Fréttablaðið - 02.09.2020, Page 35
ÉG VELTI EINMITT
FYRIR MÉR HVORT ÉG
HAFI EKKI SJÁLFUR VERIÐ
MJÖG HROKAFULLUR NEMANDI
ÞEGAR ÉG VAR HÉR Í BÓK-
MENNTAFRÆÐINNI – FÆ ÞAÐ
KANNSKI BARA ALLT Í AND-
LITIÐ NÚNA!
Ný tvöföld virkni sem
veitir hraða og langvarandi
vörn gegn tannkuli.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
KEBE
Hvíldarstólar
Tegundir: Rest og Fox
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
Það er mikil aðsókn í rit-listina í haust, eins og í allt nám hér í Háskóla Íslands,“ segir Huldar Breiðfjörð rithöfundur. Hann heilsar nem-
endum ritlistar sem lektor í fyrsta
sinn en hefur eflaust hitt einhverja
þeirra á síðasta ári.
„Ritlistin er tveggja ára nám, sam-
bland af smiðjum og fræðilegum
kúrsum. Hugmyndin er sú að nem-
endur komist í ákveðnar smiðjur
á þessum tíma og kynnist þannig
ýmsum hliðum greinarinnar, skáld-
söguskrifum, ljóðagerð, handrita-
skrifum, leikritaskrifum og f leiru.
Það er auðvitað mikils virði að eiga
líka kost á að taka margvísleg les-
námskeið í öðrum deildum skól-
ans,“ fræðir Huldar mig um – og
heldur áfram: „Ég hef kennt eina
smiðju í nokkur ár, hún snýst um
gerð kvikmyndahandrita. Það getur
verið nokkuð stíft form og ýmislegt
hægt að tala um í sambandi við það
– en auðvitað á nemandinn að efast
um allt sem kennarinn segir þegar
hann er að kenna honum að skrifa.“
Huldar leggur sem sagt áherslu á
gagnrýna hugsun, eða kveðst reyna
það. „Ég velti einmitt fyrir mér
hvort ég hafi ekki sjálfur verið mjög
hrokafullur nemandi þegar ég var
hér í bókmenntafræðinni – fæ það
kannski bara allt í andlitið núna!“
Sem lektor þarf Huldar að sinna
vissu utanumhaldi í deildinni en
ætlar að kenna líka. „Fyrir utan
handritsskrifin er ég með kúrs
sem ég reyni að hafa svolítið óskil-
greinanlegan, er eins konar ferðalag
í gegnum smáprósa og stundum ill-
flokkanlegan texta.“
Hljómar spennandi. Skyldi hann
sjálfur hafa stundað svipað nám
og það sem hann er að stýra nú? „Á
sínum tíma fór ég í bókmenntafræði
og þar var kennd smá ritlist, ég gat
tekið kúrsa hjá Nirði P. Njarðvík.
En þetta er nám sem ég hefði farið
í á sínum tíma ef það hefði verið til.
Það var heil kynslóð rithöfunda
sem fór í bókmenntafræðina en
ungir höfundar hafa kannski meira
verið að færa sig yfir í ritlistina á
seinni árum. Rúnar Helgi Vignis-
son hefur verið að móta greinina
og hún hefur stækkað og eflst í hans
höndum undanfarin tíu ár. Hér eru
fastráðnir kennarar og aðrir koma
inn og kenna ákveðna kúrsa.“
Talsverð sía er inn í ritlistar-
námið að sögn Huldars. „Auðvitað
er leiðinlegt að vísa fólki frá en
það er ákveðin inntökunefnd sem
metur umsóknir og hæfi. Fyrir vikið
verður nemendahópurinn sterkari,
smiðjurnar betri og endurgjöfin
meiri sem nemendur fá,“ segir hann
og getur þess að margir góðir höf-
undar hafi komið út úr þessu námi
undanfarin ár.
Huldar býst við að kennslan
í vetur verði sambland af stað-
kennslu og rafrænni en er spenntur
að hitta nemendur. „Mér þykir alltaf
skemmtilegra og skemmtilegra að
kenna – það er spennandi að horfa
framan í nemendahóp og sjá glitta
í verðandi höfunda. Það er mjög
gleðilegt og eiginlega ótrúlegt hvað
við eigum margt gott fólk sem hefur
áhuga á skriftum.“
gun@frettabladid.is
Finnst gaman að sjá
glitta í verðandi höfunda
Ritlistarnámið við Háskóla Íslands á haustönn er að hefjast í
þessari viku. Huldar Breiðfjörð rithöfundur er nýr lektor
í þeirri deild en hann kemur þar samt að ýmsu kunnugu.
Huldar verður með ritlistarkúrs sem hann reynir að hafa svolítið óskilgreinanlegan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Tré er nýstárleg leiksýning fyrir börn sem frumsýnd verður í Tjarnarbíói 5. september.
Hún fjallar um leitina að öruggum
samastað. Í texta frá aðstandendum
hennar stendur: „Tré sem lifir við
réttar aðstæður er tré sem hefur góð
áhrif á umhverfi sitt.“
Á sviðinu er ýmsum göldrum
beitt . „Við sköpum úrklippu-
sýningu þar sem tveir leikarar
myndstýra verkinu fyrir framan
áhorfendur,“ segir Sara Martí Guð-
mundsdóttir sem er höfundur Trés
og leikstýrir því ásamt Agnesi Wild.
Hún segir vissa töfra munu eiga sér
stað með aðstoð myndtækni, teikn-
inga og lifandi tónlistar.
Söguþráðurinn fjallar um lítinn
dreng, Alex. Fyrir framan heimili
hans stendur sítrónutré sem hefur
fylgt fjölskyldunni í margar kyn-
slóðir. Þegar jarðskjálfti ríður yfir
og jafnar húsið og tréð við jörðu
leggur Alex einn upp í hættuför
yfir lönd og höf með litla grein
af sítrónutrénu í fórum sínum.
Spurningin er: Hvar fær tréð hans
að blómstra á ný?
Sýningin er liður í Listahátíð í
Reykjavík.
– gun
Glænýtt íslenskt barnaleikverk
Teikningar, leikur, ljós og hljóð skapa sýninguna í Tjarnarbíói.
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0