Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.09.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 12.09.2020, Qupperneq 10
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Burtséð frá því hver situr í stóli forseta hverju sinni á bandaríska þjóðin allt undir því að traust ríki í samskiptum hans við þjóð sína. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Mín skoðun Lára G. Sigurðardóttir Ég er klappstýra bandarísku þjóðarinnar, sagði Donald Trump í framhaldi af því að í einu af fjölmörgum nýlegum samtölum sínum við fjölmiðlamanninn Bob Wood­ward hafði hann gert lítið úr þeirri vá sem að Bandaríkjunum steðjaði af heims­ faraldri. Það lá að. Mörgum var þetta hlutverk forsetans ljóst áður en hann lýsti því sjálfur svo. Þetta samtal átti sér stað í mars og af því sem spilað hefur verið af upptökum samtalanna er ljóst að forset­ inn gerði sér grein fyrir alvarleika máls. „Hún er bráð­ drepandi,“ sagði Trump í öðru samtali við Woodward. Aðeins þyrfti að draga andann til að smitast. Örfáum dögum eftir þetta samtal sagði forsetinn í fjölmiðlum vestanhafs að allt væri með felldu, aðeins ellefu tilvik hefðu greinst og þeir myndu jafna sig fljótt. Allt væri þar undir styrkri stjórn. En hafi hann vísvitandi tónað niður þá hættu sem að steðjaði og hafi hann gert sér grein fyrir hvað var í aðsigi er ljóst að hann brást þjóð sinni gersamlega í málinu. Aukinheldur blasir við að gagnrýni hans á Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina er falskur tónn. Þar sagði hann að viðbrögð stofnunarinnar væru verulega ámælisverð og allt of seint hefði verið varað við alvar­ leika faraldursins í upphafi. Trump bætti svo um betur og beitti vopninu sem honum er tamast, peningum, og skrúfaði fyrir fjár­ veit ingar til stofnunarinnar. Þó heimsfaraldurinn sé áberandi meðal verkefna þeirrar stofnunar er list inn af bráðáríðandi verkefnum langur. Sum eru þau bund­ in við tiltekna heimshluta og önnur varða heim inn all an. Þó forsetanum sé í sjálfsvald sett hvert pen ing ar Bandaríkjamanna renna, þarf að hafa mikilvægi stofn ­ unarinnar í heilsufari jarðarbúa í huga. Markverðast er þó að Bandaríkin hafa um langa hríð talið sig lögreglu heimsins og hafa ekki dregið af sér við að koma á röð og reglu, að eigin mati, nær og fjær. Burtséð frá því hver situr í stóli forseta hverju sinni á bandaríska þjóðin allt undir því að traust ríki í samskipt­ um hans við þjóð sína. Að draga úr alvarleika að steðj andi ógnar og jafnvel tala sér þvert um geð í því sam bandi, er ekki fallið til að styrkja það traust. Öðru nær. Einhverjir munu halda því fram að ákvörðun Wood ­ wards um að birta samtölin sé af pólitískum toga. Sannarlega styttist nú mjög í forsetakosningar þar vestra og um bráðeldfimt mál að ræða, þar sem ekk ert á síðari tímum hefur gert Bandaríkjunum meiri skrá­ veifu en faraldurinn. En forsetinn verður sjálfur að bera hallann af því að hafa farið svona að ráði sínu. Og Woodward er vor k unn að þurfa að burðast með upplýsingar sem þess ar án þess að aðhafast. Hálft ár er frá því samtalið átti sér stað og það er langur tími. Um þetta verður deilt og ekki ólíklegt að sú deila verði meira áberandi en það sem á milli þeirra Trumps og Woodwards fór. Það skiptir ekki máli, heldur sú staðreynd að forsetinn laug að þjóð sinni og heiminum öllum. Klappstýran í Hvíta húsinu ætti að finna sér eitthvað annað að gera. Klappstýran Sumarið 1994 barst mér langlínusímtal á afskekkt­an sveitabæ á Ítalíu. Hinum megin á línunni var móðir mín sem hafði um hönd bréf frá Krabba­ meinsfélaginu. Fundist höfðu frumubreytingar á háu stigi og ég hvött til að hafa samband. Á hverju ári fá um 300 konur sams konar bréf. Sá sem stendur á verðinum Kynni mín af Krabbameinsfélaginu eru ekki einungis sem skjólstæðingur heldur vann ég þar í mörg ár við hópleit, rannsóknir og forvarnir. Það vakti athygli mína á sínum tíma hve þangað hafði valist faglegt fólk með fallegt hjartalag og ástríðu fyrir starfi sínu. Fólkið á bak við Krabbameinsfélagið hefur unnið brautryðjendastarf, beitt yfirvöld þrýstingi og safnaði fé í baráttunni gegn krabbameinum, sem við hin njótum góðs af. Það að dánartíðni af völdum legháls­ krabbameins hafi lækkað um 83% síðan leit hófst árið 1964, segir meira en mörg orð. Mikilvægt er að átta sig á að krabbameinsleit er sjaldnast 100% örugg. Ef skimunarpróf finnur níu af hverjum tíu sem eru með sjúkdóminn sem leitað er að, þá telst slíkt próf gott. Með leghálskrabbameinsleit má finna flesta með sjúkdóminn eða oftar, forstig af honum. Hún mun ekki finna alla. Í ljósi þess hvað félagið hefur unnið dýrmætt starf í gegnum árin og hjálpað mörgum, þá er áhugavert hversu fáir voru til stuðnings í ásökunarstorminum sem yfir það gekk nýlega. Vissulega eru mistökin alvarleg og af leiðingarnar þungbærar, en eru „krossfesting og jarðarför félagsins“ makleg mála­ gjöld? Varúlfarnir Landlæknir sagði í sjónvarpsfréttum að rannsókn á því hvað hefði nákvæmlega farið úrskeiðis væri ólokið og hvatti fólk til að bíða með að mynda sér skoðun. Alltaf skal þó vera fólk sem myndar sér skoðun undir eins. Fólk sem bíður eins og varúlfar, tilbúið að hakka í sig hjörtu þeirra sem misstíga sig. Ekkert rétt­ lætir mistök í huga varúlfsins. En mistök verða ekki aftur tekin með því að rífa aðra í sig. Winston Churchill á að hafa sagt að allir menn geri mistök, en einungis hinir vitru læra af þeim. Það sem hér skiptir máli er einmitt að tryggja að sömu mistökin endurtaki sig ekki, ásamt því að hjálpa og styðja við þær konur sem fengu ranga greiningu. Að skoða allar hliðar Varúlfarnir eru holdgervingar lastanna hroka og ofsa­ reiði. Með bræði sinni taka þeir sér bessaleyfi til að kveða dóm um hvaða refsing er viðeigandi. Hrokann hafa þeir öðlast á lífstíð sinni en reiðin er þeim eðlis­ læg. Reiði er nefnilega ein af grunntilfinningum okkar sem kallar fram sömu svipbrigði óháð landamærum. Það er hvernig varúlfarnir beita reiði sinni, sem aðskilur þá frá öðrum. Sálfræðingurinn Daniel Coleman, segir að þegar reiði heltekur hugann hverfi getan til setja sig í spor annarra og sjá stóra samhengið. Varúlfurinn sér þannig bara sína hlið. Ef hann ætlar að dempa reiðina þá þarf hann að lifa sig inn í hlutverk allra sem í hlut eiga. Það er honum kannski fyrir bestu. Því þegar reiði brýst út eykst nefnilega hætta á hjartaáfalli og heilablóðfalli lítillega. Dyggðir Aristótelesar Varúlfarnir verða víst áfram víða og teymast af löstum sínum. Gríski heimspekingurinn Aristóteles, trúði því að við mennirnir ættum að láta dyggðir lýsa veg sálarinnar. Að æðsta dyggðin væri vitsmunaleg ígrundun, en aðrar góðar dyggðir væru sanngirni, vin­ semd og að hafa stjórn á skapi sínu. En það eru einmitt dyggðir góðra manna sem gera samfélagið að stað sem mann langar að kalla „heima.“ Eftir barnfóstruævintýrið á Ítalíu var meinið fjar­ lægt hratt og örugglega. Krabbameinsfélaginu er ég ævinlega þakklát. Æðsta dyggðin 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.