Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 4

Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 4
Vinnumálastofnun bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í ágúst. Ástráður Haraldsson hefur sóst eftir stöðu í Landsrétti oftast alla. FÉLAGSMÁL Samkvæmt sex mánaða uppgjöri Kópavogsbæjar er heima- þjónusta 26 milljónum króna undir fjárhagsáætlun og ferðaþjónusta fatlaðra er 28,8 milljónum króna undir áætlun. Hluti af heimaþjón- ustunni skýrist reyndar af verkfalli Ef lingar. Örvi, starfsþjálfun ein- staklinga með skerta starfsgetu, og Hæfing, vernduð vinna, hafa verið lokuð en tekjur haldið sér og er þetta því lækkun um 11,3 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins. Alls hafa því sparast 66 milljónir króna hjá velferðarsviðinu af því að þjónustan hefur ekki verið nýtt. 196 af 628 heimilum afþökkuðu heima- þjónustu, eða um 30 prósent. „Við viljum að heyrt verði í því fólki sem afþakkaði þjónustuna til að meta stöðuna upp á framtíðina, að geta sinnt fólki þó að það sé smit- hætta,“ segir Kristín Sævarsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í vel- ferðarráði. „Við heyrðum sögur af eldra fólki og fötluðu sem brotnaði niður andlega vegna einangrunar á meðan á hápunkti faraldursins stóð. Það eru ekki aðeins þrif eða akstur sem skipta máli, heldur að hitta annað fólk og eiga samskipti.“ Tillögunni um slíka könnun var hafnað af meirihluta Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for- maður Öryrkjabandalagsins, segir þetta langt frá að vera einsdæmi í Kópavogi, heldur eigi hið sama við um önnur sveitarfélög. Miklar upphæðir hafi sparast af því að þjónustan hafi ekki verið nýtt þegar faraldurinn stóð sem hæst í vor. Þuríður segir þetta tvíþætt. „Sveitarfélögin gátu eða vildu ekki senda heimaþjónustu til fólks og ekki heldur bílana, því það voru takmarkanir í gangi. Það dró veru- lega úr þjónustu við fatlað fólk á þessum tíma,“ segir hún. Þá segir hún að margir sem eiga rétt á þjón- ustunni hafi hafnað henni af ótta við veiruna. Þetta hafi til dæmis komið upp þegar Reykjavíkurborg reyndi að efla heimaþjónustu sína. Afleiðingarnar hafi verið þær að ákveðinn hópur einangraðist og átti mjög erfitt. „Fólk missti ferðafrelsi sitt, komst ekki í endurhæfingu eða sjúkraþjálfun því að þetta var allt lokað,“ segir Þuríður. „Við sáum að fólk var í miklum vanda, var dapurt, hrætt og öryggislaust, og sumir áttu í erfiðleikum með að verða sér úti um nauðsynjar.“ Fólk í áhættuhópum er enn þá varkárt og neitar sér um ýmislegt en ástandið hefur verið mun skárra í seinni bylgjunni. Ferðaþjónusta fatlaðra er komin aftur af stað, sjúkraþjálfun aftur komin í gang og lífið í eðlilegri rútínu. Þuríður hvetur sveitarfélögin til að nýta þá fjármuni sem ekki nýtt- ust í vor til að bæta þjónustu við fatlaða, til dæmis húsnæðisstuðn- ing. „Fátæktin í þessum hóp hefur aukist, sérstaklega hjá einstæðum fötluðum mæðrum.“ Kristín segir það sama. „Þetta fjármagn á klár- lega að haldast inni á velferðarsviði og ég treysti því að fé verði stór- aukið því við erum að halda inn í erfiðan vetur og fjöldinn eykst sem þarf á fjárhagsaðstoð að halda.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Tugmilljónir sparast vegna ónýttrar þjónustu í Kópavogi Kópavogsbær hefur sparað tugmilljónir króna á árinu vegna þess að velferðarþjónusta við fatlaða og aldraða hefur ekki verið nýtt, sérstaklega í vor í fyrri COVID-bylgjunni. Formaður Öryrkjabandalagsins segir Kópavog ekki einsdæmi og hvetur sveitarfélög landsins til að nýta féð og styrkja stöðu fatlaðra. Það eru ekki aðeins þrif eða akstur sem skipta máli, heldur að hitta annað fólk og eiga sam- skipti. Kristín Sævarsdóttir, fulltrúi í velferðarráði Kópavogs Samkvæmt skýrslunni hefur fólk ekki komist ferða sinna í faraldrinum og því ekki í endurhæfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNSÝSLA Ragnheiður Braga- dóttir, dómari við Landsrétt, og Jón Höskuldsson, dómstjóri Héraðs- dóms Reykjaness, verða skipuð í tvær lausar stöður dómara við Landsrétt. Með nýrri skipun Ragnheiðar hafa þrír af þeim fjórum dómurum sem ekki voru skipaðir í samræmi við lög, þegar dómurinn var settur á laggirnar í janúar 2018, fengið nýja skipun við dóminn. Ásmundur Helgason var skipaður á ný 17. apríl 2020 og var kollegi hans við réttinn, Arnfríður Einars- dóttir, skipuð í hans stað 1. júlí síð- astliðinn. Þá losnaði hennar fyrra embætti við réttinn og um það sótti meðal annarra Ragnheiður Braga- dóttir landsréttardómari sem fær nú nýja skipun. Jón Höskuldsson, sem fær nú skipun við réttinn, var einn fjög- urra umsækjenda sem ekki hlutu dómaraembætti við fyrstu skipun dómara við réttinn þrátt fyrir að hafa verið í hópi fimmtán hæfustu. Annar úr þeim hópi, Eiríkur Jóns- son prófessor, var skipaður dómari við Landsrétt 1. september í fyrra. Ástráður Haraldsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, hefur hins vegar ekki enn verið skip- aður við Landsrétt, þátt fyrir að hafa sótt um í öll sex skiptin sem dómaraembætti hefur verið aug- lýst, oftar en allir aðrir. Hann hefur tvívegis verið metinn í hópi hæf- ustu umsækjenda. Hann var í hópi fimmtán efstu þegar dómurinn var settur á laggirnar og í áliti var hann metinn hæfastur ásamt þeim Ragn- heiði og Jóni, sem fengu lausu stöð- urnar tvær. – aá Þriðji landsréttardómarinn verður dómari við Landsrétt VINNUM ARK AÐUR Rúmlega 21 þúsund manns voru atvinnulaus í lok ágústmánaðar samkvæmt nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar. 17.788 einstaklingar voru í almenna bótakerfinu og 3.483 í minnkuðu starfshlutfalli. Almennt atvinnuleysi í ágúst var 8,5 prósent í ágúst, sem er töluverð aukning miðað við síðustu þrjá mánuði á undan, og spáir Vinnu- málastofnun ekki mikilli aukningu í september. Langmest atvinnuleysi var á Suðurnesjum, 16,9 prósent, og var nærri helmingur atvinnulausra þar áður starfandi í ferðaþjónustu. Vinnumálastofnun bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í ágúst þar sem rúmlega 280 manns var sagt upp. Frá því í mars á þessu ári hefur um átta þúsund manns verið sagt upp í hópuppsögnum hjá 114 fyrirtækjum, f lest þeirra eru fyrirtæki í ferðaþjónustu. Í síðasta mánuði gaf Vinnumála- stofnun út 190 atvinnuleyfi til útlendinga til að starfa hér á landi, af þeim voru 142 leyfi framlengd. Flestir þeirra sem fengu atvinnu- leyfi í ágúst fengu sérfræðileyfi, eða 56 manns, þá fengu 46 manns náms- mannaleyfi og 27 leyfi voru veitt vegna fjölskyldusameiningar. – bdj Ástand verst á vinnumarkaði á Suðurnesjum Fjölmargir á Íslandi hafa misst vinnuna innan ferðaþjónustunnar. 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.