hafi Virgil heyrt að Miðf lokks- þingmaðurinn Birgir Þórarinsson hafi reynt að bera vopn á klæðin en ekki rætt beint við sig enn þá, og bíði hann ekkert endilega eftir því. Þess utan segir Virgill að vel sé hægt að leggja þennan stíg innan veghelgunarsvæðisins, en til þess þurfi að sprengja hóla og klappir en bærinn vilji spara fé með því að fara inn á land í einkaeigu. kristinnhaukur@frettabladid.is Virgill Scheving hefndi sín á bæjarstjórn Voga Sveitarfélagið Vogar fær ekki að leggja göngustíg inn á land Virgils Scheving Einarssonar og er nú framkvæmdin í uppnámi. Virgill segist ekkert hafa á móti stígnum, en eiga harma að hefna fyrir málarekstur út af vegi og sauðfé. Ég væri alveg til í að draga ákvörðun mína til baka ef bærinn myndi borga lögfræðikostn- aðinn til baka vegna vega- málsins. Virgill Scheving Einarsson, landeigandi Forstöðumaður segir álag á starfs- fólk langt yfir viðmiðum Barna- verndarstofu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SUÐURNES Mikil aukning hefur orðið á tilkynningum til Barna- verndar Reykjanesbæjar og María Gunnarsdóttir forstöðumaður segir nú komið að þolmörkum. Álagið á starfsfólk sé langt yfir viðmiðum Barnaverndarstofu. Fjölgun tilkynninga hefur verið viðvarandi síðan heimsfaraldurinn skall á. María beintengir fjölgunina við ástandið. Á fyrstu sex mánuðum ársins bárust 119 tilkynningar varðandi vanrækslu og neyslu foreldra. En á sama tímabili í fyrra voru þær 83. Tilkynningum um heimilisof beldi fjölgaði úr 35 í 52. „Hver tilkynning er alvarleg,“ segir María. Einnig að aukning sé í útköllum Barnaverndar, en þá er um neyðarþjónustu að ræða. Ljósi punkturinn sé hins vegar sá að tilkynningum vegna áhættu- hegðunar barna, svo sem neyslu og af brota, hefur fækkað. „Stuðningsúrræði hafa verið bætt og sálfræðiþjónusta. En fjöldi mála- stjóra hefur verið sá sami þrátt fyrir fjölgun tilkynninga.“ – khg Barnavernd Reykjanesbæjar að þolmörkum Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Finndu okkur á Fermingarskraut í úrvali! ■ Myndaveggir ■ Nammibarir ■ Kortakassar ■ Servíettur ■ Borðrenningar ■ Blöðrur (fyrir loft/helíum) ■ Blöðrubogar/lengjur/hringir (fyrir loft) ■ Súkkulaðiegg í þemalitum veislunnar ■ Kerti ■ Og margt fleira ■ Veggborðar þar sem hægt er að raða bókstöfum saman í hvaða orð sem er, t.d. nafn fermingarbarns, „Ferming“, „Myndaveggur”, „Kort”, „Nammibar” Vöruúrvalið er að finna á facebook síðu Partýbúðarinnar COVID-19 Í gær voru 99 einstakling- ar hér á landi með virkt COVID-19 smit og 848 voru í sóttkví, enginn lá á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins. Sólarhringinn á undan greindust hér fimm með nýtt innanlandssmit. Í tilkynningu frá heilbrigðis- ráðuneytinu í gær kom fram að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra hefur skipað vinnuhóp til að skoða hvort stjórnvöld geti viðurkennt erlend vottorð sem segja til um hvort fólk hafi sýkst af COVID-19. Væri þá möguleiki að þeir sem eru með slíkt vottorð slyppu við skimun á landamærum. Upphaflega stóð til að leyfa vottorð hér á landi í maí síðastliðnum, en það gekk ekki eftir. Ráðuneytið telur nú brýnt að ráðast í skoðun á vottorðum og að skipulögð vinna þurfi að hefjast til að kanna gagnkvæma viðurkenn- ingu vottorða á milli landa. – fbl Skoða að taka vottorð gild 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.