Fréttablaðið - 12.09.2020, Side 72

Fréttablaðið - 12.09.2020, Side 72
VEÐUR MYNDASÖGUR Norðlæg átt í dag, 8-15 m/s, en austlægari syðst, hvassast NV til. Lítilsháttar væta eða skúrir. Hiti 3 til 12 stig, svalast á Vestfjörðum. Frystir sums staðar fyrir norðan í kvöld. Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Pondus Eftir Frode Øverli We’re baaaaaack! Og vitið þetta, wankers! There’s only one United! Leeds United! Hahahahahahahaha! Verður tímabilið virkilega svona? Þetta verður bara verra! Þú átt eftir að óska þess að United falli! Man­ chester United! Ætlarðu ekki að segja neitt? Um hvað? Nýja pinnann minn! Hann er þarna! Slakaðu á, gaur... ég á kærustu fyrir svona augnablik. Ég hélt þú værir úti með Lóu? Jamm. Ég skildi hana eftir í rólunni. Ég veit. Hannes! Hún er ekki nógu stór til að sitja sjálf í rólunni! Þar kom límbandið sér vel. Kröns! Kröns! Smjatt! Smjatt! Viltu slást í hópinn? Vetrarstarfið Karlakór Reykjavíkur leitar að liðsauka og framundan eru raddpróf fyrir áhugasama söngmenn. Við prófum raddsvið og tónheyrn og finnst það kostur ef þú býrð yfir kunnáttu í tónlist og nótnalestri, sem þó er ekki skilyrði. Ef þú hefur áhuga á að spreyta þig, ert fimmtugur eða yngri, skaltu senda okkur línu á netfangið kor@kkor.is fyrir 16. september næstkomandi og við höfum samband við þig um hæl. Karlakórs Reykjavíkur stefnir að því að halda úti venjulegu starfi eins og kostur er á þessum fordæmalausu tímum. Hefðbundið starfsár einkennist af tveimur hápunktum; annars vegar árlegum aðventutónleikum í Hallgrímskirkju, sem í ár fara fram dagana 12. og 13. desember og hins vegar vortónleikum í Langholtskirkju þar sem afrakstur vetrarstarfsins er lagður fram. Að þeim loknum gleðjast kórfélagar og makar þeirra yfir liðnum vetri og fagna vorkomu. Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 1926 og hefur starfað samfleytt síðan. Kórinn býður upp á krefjandi og skemmtileg viðfangsefni í tónlist og skemmtilegt félagsstarf í góðum félagsskap. Söngferðir til útlanda eru farnar reglulega auk þess sem byggðir landsins eru heimsóttar til tónleikahalds. Kórinn æfir alla þriðjudaga og annan hvern fimmtudag, tvo tíma í senn, og fara æfingar fram í safnaðarheimili Háteigskirkju. HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU – MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Íslendingar lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali.* Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst á orn@frettabladid.is. Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. 93.000 *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.