Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 82

Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 82
VIÐ VERÐUM MEÐ SÉRVALDAR SÝNINGAR Í BÍÓ PARADÍS OG NORRÆNA HÚSINU EN EINNIG GETA GESTIR FARIÐ Í BÍÓ Á NETINU. ÞETTA ÞÝÐIR AÐ FÓLK UM LAND ALLT, FRÁ AKRANESI TIL RAUFAR- HAFNAR, GETUR NOTIÐ ÞESS AÐ HORFA Á GÆÐAKVIKMYNDIR HEIMA FYRIR. Sviti/Sweat Magnus von Horn Nýjasta myndin úr smiðju sænska leikstjórans Magnus von Horn. Mynd hans The Here After keppti í Vitranaflokki RIFF árið 2015 og hefur verið sýnd á fjölda kvikmyndahátíða og seld til til ótal landa. Myndin gefur innsýn í líf áhrifavaldsins Sylwia Zajac sem hefur öðlast mikla frægð og frama á sam- félagsmiðlum, en er þó í raun ein í heiminum. Við stjórnvölinn/ A L'abordage Guillaume Brac Gaman- mynd úr smiðju leikstjórans Guillaume Brac. Myndin var heims- frumsýnd á kvik- myndahá- tíðinni í Berlín í vetur þar sem hún hlaut FIPRESCI verðlaun alþjóðlegra samtaka kvik- myndagagnrýnenda. Hér segir af Félix sem ákveður að elta sálufélaga sinn þvert yfir Frakk- land, en í kjölfarið fer af stað grátbrosleg atburðarás þar sem margt úr fer skorðum. Spreng- hlægileg mynd um samskipti og ástir unga fólksins. Hunskastu út/ Get The Hell Out Wang I-Fan Hér er á ferðinni alvöru hryll- ingsmynd í anda COVID-19, um mann sem reynist sá eini á vinnustað sínum sem er ónæmur fyrir banvænum vírus er breytir fólki í uppvakninga. Myndin kemur hingað frá heimsfrumsýningu á Toronto- kvikmyndahátíðinni, einni stærstu hátíð í heimi, en þetta er fyrsta kvikmynd leikstjórans Wang I-Fan í fullri lengd. Hatrið/ A Song called Hate Anna Hildur Hildibrandsdóttir Hatrið verður frumsýnd í Bíó Paradís 25. september. Myndin fjallar um ferðalag hljóm- sveitarinnar Hatara um króka og kima Eurovision, Ísraels- ríkis og Palestínu. Í myndinni er fylgst með togstreitunni og spurningunum sem vöknuðu á leiðinni og rætt við meðlimi sveitarinnar fyrir og eftir að tvö hundruð milljón manns sáu atriði hennar í sjónvarpi. Myndin gefur raunsæja innsýn í það hvernig Hatari tókst á við þetta gríðarstóra verkefni, sem oft gekk mjög nærri meðlimum sveitarinnar, og sýnir hvernig ferðalagið breytti hugsana- gangi þeirra og sýn á lífið. Það var aldrei spurning um hvort hátíðin yrði haldin, heldur hvern-ig,“ segir Laurent Jegu, verkefnastjóri sérvið-burða hjá RIFF, um aðdraganda hátíðarinnar í ár. „Það var vissulega áskorun en við höfum fundið mjög góðar lausnir og upp- götvað ný tækifæri í leiðinni.“ Meðal nýjunga á hátíðinni í ár verður eitt stærsta bílabíó sem haldið hefur verið hér á landi, á Granda, dagana 25.-28. september næstkomandi. Sýndar verða fjórar kvikmyndir, ein á dag, og á dag- skrá verður eitthvað við allra hæfi meðal annars heimildarmyndin Ég er Gréta / I am Greta sem fjallar um baráttukonuna Gretu Thunberg, og hryllingsmyndin Get the Hell Out. „Við sýnum einnig hina klassísku söngleikjamynd Hair, eða Hárið, með alvöru lifandi sýningu þar sem fólk er hvatt til að mæta í bún- ingum. Þá erum við með ýmislegt spennandi í bígerð til að skapa ekta stemningu. Þetta verður skemmti- legur viðburður sem fólk ætti ekki að missa af,“ segir Laurent. Bílabíó RIFF er haldið í samstarfi við Lúxor og hefst miðasala í næstu viku. Bíóbíllinn ræstur Önnur nýjung sem mun gleðja kvik- myndaunnendur á landsbyggðinni í ár verður hinn svokallaði Bíóbíll, sem mun fara hringinn í kringum landið viku áður en hátíðin hefst. „Þetta verður ekki ósvipað ísbíln- um,“ segir Laurent og bætir við að mjög ánægjulegt sé að vinna að undirbúningi með fulltrúum menn- ingarmiðstöðva um land allt sem séu einkar áhugasamir um fram- takið. Bíóbíllinn mun ferðast um landið og stoppa á sjö stöðum. Á daginn verður komið við í grunnskólum víða um land og vönduð, evrópsk stuttmyndadagskrá fyrir börn verð- ur í boði. Seinnipart verða sýndar í bílnum stuttmyndir sem tilnefndar hafa verið til Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna og um kvöldið verður sýning á hinni þekktu kvikmynd Lars von Trier, Dancer in the Dark.“ Nákvæmar dagsetningar Bíó- bílsins verða birtar á heimasíðu RIFF eftir helgi, en bíllinn mun heimsækja Hvammstanga, Dal- vík, Raufarhöfn, Egilsstaði, Höfn og Reykholt í Bláskógabyggð. Dag- skráin er unnin í samstarfi við Arc- tic Adventures, Xprent, List fyrir alla og menningarmiðstöðvar um land allt. Hátíðin í ár verður á margan hátt ólík síðari árum en gestum mun meðal annars bjóðast að fylgjast með hátíðinni að heiman. „Við verðum með sérvaldar sýningar í Bíó Paradís og Norræna húsinu en einnig geta gestir farið í bíó á netinu. Þetta þýðir að fólk um land allt, frá Akranesi til Raufar- hafnar, getur notið þess að horfa á gæðakvikmyndir heima fyrir og við erum mjög stolt af því,“ segir Laurent. Hægt verður að nálgast allar nán- ari upplýsingar á riff.is. arnartomas@frettabladid.is Bíóbíll og bílabíó Kvikmyndahátíðin RIFF hefst í sautjánda sinn þann 24. september næstkomandi. Laurent Jegu segir að áskoranir í kringum hátíðina hafi einnig leitt í ljós ýmis tækifæri, á borð við bílabíó á Granda. Laurent fyrir framan vegginn á Fiskislóð þar sem fjöldi kvikmynda verður sýndur í bílabíói. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Bíóbíllinn mun dúkka upp víðs vegar um landsbyggðina í næstu viku. Another Round Thomas Vinterberg Nýjasta kvikmynd hins þekkta leikstjóra Thomas Vinterberg sem var frumsýnd í Cannes og var frumsýnd í Toronto í vikunni með RIFF-aranum Mads Mikkel- sen í aðalhlutverki. Nokkrir lífsþreyttir kennarar ákveða að sannreyna þá kenningu að það bæti lífið og auki sköpunar- gáfuna að vera alltaf svolítið í því. Tilraunin byrjar ágætlega en fljótlega fer að halla undan fæti. Sirkusstjórinn/ Circus Director Helgi Felixson og Titti Johnson Myndin Sirkusstjórinn verður frumsýnd á RIFF. Áhugaverð mynd um sirkusstjórann Tilde Björfors, stjórnanda Circus Cirkör sem kom með nútíma- sirkuslistina til Svíþjóðar fyrir tveimur áratugum. Rauði þráður myndar- innar er sá hvað gerist ef við hættum að þora að taka áhættu í í lífinu og látum hræðsluna stjórna okkur. Skítapleis/Shithouse Cooper Raiff Hinn kornungi leikstjóri Cooper Raiff frá Dallas, Texas, gerði sér lítið fyrir og skrifaði, leikstýrði, klippti og lék í Skítapleisi, sinni fyrstu mynd í fullri lengd. Hér segir af Alex, einmana fyrsta árs nema í háskóla, sem dreymir um það eitt að flytjast nær fjöl- skyldu sinni. Honum hefur ekki tekist að fóta sig í háskólalífinu og hefur einangrað sig með öllu, en eitt kvöldið ákveður hann að slá til og fara í partí í hið alræmda Skítapleis háskóla- svæðisins. Hann eyðir nóttinni með Maggie, nemendafulltrúa heimavistarinnar, og verður hugfanginn af henni. Tilfinn- ingar hans eru hins vegar ekki endurgoldnar og Alex leitar örvæntingarfullur leiða til að ná athygli hennar. Svig/Slalom Charléne Favier Fyrsta mynd leikstjórans Char- léne Favier í fullri lengd kemur beint af kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hér segir af hinni 15 ára gömlu Lyz sem nýlega hefur hlotið skólavist í eftirsóttum skíðaskóla með það fyrir augum að gerast atvinnuskíðakona. Þar misnotar einn kennaranna vald sitt gagnvart Lyz en myndin þykir gefa óvenju raunsæja sýn á kynferðislegt ofbeldi í keppnisíþróttum. Favier hefur framleitt bæði stuttmyndir og heimildarmyndir og var mynd hennar Odol Gorro tilefnd til César-verðlaunanna 2020 sem besta stuttmyndin. 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R46 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.