Fréttablaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 14
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Eva Dögg hefur í nógu að snúast. „Ég er mamma, jóga- og hugleiðslukennari og
hönnuður. Ég vinn sjálfstætt og
var að stofna vellíðunarveröldina
rvkritual.com með samstarfskonu
minni, Dagnýju Gísladóttur. Við
höldum viðburði og námskeið
á internetinu og í raunveruleik-
anum, þegar það er í boði, þar
sem að við fókuserum á heilnæma
vellíðan.“
Hrein og öflug bætiefni
Eva Dögg svarar játandi þegar
hún er spurð að því hvort hún hafi
mikla reynslu af því að taka inn
vítamín og bætiefni. „Já, svo sann-
arlega, þetta er stórt áhugamál og
ég held að ég hafi lesið meira um
jurtir, heilnæma heilsu, bætiefni
og annað í þeim dúr en ég hef
nokkurn tímann lesið í háskóla-
náminu mínu sem fatahönnuður.
Ég vil fá bætiefni sem eru hrein
og öflug, með góða upptöku og án
allra óæskilegra fylliefna.“
Kynni Evu Daggar af Solaray-
vörunum mörkuðu ákveðin
straumhvörf í lífi hennar, þar sem
hún fór í kjölfarið að huga að og
leita frekari leiða til þess að efla
heilsu. „Ég kynntist þeim í Dan-
mörku! Þegar ég var að vinna sem
fatahönnuður undir mjög miklu
álagi og mjög mikið. Þetta var í
fyrsta skipti sem að ég fann álagið
svona sterkt á líkamanum mínum,
byrjaði að missa hárið og annað
skemmtilegt. Þá var mér bent á að
byrja að taka inn Mega B Stress og
ég hef sjaldan fundið jafn hröð og
mikil áhrif á sjálfri mér. Þetta var
svona fyrsta skrefið mitt í að taka
fulla ábyrgð á minni eigin heilsu á
allan hátt.“
Solaray verður fyrir valinu
fyrst og fremst vegna virkni. „Þau
mæta mínum kröfum og ég finn
raunveru legan mun þegar ég tek
þau inn. Sem er ekki alltaf raunin.
Einnig finnst mér flokkunin á
vörunum skemmtileg og ég er líka
stór aðdáandi jurtanna og ayur-
veda-línunnar.“
Treystu líkamanum þínum
Blaðamaður spyr Evu Dögg hvort
það sé eitthvað sem æskilegt gæti
verið að hafa í huga áður en byrjað
er að taka inn bætiefni. „Farðu til
læknis og í blóðprufu til að byrja
með og helst reglulega. Athugaðu
hvort að þig vanti eitthvað sérstakt
og taktu það svo þaðan.“
Þá sé áríðandi að hlusta á eigið
innsæi. „Þó að allt komi vel út
þýðir það samt ekki að þú ættir
ekki að taka neitt inn, en þá veistu
hvar þú stendur til að byrja með.
Hlustaðu svo innsæið. Hvað er
líkaminn þinn að kalla á? Og
treystu líkamanum þínum. Það
þekkir enginn líkamann þinn
betur en þú sjálfur, þetta er þitt
heimili og þú ætlar að eiga heima
þarna lengi og búa vel,“ segir hún.
„Ég lít mjög heilnæmt á heilsu.
Góð heilsa kemur að innan. Ef að
þú vilt hafa fallegt hár og fallega
húð, til dæmis, þá skiptir meira
máli hvað þú setur ofan í þig af
næringu og hugsun um en hvað
þú berð á þig, það er bara smá
plús. En ALLT byrjar innan frá.
Stress, áhyggjur og neikvæðar
hugsanir trompa yfirleitt allt og
þá skiptir ekki miklu máli þó að
þú takir bestu bæti efnin og notir
dýrustu kremin. Borðaðu hollt og
fjölbreytt og svo bætirðu bætiefn-
unum við til að gefa þér smá bónus
þegar þess þarf og eftir því á hvaða
tímabili þú ert í lífinu og einnig
eftir árstíðum.“
Eva Dögg nefnir nokkur atriði
sem hafa reynst henni vel. „Ég
hugleiði! Sem er það mikilvægasta
sem ég geri, ég stunda jóga, geri
Ég vil að bætiefni
séu hrein og öflug
Eins og margir hafa orðið varir við þá er hægt að búa til ótrú-legustu hluti úr hnetum, hvort
sem það eru staðgenglar fyrir
f lestar tegundir mjólkurafurða,
eða eins og í þessu tilfelli olíu,
mjólkur og eggja. Það er auðvelt að
skipta út innihaldsefnum, hvort
sem það er tegund „smjörs“, sætu
eða mjöls.
Í þessari uppskrift er möndlu-
smjör, en einnig er hægt að nota
hnetu- eða kasjúhnetusmjör,
eða hreinlega að blanda saman.
Möndlu- og kasjúhnetusmjör er til
dæmis afar góð blanda.
Það er ekki verra að tvöfalda
uppskriftina, í það minnsta, og
frysta.
1 bolli fínmalað möndlumjöl
(einnig hægt að nota fínmalað
haframjöl)
¼ tsk. salt
½ tsk. lyftiduft
½ bolli fínt möndlusmjör
(eða fínt kasjúhnetusmjör)
¼ bolli agave- eða hlynsíróp
1 tsk. vanilludropar eða -duft
½ bolli dökkir súkkulaðidropar,
en einnig er hægt að nota saxað,
dökkt súkkulaði
Ef vill: Það er líka ákaflega gott
að bæta við söxuðum maka-
damíuhnetum
Stillið ofninn á 180°C og setjið
bökunarpappír á ofnplötu.
Blandið saman möndlumjöli, salti
og lyftidufti í stóra skál og hrærið
vel saman.
Bætið við sírópinu (eða sætunni),
möndlusmjörinu og vanilludrop-
unum og hrærið vel og lengi þar til
deigið er orðið þykkt og klístrað.
Bætið við söxuðu súkkulaði eða
súkkulaðidropum og blandið var-
lega við deigið.
Kælið deigið í 15-30 mínútur.
Eftir kælingu er komið að því að
búa til hæfilega stórar (um það bil
1 og ½ matskeið) kúlur úr deiginu,
pressa þær létt niður, en gæta þess
að þær haldi hringlaga löguninni
og raða þeim svo á ofnplötuna
þannig að hver fái sitt pláss.
Bakið í 10-15 mínútur, þar
til kökurnar eru orðnar gullin-
brúnar. Brýnt er að fylgjast vel með
svo þær brenni ekki.
Leyfið þeim að kólna í að
minnsta kosti tíu mínútur á
plötunni og fær ið þær svo yfir á
kæligrind.
Þegar smákökurnar kólna verða
þær stökkar að utan en mjúkar að
innan. Þær eru einnig mjög góðar
ískaldar beint úr frystinum.
Hæfilega heilnæmar smákökur
Haustið nálgast óðfluga með kólnandi andrúmslofti og vaxandi myrkri. Það er því tilvalið að
kveikja á ofninum og skella í einfaldar og gómsætar, en jafnframt tiltölulega hollar, smákökur.
Nýbak-
aðar smákökur
klikka aldrei og
þessar eru ekki
síðri frosnar.
MYND/GETTY
Kasjú hnetur eru kjörnar í bakstur.
Möndlusmjör
er ljúffengt og
næringaríkt.
Eva Dögg Rúnarsdóttir kynntist Solaray þegar hún var bú-
sett í Kaupmannahöfn og var undir miklu álagi. Hún segir
vörurnar hafa verið sitt fyrsta skref í átt að aukinni með-
vitund um mikilvægi þess að huga betur að heilsunni.
öndunaræfingar og hreyfi mig á
heilnæman hátt. Ég nota kjarna-
olíur og jurtir til að styðja við
heilsuna, borða holla og heila fæðu
og neyti alls engra dýraafurða. Ég
stunda þakklæti daglega og hef
það skemmtilegt. Man eftir því að
dansa, brosa og njóta augnabliks-
ins.“
Þá er nóg á döfinni. „Akkúrat
núna vorum við Dagný að byrja
með námskeiðið okkar The Ritual
Class: Self Mastery í þriðja skiptið.
Það er alveg ótrúlega tilfinning að
vera að vinna með fólki frá öllum
heiminum og styðja við það á
ferðalagi sínu í átt að daglegri hug-
leiðslu og meiri vellíðan. Annars er
ég líka að dunda mér í mínu eigin
snyrtimerki @eva_holisticbeauty
þar sem að ég handgeri lífræn
krem með heilnæmri áherslu.“
Hægt er að fylgjast með Evu Dögg
á Instagram undir: evadoggrunars
Ég finn að Solaray-
bætiefnin mæta
mínum kröfum og ég
finn raunverulegan mun
þegar ég tek þau inn.
Eva Dögg Rúnarsdóttir valdi Solaray fyrst og fremst vegna góðrar virkni.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R