Fréttablaðið - 02.09.2020, Side 21

Fréttablaðið - 02.09.2020, Side 21
Við höfum viljað tengja [raforku- verðið] álverði og ég held að það hafi gefið mjög góða raun. Óskir leigjanda um húsnæðið og staðsetningu þess eru eftirfarandi en allar innsendar hugmyndir verða skoðaðar og þeim svarað. ■ 100-300 fermetra húsnæði með góðum gluggum og innkeyrsluhurð ■ Bílaplan (bílastæði) fyrir allt að 50 bíla eða fleiri ■ Miðsvæðis í Reykjavík með góðri aðkomu ■ Helst nálægt fjölfarinni stofnbraut ■ Áreiðanlegur og snyrtilegur leigjandi UPPLÝSINGAR ÓSKAST SENDAR Í NETFANGIÐ - gglausn@gmail.com HÚSNÆÐI ÓSKAST HÚSNÆÐI FYRIR BÍLASÖLU ÓSKAST TIL LEIGU LME-markaðurinn lista premíu fyrir grænt ál, þannig að skriður er kominn á málið. Við höfum verið að undirbúa okkur að vera í farar- broddi þarna og höfum skrásett vörumerkið Natur-Al þar sem kol- efnisfótspor þess áls sem kemur frá Grundartanga er vottað sem umhverfisvænt.“ Verðmeira ál, framleitt með umhverfisvænum hætti, er hugsan- lega besti möguleiki álframleið- enda staðsettra á Vesturlöndum gagnvart samkeppninni frá Kína. Álframleiðslugeta í Kína hefur vaxið ævintýralega á síðastliðnum tíu árum, en landið er ríkt af báxíti sem er aðalhráefni álframleiðslu og kolum, sem eru svo brennd til að knýja framleiðsluna. Kínverskir útf lytjendur áls fá að sama skapi endurgreiddan virðisaukaskatt af ákveðnum álafurðum við útflutn- ing, og oft og tíðum afsláttarkjör á raforku. Í maí á þessu ári voru um 5,45 milljónir tonna af áli fram- leiddar á heimsvísu, en þar af voru um 57 prósent framleidd í Kína. Sé litið tíu ár aftur í tímann nam hlut- fall Kína af heildarframleiðslunni um 42 prósentum og fyrir 20 árum stóðu kínverskir framleiðendur að baki um ellefu prósentum af heild- arálframleiðslu heimsins. „Grunnforsendur álframleiðslu í Evrópu og Bandaríkjunum eru til staðar. Eftirspurnin og þar með framleiðslan mun halda áfram. Síðan er þetta spurning um það hvort við hér á Vesturlöndum getum búið okkur til þær aðstæður að framleiðslan hér sé viðbúin sam- keppni, sem kemur fyrst og fremst frá Kína. Ég tel að það sé hægt, við erum í raun með allt aðra vöru en kemur frá Kína. Umhverfisvænt ál, með minna kolefnisfótspor, er svo þáttur sem aðgreinir til að mynda ál frá Íslandi og Kanada frá kínversku vörunni,“ segir Gunnar. Orkuverð á niðurleið Læk kandi orkuverð í Evrópu og Bandaríkjunum mun einnig hjálpa áliðnaði á Vesturlöndum. „Uppbygging á vindmyllum og sólarorkuverum hefur verið hröð á undanförnum árum sem hefur aukið framboð raforku mjög mikið. Þetta er framleiðsla sem er þess eðlis að þó að raforkuverð lækki þá taka menn ekki vindmyllur eða sólar- orkuframleiðslu úr sambandi við dreifikerfið því það er nánast eng- inn breytilegur kostnaður. Þannig að við eigum eftir að sjá raforkuverð falla enn frekar. Svo er mikil vinna á öllum sviðum að draga úr orku- notkun. Ég er sannfærður um það að orkuverð verði mjög samkeppnis- hæft hér á Vesturlöndum til fram- búðar. Ég get líka nefnt það að áliðnaður í Noregi er á mjög góðum stað í augnablikinu, því er þetta líka spurning um það hvernig ríkisstjórnir einstakra landa búa um hnútana þegar kemur að sam- keppnishæfu orkuverði,“ segir Gunnar. Ólíklegt að orka finnist fyrir álver í Helguvík Fyrsta skóflustungan var tekin að álverinu í Helguvík í júní 2008 og gangsetning var fyrirhuguð tveimur árum síðar. Orkuþörf álversins var metin allt að 600 megavött af uppsettu afli. Ekki tókst að útvega næga orku fyrir Helguvík, en Norðurál náði aðeins samningum um hluta orkunnar áður en verkefnið virtist endan- lega slegið út af borðinu árið 2016. „Við eigum þetta ennþá og höfum ekki enn séð tækifæri til að fara af stað með álverið,“ segir Gunnar. „En maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég ætla ekki að útiloka að álver við Helguvík muni rísa en miðað við orkuframboð og stemminguna á Suðurnesjum finnst mér það ekki endilega líklegt.“ Ekkert launungarmál er að Rio Tinto Alcan vinnur nú að því að losa sig við álverið í Straums- vík. Norsk Hydro var nálægt því að kaupa álverið á síðasta ári. Áhyggjur vegna samkeppnissjón- armiða í Evrópu komu í veg fyrir að af kaupunum yrði, en Norsk Hydro og ÍSAL í Straumsvík eru einu framleiðendur ákveðinnar tegundar álbolta í Evrópu sem eru mikilvægir við ýmsa fram- leiðslu. En hefur Norðurál hug á því að kaupa álverið í Straumsvík af Rio Tinto? „Það hefur verið boðið til sölu og við höfum skoðað það. En ég veit ekki til þess að þetta álver sé til sölu nákvæmlega núna,“ segir Gunnar. MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.