Fréttablaðið - 02.09.2020, Page 38

Fréttablaðið - 02.09.2020, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is ÞETTA ER NÁTTÚR- LEGA UNNIÐ ÚR BÓKUNUM OG BLAÐSÍÐUNUM ÞANNIG AÐ ÉG EIGINLEGA BARA KROTA YFIR OG SET INN ÞAÐ SEM MÉR DETTUR Í HUG. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Hverri Everley og Oakley heilsudýnu fylgir vandað Aspen fjallahjól að verðmæti 59.000 kr.* OAKLEY heilsudýnan frá Primo er með vönduð u poka gormakerfi sem veitir mikinn og góðan stuðning. Yfirdýnan er gerð úr mismunandi svamp lögum sem og visco lagi sem aðlagast að líkama þínum og heldur honum í réttri stellingu út nóttina. Oakley heilsudýnan er með kantstyrkingum sem eykur svefnsvæði hennar og end ingu. Oakley er millistíf/ stíf og hentar því breiðum hópi. Ótrúlegt ... en satt! Ti lva lin fer m in ga rg jöf Oakley og Everley heilsu dýnur (með Aspen fjalla hjóli). Fáanlegar 120, 140, 160 og 180 x 200 cm. Verðdæmi: OAKLEY (30 cm þykk) 120x200 cm Stök dýna 139.900 kr. Verð m/ Classic botni 175.900 kr. Verðdæmi: EVERLEY (35 cm þykk) 120x200 cm Stök dýna 149.900 kr. Verð m/ Classic botni 185.900 kr. EVERLEY heilsudýnan frá Primo er gerð úr 13 gr. pokagormum sem veita hinn fullkomna stuðning. Stífir kantar auka svefnsvæði dýnunnar. Yfirdýnan er þykk og þægileg og gerð úr nokkrum mismunandi svamplögum. Viscolag gefur líkamanum þann stuðn ing sem hann þarf. Dýnan er mýkri á axlar- og mjaðmasvæði til að líkami þinn fái eins náttúru lega sveigju og mögulegt er. Everley er millistíf/ mjúk og ein vinsælasta dýna Primo. 59.000 kr. fylgir með Oakley & Everley heilsu- dýnum ASPEN fjallahjól að verðmæti * á meðan birgðir endast – athugið skilaskilmála. ASPEN 26" FJALLAHJÓL • 26" • 21 gír • demparar á framöxli • diskabremsur að framan og aftan • standari • glitaugu www.dorma.is SENDUM FRÍTT ALLT fyrir listamanninn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Listamaðurinn Þórgnýr Inguson fæst aðallega við síkvikan texta og opnar á morgun, óbugaður og vopnaður gamalli ritvél, sína aðra sýningu á árinu sem hann kennir við andskotann. Sýningin er í Vonleysi við Ing- ólfsstræti og heitir Ritskoðun/Rit- stuldur #1- Nýjasta testamentið og byggir á nýjum verkum sem, eins og nafnið gefur til kynna, eru unnin upp úr heilagri ritningu. „Þetta er eiginlega fyrsta sýningin í sýningaröð sem heitir Ritskoðun/ Ritstuldur og þetta er í raun og veru bara svona rebelismi gagnvart kirkjunni,“ segir Þórgnýr, þegar hann reynir að lýsa sýningunni án óþarfa málalenginga. „Nýja testamentið liggur náttúr- lega best við höggi ef þú ert ekki sammála því að það eigi að vera ríkistrú,“ segir listamaðurinn og bætir við að hann taki setningar og orð beint upp úr ritningartext- anum, breyti og endurskrifi. „Þann- ig að sýningin heitir Nýjasta testa- mentið. Er þetta þá endurvinnsla eða kannski ný túlkun? „Já, það er alveg hægt að tala um þetta sem endurvinnslu. Þetta er náttúrlega unnið úr bókunum og blaðsíðunum þannig að ég eiginlega bara krota yfir og set inn það sem mér dettur í hug.“ Ár andskotans Þórgnýr gaf út sína fyrstu ljóðabók, Við lifum að eilífu þar til annað kemur í ljós, fyrir síðustu jól og opnaði sýningu sem byggði á henni í febrúar, rétt áður en farsóttin skall á af fullum þunga. Nýja sýningin er hins vegar opnuð við allt aðrar aðstæður í miðju veirufári en Þórgnýr lætur hvorki ástandið né þá staðreynd að vegna fjöldatakmarkana geti aðeins þrír gestir skoðað sýninguna í einu, slá sig út af laginu á „þessu and- skotans ári“ sem hann lýsti svo á Facebook um helgina: „Sumir hugsa kannski að nú sé allt að fara til helvítis. Hinsvegar má færa rök fyrir því að við séum nú þegar í helvíti, alveg eins og að töfraveröldin himnaríki sé til. En ef svo er þá verð ég að segja að ég hef það bara helvíti fínt.“ Þórgnýr segist í það minnsta ekki tilbúinn til þess að gefast upp fyrir COVID-19 alveg strax. „En hver veit? Maður klárar alla vegana þessa sýningu. Og jú, jú. Maður náttúrlega missti vinnuna, en þú veist, þá er bara tími fyrir annað, eins og þessar pælingar.“ Textinn heillar Þórgnýr lærði kvikmyndagerð og þreytti sem fyrr segir frumraun sína sem ljóðskáld í fyrra og segist „nú bara eitthvað svona“ vera að fikra sig áfram í listinni þar sem hann vinni aðallega með textaverk. „Sem er dálítið heillandi.“ Hann segir Nýjasta testamentið í raun og veru vera textaverk. „Þetta er skrifað á ritvél sem heitir Erica frá 1954. Hún var keypt úr einhverju dánarbúi úr Kolaportinu núna í vetur,“ segir listamaðurinn, sem hefur þurft að styðjast við nútíma- tækni í glímunni við hinn forna texta með 20. aldar tækjakosti. „Maður er búinn að vera að læra núna að þræða þetta blessaða band. Það slitnaði áðan og það tók svona einn og hálfan klukkutíma að fara í gegnum það á YouTube,“ segir Þór- gnýr og prísar sig sælan að borðinn sem fylgdi ritvélinni hafi verið nógu langur „þarna þannig að það var hægt að þræða þetta upp á nýtt“. Fjórði maðurinn Þórgnýr opnar sýninguna í Vonleysi við Ingólfsstræti 6 klukkan 16 í dag og þar sem hann verður viðstaddur, og í raun hluti af sýningunni, verður hann fjórði maðurinn á meðan á henni stendur, þar sem rýmið þolir aðeins þrjá gesti í senn. „Þetta er alveg nýtt rými þarna á Ingólfsstrætinu og er það þröngt. Ég held að þetta séu 25 fermetrar eða eitthvað álíka,“ segir hann og bendir á að undir 2 metra reglunni fyllist f ljótt upp í það pláss. „Það verða hanskar og spritt. Ég held að það verði grímur líka. Ég verð að spyrja liðið að því,“ segir Þórgnýr, sem óttast þó ekki langar biðraðir. „Sýningin verður náttúr- lega í tvær vikur þannig að fólk hefur nú svo sem alveg nægan tíma og ég verð þarna allan tímann sem fjórði maðurinn. Þá sit ég þarna enn þá með ritvélina mína og verð eitthvað að ritskoða þetta Nýjasta testamenti, þannig að ég verð alveg að vinna í sýningunni á meðan hún er í gangi. Ég held að það sé bara partur af sýningunni að ég sé þarna og síðan á maður örugglega eftir að eiga ein- hverjar samræður við fólk og ég veit ekki. Kannski breytist eitthvað þá,“ segir Þórgnýr um sýninguna sem verður í stöðugri þróun á þessu and- skotans ári. toti@frettabladid.is. Vélritar á ritninguna með þremur vottum Þórgnýr Inguson vélritar yfir ritningartexta og lætur það ekki slá sig út af laginu að aðeins þrír í einu geti skoðað afraksturinn á annarri sýningunni sem hann heldur á „þessu andskotans ári“. Þórgnýr með ritvélina sem dugir vel til þess að endurrita, ritskoða og stela úr ritningunni svo lengi sem sjaldgæfur blekborðinn heldur. Aðeins þrír í einu geta síðan skoðað afraksturinn á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.