Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 36
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti
og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti
og tengd mál. Hjá PFS starfa 30 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, við-
skiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Uppbygging á aðferðarfræði eftirlits með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviði
og fjarskiptafyrirtækja.
• Framkvæmd úttekta á öryggisskipulagi aðila og gerð prófana á grundvelli fjarskiptalaga
og NIS-laga.
• Rannsókn á alvarlegum atvikum (netárásum) sem verða í net- og upplýsingakerfum
eftirlitsskyldra aðila.
• Þátttaka í uppbyggingu á samhæfingarhlutverki PFS og samvinna við önnur eftirlitsstjórnvöld
við framkvæmd eftirlits.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða
sambærilegu.
• Reynsla á sviði öryggismála net- og upplýsingakerfa, t.a.m. framkvæmd prófana og/eða
úttekta, svo sem á grundvelli staðla, er kostur.
• Þekking á stafrænum innviðum og stafrænni þjónustustarfsemi er kostur.
• Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa
yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi.
• Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum.
• Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og í rituðu máli, er áskilin.
Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings við eftirlit með öryggi
net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og fjarskiptafyrirtækja
Póst- og fjarskiptastofnun hefur eftirlit með net- og upplýsingaöryggi fjarskiptafyrirtækja, stafrænna grunnvirkja og veitenda stafrænnar þjónustu í samræmi við fjarskiptalög og ný lög um
öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (NIS-laga). Þá gegnir stofnunin ráðgefandi samhæfingarhlutverki gagnvart öðrum eftirlitsstjórnvöldum í því skyni að stuðla að sam-
ræmdri framkvæmd eftirlits á sviði netöryggis.
PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk. Umsjón með starfinu hefur Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, fagstjóri samhæfingar net- og upplýsingaöryggis, tölvupóstur: unnur@pfs.is.
Umsóknir óskast fylltar út á Starfatorgi.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs.
Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Ískraft er rafiðnaðarheildsala og leiðandi á því sviði á íslenskum markaði. Fyrirtækið hefur starfað
síðan 1975. Ískraft rekur 4 starfsstöðvar, í Kópavogi, Akureyri, Selfossi og Reykjanesbæ.
Nánari upplýsingar á iskraft.is.
.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Hvetjum alla áhugasama til að sækja um óháð kyni. Umsóknarfrestur er til 15. september.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Stefánsson, framkvæmdastjóri Ískraft, brynjar@iskraft.is. Sótt er um starfið á ráðningarvef Ískrafts,
https://www.iskraft.is/um-okkur/laus-storf/
Sölustjóri ÍSKRAFT
Sölustjóri er ábyrgur fyrir þjónustu og sölu á vörum fyrirtækisins til rafverktaka. Eftirsóknarvert er að fá til liðs við okkur
söludrifinn leiðtoga sem er tilbúinn að leggja sitt af mörkum við að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.
Lögð er rík áhersla á jákvæð samskipti og samvinnu ásamt því að viðkomandi falli vel að góðri liðsheild fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
• Stjórnun og skipulag á sölustarfi til rafvirkja og verktaka
• Þjónusta og samskipti við núverandi viðskiptavini
• Öflun nýrra viðskiptasambanda
• Samninga- og tilboðsgerð
• Umsjón með útibúum á Selfossi og Reykjanesbæ
• Umsjón með verslun á Smiðjuvegi
• Þjálfun söluteymis
• Gerð söluáætlana og eftirfylgni þeirra í samráði við framkvæmdastjóra
Menntunar og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í rafvirkjun, rafiðnfræði eða rafmagnstæknifræði er skilyrði
• Mikil tengsl og þekking á rafverktakamarkaðinum
• Hæfni til að greina tækifæri á markaði
• Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfileikar
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Þekking á CRM og notkun slíkra kerfa
• Reynsla af sölustjórnun og mannaforráðum
• Góð almenn tölvukunnátta
iskraft.is
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR