Fréttablaðið - 12.09.2020, Qupperneq 32
Hjá Bauhaus erum við alltaf með viðskiptavininn í fyrsta sæti þar sem markmiðið er að
veita framúrskarandi þjónustu. Við leitumst ávallt við að bæta þjónustu okkar og leitum
nú að kröftugu starfsfólki til að slást í hópinn.
Bauhaus er vaxandi fyrirtæki í verslun og þjónustu á Íslandi og leggur sig fram
við að skapa öruggt og gott umhverfi fyrir starfsfólkið. Ef þú ert með létta lund
og hraðar hendur skaltu endilega hafa samband.
Við leitum að fólki í:
• Deildarstjóra í ljósa, rafmagns og málningardeild
• Útstillingar í verslun
• Sölu- og afgreiðslu í timburverslun
• Afgreiðslu um helgar
BAUHAUS ÓSKAR EFTIR
STARFSFÓLKI
BAUHAUS er ein af stærstu
verslunarkeðjum á byggingasviði í
Evrópu og og rekur hátt í 300 verslanir
í yfir 20 löndum. Hjá BAUHAUS er
viðskiptavinurinn alltaf í öndvegi,
stjórnendur eru virkir og hvetja sitt fólk til
dáða.
Opnunartími BAUHAUS er frá kl. 8-19
virka daga og 10-18 um helgar.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til 23. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
JT Verk leitar að öflugum verkefnastjóra til þess að hafa umsjón með framkvæmdum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Með umsókn um starfið þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
VERKEFNASTJÓRI
BYGGINGARFRAMKVÆMDA
Starfssvið og ábyrgð:
• Almenn stjórnun verkefna og framkvæmda
• Samningagerð við verkkaupa, birgja og
undirverktaka
• Hönnunarstjórn
• Gerð og eftirfylgni kostnaðar- og
verkáætlana
• Rekstur gæða- og öryggismála í verkefnum
• Þátttaka í að móta ungt fyrirtæki til vaxtar
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði verkfræði eða tæknifræði
• Lausnamiðuð hugsun og góð hæfni í
mannlegum samskiptum og teymisvinnu
• Frumkvæði, jákvæðni, heiðarleiki og metnaður í
starfi
• Mjög góð tölvukunnátta er skilyrði
• Reynsla af sambærilegu starfi hjá verktaka er
kostur
• Færni í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Kunnátta í fleiri tungumálum er kostur
Um JT Verk
JT Verk var stofnað árið 2017 með það
að markmiði að vera leiðandi alhliða
ráðgjafafyrirtæki í framkvæmdageiranum.
Starfsfólk JT Verks býr yfir mikilli reynslu
úr framkvæmdageiranum, eins hafa
margir þeirra gegnt lykilstöðum í stjórnun
ýmissa stærri verkefna í gegnum tíðina.
JT Verk veitir sérhæfða þjónustu á sviði
verkefnastjórnunar, umsjónar, eftirlits og
almennrar ráðgjafar með framkvæmdum
í byggingariðnaði. Sérstaða JT Verks
felst í sérhæfingu í stjórnun, stýringu og
eftirliti með framkvæmdar verkefnum.
JT Verk tekur ekki að sér hönnun, en
stýrir hönnunarferlinu. Þannig veitum við
faglega og óháða ráðgjöf í verkefnum án
hagsmunaárekstra.
www.jtverk.is
Nánari upplýsingar veitir
Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is
Umsóknafrestur er til 25. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is