Fréttablaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 2
Við erum búin að leggja gríðarlega mikla vinnu í endurreisn vistkerfisins. Ragnheiður Helga Jónsdóttir, formaður Veiði- félags Andakílsár Veður Rigning sunnan- og vestanlands eftir hádegi, en þykknar upp norðaustantil. Hiti 6 til 12 stig að deginum, en hiti 0 til 6 stig í nótt. SJÁ SÍÐU 16 opið alla daga kl. 12 – 20 Sólfarið skarti sínu fegursta Haustið er að skella á og því um að gera að klára síðustu sumarverkin. Í gær var lokið við að þrífa Sólfarið eftir Jón Gunnar Árnason, sem stendur við Sæbrautina. Sólfarið er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu, þó að ferðamennirnir séu fáir um þessar mundir þá fá þeir sem koma að sjá það skarta sínu fegursta. Er það nú vel pússað og má segja að það logi þegar sólin skín á það. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK UMHVERFISMÁL „Það er miklu og þungi fargi af okkur létt,“ segir Ragnheiður Helga Jónsdóttir, for- maður Veiðifélags Andakílsár, þar sem vel hefur tekist til við endur- reisn árinnar eftir gríðarlegt óhapp vorið 2017. Tilraunaveiðar þar í sumar gengu framúrskarandi vel. Áætlað er að fjögur til fimm þús- und rúmmetrar af seti hafi farið í Andakílsá er starfsmenn Orku náttúrunnar tæmdu inntakslón Andakílsvirkjunar 15. maí 2017. Fram kom á vef Landssambands veiðifélaga að magnið jafngilti átta til tíu þúsund tonnum af aur sem fyllt hafi alla hylji árinnar. „Við erum búin að leggja gríðar- lega mikla vinnu í endurreisn vist- kerfisins. Við höfum tekið klakfisk og alið seiði úr þessum sérstaka Andakílsárstofni,“ lýsir Ragnheiður. Miklu efni hafi verið mokað úr ánni eftir óhappið og veiðistaðir verið lagfærðir eins og hægt sé. Til tilraunaveiðanna voru fengnir menn sem gjörþekkja Andakílsá. „Þessir veiðimenn geta sagt okkur alveg nákvæmlega hvernig áin hefur breyst,“ útskýrir Ragnheiður. Að sögn Ragnheiðar er nú betur hægt að meta hvort laga megi þá veiðistaði sem hafa spillst. „Kannski getum við búið til einhverja aðra staði til að vega á móti,“ segir hún. Áin hafi komið mun betur út en veiðimennirnir hafi búist við. „Það eru allir ánægðir með hvernig hefur til tekist.“ Yfir 650 laxar veiddust í Anda- kílsá í sumar þann 61 dag sem veið- in stóð frá frá 15. júlí til dagsins í gær á aðeins eina stöng. „Þetta er lang- mesta veiði á stöng á dag á landinu að því er best ég veit,“ segir Ragn- heiður. Og miðað við tölur á vef Landssambands veiðifélaga kemst engin á í hálfkvisti við Andakílsá. Aðspurð, segir Ragnheiður, greiðir Orka náttúrunnar útlagaðan kostnað vegna endurreisnar Anda- kílsár. „Hins vegar hefur feiknarleg vinna lent á okkur í stjórn veiði- félagsins. Við höfum ekki fengið hana að öllu leyti borgaða en við höfum átt í mjög góðu samstarfi við ON. Þeir hafa staðið sig með prýði.“ Í gær voru þaulvanir menn úr árnefnd Andakílsár sem lokuðu veiðinni þetta sumarið. „Áin þolir veiði næsta sumar og það verður farið í sölu veiðileyfa, en við sjálf- sagt þrengjum reglurnar frá því sem áður var,“ segir Ragnheiður sem undirstrikar að ráðleggingum Hafrannsóknastofnunar hafi verið og verði fylgt í einu og öllu. gar@frettabladid.is Metveiði í Andakílsá í tilraunum sumarsins Eftir hamfarir af mannavöldum í maí 2017 sem eyðilögðu farveg Andakílsár í Borgarfirði hófst tilraun með laxveiði á stöng í ánni fyrir tveimur mánuðum. Veiðin sem lauk í gær skilaði hátt í sjö hundruð löxum á aðeins eina dagstöng. Árni Bragason við veiðar í veiðistaðnum 3½ í Andakílsá . FRÉTTABLAÐIÐ/SFÁ Sæmundur Freyr Árnason með lax. COVID-19 Tæplega sex hundruð fjölskyldur og einstaklingar á Stór- Reykjavíkursvæðinu hafa sótt um matargjafir til Fjölskylduhjálpar Íslands í vikunni. Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskyldu- hjálpar, segir að að baki þessum umsóknum séu 1.450 einstaklingar, þar með talinn fjöldi barna. Á tíma- bilinu frá 15. mars til 1. júlí á þessu ári afgreiddi Fjölskylduhjálp Íslands matargjafir til tæplega tvö þúsund heimila sem telja 3.446 einstaklinga. Þá fengu 888 heimili í Reykja- nesbæ afgreiddar matargjafir frá miðjum apríl fram til júlí á þessu ári og sjö hundruð heimili í júlí og ágúst. Að baki þessum heimilum voru rúmlega 400 börn. Vegna COVID-19 fara matarút- hlutanir Fjölskylduhjálpar fram með breyttu sniði. Þeir sem þurfa á hjálpinni að halda sækja um á vef Fjölskylduhjálpar og segir Ásgerður að úthlutunin sjálf muni fara fram alla vikuna og fram í þá næstu. – bdj Hundruð sækja um matargjafir FLUGLEIÐIR Icelandair Cargo mun frá og með næstu helgi hefja fraktflug á milli Heathrow-flugvallar í London og Boston með stoppi á Íslandi. Með því er bætt við leiðum við flugáætlun félagsins á fraktvélum. Með þessari ákvörðun er fyrir- tækið að sækja inn á nýjan, stóran markað. Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, segir að þetta sé spennandi skref í núverandi landslagi flugfyrirtækja. „Það hafa talsverðar breytingar átt sér stað í fraktflutningum. Um 60% af fraktflutningum fóru áður með farþegaf lugi en framboðið hefur snarminnkað og er því skortur á fraktplássi. Heathrow er stærsti farþegaf lugvöllur heims en hann er líka afar stór í fraktflutningum. British Airways var með fjögur til fimm flug daglega til Boston sem báru mikla frakt. Fyrir vikið sjáum við okkur leik á borði að fara inn á þennan markað. Við byrjum á einu flugi í viku en erum tilbúnir að bæta við flugum ef vel gengur.“ Gunnar tók undir að það væri nú verkefni f lugfélaga að finna sífellt nýja tekjumöguleika. „Verkefnið er að búa til eins miklar tekjur og hægt er í þessu litla tekjuumhverfi sem er í f lugi þessa dagana vegna COVID-19. Við sáum tækifæri til að sækja í stóran markað til viðbótar við þann fraktflutning sem við stunduðum áður.“ – kpt Icelandair hefur fraktflug yfir Atlantshafið Fyrsta fraktflugið er á dagskrá um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.