Fréttablaðið - 12.09.2020, Qupperneq 30
Þessar myndir eru
þess vegna mikið
fágæti og dýrmætt að fá
þennan glugga inn í for-
tíðina.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Ragnheiður Brynjólfsdóttir er þjónustufulltrúi hjá Hveragerðisbæ og hefur mikinn
áhuga á mótorkross, líkamsrækt
og útivist. Ragnheiður kynntist
Adapt Energy Boost fyrir nokkrum
mánuðum og segir ávinninginn
hafa verið gríðarlegan.
„Ég heyrði af vörunni í gegnum
samstarfskonu og langaði að prófa.
Ég hef núna tekið Adapt Energy
Boost í fjóra mánuði og finnst það
ómissandi. Ég hef jafnari orku yfir
daginn og líður almennt betur
og á auðveldara með að vakna á
morgnana. Ég kem meiru í verk
og er full orku í vinnunni og til að
stunda áhugamálin af krafti.“
Reynsla Ragnhildar hefur verið
svo árangursrík og heilsubætandi
að hún er búin að smita út frá sér
og er Adapt Energy Boost nú orðið
órjúfanlegur hluti af heimilislífi
hennar. „Við fjölskyldan tökum
þetta öll. Sonur minn sem er þrett
án ára tekur eina töflu í kringum
Mótorkrosskeppnir og þegar það
er mikið æfingaálag.“
Heldur mér á floti
Margrét Jóna Bjarnadóttir starfar
sem launafulltrúi
hjá Hveragerðisbæ
og kann best við sig
á hreyfingu utan
dyra. „Ég hef mikinn
áhuga á öllu sem við
kemur golfi, göngum,
skíðum og allri úti
veru.“
Kynni hennar af
Adapt Energy Boost
voru fyrir hálfgerða tilviljun. „Ég
rakst á þetta í apótekinu, ákvað að
prófa og heillaðist strax.“
Margrét segir Adapt Energy
Boost hafa haft veruleg áhrif á
orku og einbeitingu sem hefur
reynst henni vel í vinnu sem og
utan vinnu. „Ég tek Adapt Energy
Boost til að hafa orku í vinnu
daginn og eftir hann allt það
skemmtilega sem mig langar að
gera. Ég fann mikinn mun á mér
eftir fyrstu
skiptin þar sem
mér fannst ein
beiting aukast
til muna og
úthald vera svo
mikið meira.“
Þegar Mar
grét byrjaði að
taka inn Adapt
Energy Boost
var hún búin að vera að upplifa
orkuleysi. Munurinn hefur verið
hreint út sagt ótrúlegur. „Ég fór að
taka þetta á þeim tímapunkti sem
ég hafði ekki næga orku í vinnu
daginn og hvað þá eitthvert sport
eftir vinnudaginn. Ég fann strax
mikinn mun og þá sérstaklega
á andlegu hliðinni, fannst ein
beitingin mikið betri, fókusinn
mikið skýrari og eins svaf ég mikið
betur.“
Þá hefur Adapt Energy Boost
gert Margréti kleift að takast enn
betur á við streitu og álag. „Einn
ig finn ég mikinn mun á streitu,
þetta slær á óþarfa streitufaktora.“
Eftir að hafa tekið pásu frá Adapt
Energy Boost áttaði Margrét sig svo
enn frekar á því hversu öflug varan
er. „Um leið og ég tók frí frá þessu
þá fann ég mjög fljótlega hvað
einbeitingin fór út um gluggann.
Ég tek þetta jafn reglulega þessa
dagana og önnur vítamín.“
Margrét hvetur aðra til að prófa.
„Ég get ekki hætt að mæla
með þessum töflum í
daglegu amstri, þær
halda mér algjörlega á
f loti. Venjulega hef ég
ekki verið ginnkeypt
fyrir svona töflum en
þessar virka 100%.“
Sjá nánar á raritet.is
Meiri orka og minni streita
Adapt Energy Boost er sérstaklega hannað til að auka orku, bæta einbeitingu, draga úr þreytu og
auka þol gegn streitu. Varan hefur hlotið frábærar undirtektir og er þegar mörgum ómissandi.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir er hæstánægð og hefur
meiri orku með Adapt Energy Boost. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Margrét Jóna Bjarnadóttir segir Adapt Energy Boost
einfaldlega virka 100%. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sérhæfð blanda byggð á
áratuga rannsóknum
Adapt Energy Boost er sér
hönnuð vara fyrir þá sem þurfa
á auka orku að halda í dagsins
önn og hjálpar til við að draga úr
streitu, auka framtakssemi og
koma jafnvægi á hugann. Hún
inniheldur adaptogen jurtirnar
burnirót, schisandra, síberíugins
eng og að auki Bvítamín.
Adaptogen hafa ýmsa eigin
leika, eins og að auka líkam
lega og andlega orku og þrek,
vinna gegn áhrifum svefnleysis,
vernda heila og taugakerfi (sem
meðal annars bætir minni og
skynjun) og draga úr kvíða og
streitu. Á meðan orkudrykkir og
kaffi gefa tímabundna orku eru
áhrifin af adaptogenum jafnari
og þau auka árangur og vara
lengur.
Adapt Energy Boost hjálpar til
við að halda jafnvægi á kortisóli
og stuðlar að betri svefni
og minni þreytu. Langtíma
ójafnvægi eða of hátt magn af
kortisóli í blóði er óæskilegt
og getur t.d. valdið þreytu,
streitu og svefnleysi.
Klínískar rannsóknir
benda sterklega til þess
að Adapt Energy Boost
geti hjálpað líkam
anum með því að auka
orku, bæta árangur og
auka afköst í starfi, leik
og íþróttum.
Ég kem meiru í verk
og er full orku í
vinnunni og til að
stunda áhugamálin af
krafti.
Útsölustaðir
Apótekarinn,
Apótek Suðurnesja,
Apótek Vesturlands,
Hafnarfjarðar apótek,
Heilsuver, Lyf og heilsa,
Lyfjaver, Lyfjaval, Lyfsalinn
og Reykjanesapótek.
Sýningarnar bera yfirskriftirnar Teiknað fyrir þjóðina, Myndheimur Halldórs
Péturssonar og Tónlist, dans og
tíska en Þjóðminjasafnið býður
gestum ókeypis aðgang í dag á
fyrsta degi þeirra.
„Halldór Pétursson, einn
þekktasti teiknari þjóðarinnar
á 20. öld og Vigfús Sigurgeirsson,
landsfrægur ljósmyndari og kvik
myndagerðarmaður. Ungt fólk
í dag þekkir kannski ekki verk
þessara manna og það er kjörið
að kynnast tveimur frábærum
fagmönnum í einni safnaheim
sókn,“ segir Linda Ásdísardóttir,
sérfræðingur hjá Þjóðminjasafni
Íslands.
Á blómatíma Halldórs sem
teygði sig yfir marga áratugi
voru verk hans alltumlykjandi í
íslensku samfélagi. Langlífasta
verk hans er sennilega teikningar
við kvæði Vísnabókarinnar sem
kom fyrst út árið 1946. Á þessari
yfirlitssýningu á verkum Halldórs
eru sýndar teikningar, skissur og
fullunnin verk hans frá barnæsku
til æviloka.
„Sýningin er stútfull af fáséðu
efni bæði úr safneign Þjóðminja
safnsins en líka efni sem er fengið
að láni frá ólíkum stofnunum
sem sýningarstjórinn, Unnar
Skyggnst inn í liðna tíma
Tvær sýningar verða opnaðar í Þjóðminjasafninu í dag. Önnur á teikningum Halldórs Péturssonar
og hin á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar. Þjóðminjasafnið býður gestum frían aðgang í dag.
Á sýningunni
eru teikn-
ingar og skissur
eftir Halldór frá
barnæsku til
æviloka.
Ljósmyndirnar
eftir Vigfús eru
fágætur gluggi
inn í fortíðina á
Íslandi.
Örn, hefur fundið. Skissur af
myndskreytingu, peningaseðlar,
frímerki og myndir úr frægum
barnabókum eru til dæmis gott
dæmi um það. Sjón er sögu ríkari,“
segir Linda.
Árið 2017 færðu börn Halldórs
Þjóðminjasafninu teikningar
föður síns til varðveislu. Linda
segir einstakt fyrir safnið að fá að
varðveita þennan stóra hluta af
myndasafni Halldórs.
Á sýningunni Tónlist, dans og
tíska kemur andrúm menningar
lífsins í Reykjavík sterkt fram í
sérvöldum ljósmyndum Vigfúsar
Sigurgeirssonar ljósmyndara frá
árum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Þarna má greina erlenda strauma
í íslenskri menningu og skemmt
analífi og sviðsmyndin fær á sig
heimsborgarablæ.
„Myndirnar eru allar teknar á
árunum 19381944, sumar á Hótel
Borg og annars staðar á vettvangi
listamanna bæði í útvarpssal, Iðnó
og Gamla bíó, en einhverjar líka á
ljósmyndastofu,“ útskýrir Linda.
Hún segir ekki mikið til af við
líka efni frá þessum árum um og
eftir stríð enda bauð ljósmynda
tæknin ekki upp á miklar mynda
tökur innanhúss í salarkynnum
skemmtistaða.
„Þessar myndir eru þess vegna
mikið fágæti og dýrmætt að fá
þennan glugga inn í fortíðina, þær
gefa okkur líka aðra og glæsilegri
sýn á veröld langömmu og afa.
Það er sonur Vigfúsar ljósmynd
ara, Gunnar Geir, sem kom með
þessar myndir til okkar og Ívar
vann meira með það efni, en þeir
tveir eru sýningarhöfundar,“ segir
Linda.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R