Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 84

Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 84
Lífið í vikunni 06.09.20- 12.09.20 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is AF ÖLLUM VÖRUM* Í ÖLLUM DORMA VERSLUNUM Láttu drauminn rætast www.dorma.is SENDUM FRÍTT Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði TAX FREE Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði VERÐDÆ M I NATURE’S REST LUXURY heilsurúm með Classic botni 160 x 200 cm Nature’s Rest Luxury heilsudýna á Classic botni: Fullt verð: 99.900 kr. Aðeins 80.565 kr. * Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti og gildir á öllum vörum nema vörum frá Simba. Gildir ekki ofan á önnur tilboð eða af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma. LÝKUR Í DAG LAUGARDAG Þetta er ævisaga. Hún er skrifuð í framtíðinni, 2027,“ segir tónlistar­m aðu r i n n G u n n a r K r ist ma nnsson u m Úlfssögu en þessa fyrstu skáldsögu sína gefur hann út ýmist rafrænt eða á kilju eftir þeim leiðum sem netrisinn Amazon býður upp á. Sniðug hugmynd Gunnar segir aðspurður að hann hafi alltaf langað til að skrifa eitt­ hvað en frumforsendan sé að fá hugmynd að nógu sniðugri sögu. „Og mér finnst þessi dálítið sniðug, sko. Þannig að það var rosagaman bara að skrifa þetta og þótt ég segi sjálfur frá, þá er þetta bæði spenn­ andi og fyrst og fremst fyndið. Ég held ég geti algerlega lofað því að fólki leiðist ekki yfir þessu,“ segir höfundurinn afslappaður. „Og ég vil meina að efnistökin séu ansi frumleg og stór,“ heldur Gunn­ ar áfram og dregur fram ættar­ tengsl sögupersónunnar við Þriðja ríkis skúrka. „Við erum að tala um stóra kalla. Þannig að sagan er stór og hröð og ég held líka að það sé dálítið óvenjulegt að skálduð ævi­ saga sé skrifuð í framtíðinni,“ segir hann um verkið sem hann telur þannig falla utan skilgreininga á hefðbundnum bókmenntagreinum. Tvö vafasöm S Kápa bókarinnar skartar titlinum og nafni höfundar með gotnesku letri auk þess sem tvö alræmd og eldingarlaga S eru áberandi, þann­ ig að tengingin við Þriðja ríkið er augljós. „Já, ég held að það megi enn þá setja Hitler eða hakakross á bókar­ kápuna ef þú ert að fjalla um þetta,“ segir Gunnar og hlær þegar hann er spurður hvort honum þyki ekki á vorum viðkvæmu tímum fulldjarft að skreyta þessa frumraun sína jafn gildishlöðnum og eitruðum táknum. „Mér fannst bara einhvern veginn að það væri hægt að nota þennan möguleika sem grípur líka augað dálítið,“ bætir hann við og áréttar að þarna ráði samhengið vitaskuld úrslitum og öðru máli hefði gegnt ef bókin væri einhvers konar stefnu­ yfirlýsing eða tilraun til upphafn­ ingar nasismans. Flýtur áfram á Amazon Gunnar gefur bókina út sjálfur hjá Amazon.com þar sem hægt er að kaupa hana bæði sem raf bók eða prentaða í kilju. „Amazon sér um þetta þannig að ég er dálítið þar,“ segir höfundurinn sem selur einnig kiljur á Facebook­síðunni Úlfssaga, þar sem hann hvetur áhugasama til þess að hafa samband. „Ég kem henni til kaupenda með einum eða öðrum hætti eins f ljótt og hægt er. Endilega sendið mér skilaboð og ég skal svara fljótt og vel.“ Gunnar segist hafa ákveðið að stökkva á einfalda og þægilega útgáfuleið Amazon, eftir að hafa árangurslaust reynt við íslensk bókaforlög. „Ég sendi þetta á fjögur forlög og tvö af þeim svöruðu bara aldrei. Það var í raun og veru bara eitt sem tók þetta til nokkuð alvar­ legrar skoðunar, en ákvað að taka þetta ekki,“ segir Gunnar sem hefur þó meiri trú en svo á verki sínu en að láta þar við sitja. „Maður var búinn að leggja aðeins of mikla vinnu í þetta til þess,“ segir Gunnar, sem fann Úlfs­ sögu farveg hjá Amazon.com. toti@frettabladid.is Framtíðarvörn Úlfs Gunnar Kristmannsson hallaði sér að Amazon með sína fyrstu skáldsögu eftir að hafa reynt við íslenska útgefendur án árangurs. Höfundurinn og aðalpersónan ólust báðir upp á Akranesi í þá gömlu góðu daga þegar Skagamenn skoruðu enn mörkin. „Þetta er dálítil upprifjun á því hvernig þetta var á Skaganum á þessum tíma.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK TÆKLA COVID OG GYLLINÆÐ Björk Jakobsdóttir og Gunnar Helgason hafa sannreynt að sætin í Gaflaraleikhúsinu standast bæði sóttvarnakröfur og gyllinæð, þann- ig að eftir viku hefjast á ný sýningar á verðlaunaverkinu Mamma klikk. EDDA OG MURRAY Í FÓKUS Ljósmyndarinn Brynjar Snær Þrastarson hefur beint linsunni að íslensku listasenunni í rúman ára- tug þannig að það er af nógu að taka á yfirlitssýningu hans á Lauga- vegi 7. Hann hefur myndað þekkt fólk á listasenunni á Íslandi og átti eftirminnileg augnablik í Hörpu með Eddu Björgvins og gaman- leikaranum Bill Murray. ÁSTIN ÚR KLÁMINU Ástarsögur íslenskra karla eftir Maríu Lilju og Rósu Björk er komin út en subbulegar klámfantasíur þvældust fyrir þegar þær reyndu að fá karla til að opna hjörtu sín og tala um ástina. JARÐARFÖR Í BERLÍN Vinsælasta efni Sjónvarps Símans frá upphafi, þætt- irnir Jarðar- förin mín með Ladda í aðalhlut- verki, keppa til verðlauna á sjónvarpshátíð- inni Berlin Series Festival síðar í þessum mánuði. Hörður Rúnarsson hjá framleiðandanum Glassriver segir það mikinn heiður að vera að keppa í flokki með þáttum eins og Freud og Unorthodox. Varnarrit úr framtíðinni Úlfssaga er skálduð ævi- saga Skaga- mannsins Úlfs Tristans Hannibals- sonar og er skrifuð árið 2027. Úlfur á þýska móður sem flutti til landsins skömmu eftir síðari heimsstyrjöld til að flýja hörmungar í heimalandinu. Þegar í ljós kemur að skyld- menni hennar tóku sum hver virkan þátt í stríðsglæpum þriðja ríkisins fer líf Úlfs úr skorðum og hann dregst inn í ótrúlega atburðarás og verður heims- frægur á nokkuð vafasömum forsendum, þannig að bókin er í senn ævisaga hans og varnarrit. 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.