Fréttablaðið - 02.09.2020, Page 12
Kojak Barpas fer ekki fram hjá neinum, enda hárprúður og mikill maður með enn stærri
persónuleika. Með ómfagurri
röddu sinni og þykkum breskum
hreim hefur hann veitt fjölda
Íslendinga innblástur til að gera
ótrúlegar lífsstílsbreytingar til hins
betra, hvort sem markmiðið er að
léttast, koma heilsunni í betra lag
eða ná persónulegum markmiðum
í íþróttum. „Það sem þarf er stað-
festa og að taka fyrsta skrefið. Þá er
allt hægt,“ segir Kojak.
Þekkir baráttuna
„Sjálfur var ég alltaf feiti strákurinn
í skólanum. Þegar ég varð fimm-
tán ára tók ég mig duglega til, hóf
að stunda líkamsrækt og missti
hátt í fjörutíu kíló á sex mánuðum
og leið miklu betur í kjölfarið. Ég
þekki vel þessa baráttu við sjálfið
þegar kemur að því að koma sér í
form. Það má segja að að vissu leyti
hafi ég verið mitt eigið tilraunadýr
og upp frá þessu þá byrjaði ég að
hjálpa öðrum í þessari baráttu. Ég
mun aldrei vera granni þjálfarinn
í ræktinni og þarf sífellt að passa
mataræðið og vera strangur á
rútínunni. Ég skil þennan barning
hjá skjólstæðingum mínum, því ég
var staddur á sama stað og ég veit
að hver einasti dagur er glíma við
sjálfið.“
Þetta er ástríða
Kojak hefur starfað í líkams-
ræktarbransanum um árabil,
víða um heim. Hann lauk einka-
þjálfaranámi ásamt næringarfræði
frá Tresham College í Englandi
árið 2000. Einnig er hann mennt-
aður Crossfit þjálfari, auk þess
sem hann er Steve Maxwell-Level
1&2 Maxbells ketilbjölluþjálfari.
Þá hlaut hann silfurverðlaun í
ThaiBoxing á heimsmeistaramóti
í Muathai í Kasakstan árið 2003.
„Ástríðan gagnvart því að stunda
líkamsrækt, bæta við mig þekk-
ingu og deila henni er partur af
mínum lífsstíl og þjálfun,“ segir
Kojak.
Kojak tekur að sér ýmiss konar
skjólstæðinga í einkaþjálfun,
byrjendur jafnt sem afreksfólk
í íþróttum. „Ég fylgist alltaf vel
með mínu fólki og er svona „no
bullshit“ maður þegar kemur að
skjólstæðingum mínum. Í Heilsu-
klasanum, þar sem ég starfa, þjálfa
ég stóran hluta af læknunum
og sérfræðingunum sem starfa
þar. Einnig eru margir af mínum
skjólstæðingum starfsmenn hjá
Icelandair. Það er mikið atriði að
fólk taki heilsu sína og lífsstíls-
breytingar alvarlega enda þekki ég
þetta á eigin skinni,“ segir Kojak.
Ásamt því að bjóða upp á alhliða
þjálfun leiðbeinir hann einnig
um mataræði, sem hefur hjálpað
fjölda fólks að ná frábærum
árangri. „Markmiðasetning og
staðfesta, ásamt fjölbreyttum
æfingum er það sem hjálpar skjól-
stæðingum mínum að finna sína
leið að breyttum lífsstíl.“
Ný íþrótt á Íslandi
Markmið Kojak er nú að kynna
nýja íþrótt á Íslandi sem kallast
Kettlebell Sport, eða ketilbjöllu-
sport. „Það þekkja flestir ketil-
bjöllur, en æfingakerfi með þeim
hafa verið í boði á Íslandi til fjölda
ára. Ketilbjöllusportið er hins
vegar keppnisíþrótt þar sem fólk
keppir sín á milli. Þá eru haldnar
keppnir víðs vegar um heim og
meðal annars eru keppnir haldnar
á internetinu. Ég er fyrstur hér á
landi til þess að bjóða upp á þessa
íþrótt, en það hafa þó nokkrar
líkamsræktarstöðvar sett sig í
samband við mig og vilja einnig
bjóða upp á ketilbjöllusportið hjá
sér. Því er ljóst að það er heilmikill
áhugi fyrir þessari nýju íþrótt hér
á landi.“
Kojak starfar sem einkaþjálfari í
líkamsræktarstöð Heilsuklasans
að Bíldshöfða 9.
email: kojak.is@hotmail.com
Sími: 6946212.
Facebook: Kojak.is – Fitness.
#consistencyiskey #nevergiveup
Kojak er um-
búðalaus þegar
kemur að því að
þjálfa skjól-
stæðinga sína,
enda nær hann
líka árangri.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANT-
ON BRINK
Framhald af forsíðu ➛
Telma Rut léttist um 17 kg.
Frá því Gunnar Hákonarson byrjaði í einkaþjálfun hjá Kojak hefur hann lést um 40 kg. Hér er hann hálfnaður.Ragnar Thorsteinsson flugþjónn hjá Icelandair léttist um 20 kg hjá Kojak.
Sigríður Ingólfsdóttir flugfreyja léttist um 20 kg í þjálfun hjá Kojak.
Markmið Kojaks er
nú að kynna nýja
íþrótt á Íslandi sem
kallast Kettlebell Sport,
eða ketilbjöllusport.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R