Fréttablaðið - 16.09.2020, Page 6
Það er eðlilegt að
hann geri grein
fyrir sínum hagsmunum
bæði hvað varðar Samherja
en einnig hvað varðar
uppbyggingu í Örfirisey sem
hann talar mikið
fyrir.
Dóra Björt
Guðjónsdóttir,
oddviti Pírata í
Reykjavík
Ríkið er með 1.400
rafræn gagnakerfi í notkun.
Áður fyrr voru fisk-
verslun og myndbandaleiga
í húsinu en í dag eru gömlu
búðargluggarnir tómir.
REYK JAVÍK Þriðja tilraun fyrir-
tækisins D18 ehf. til þess að hefja
framkvæmdir við f jölbýlishús
við Dunhaga 18-20 hefur fallið í
grýttan jarðveg hjá nágrönnum
byggingarinnar. Það má lesa út úr
athugasemdum sem bárust vegna
nýs byggingarleyfis á lóðinni sem
auglýst var í sumar. Mál fjölbýlis-
hússins hefur velkst um í borgar-
kerfinu í rúm þrjú ár en á meðan
hefur húsinu verið illa við haldið og
hefur það í raun grotnað niður fyrir
augum Vesturbæinga.
Umrætt fjölbýlishús er þriggja
hæða hátt og í húsinu í dag eru
skipulagðar átta íbúðir. Eigandi
hússins, D18 ehf., sótti í júlí 2017
um leyfi til þess að byggja fjórðu
hæðina ofan á húsið auk þess að
minnka og fjölga íbúðum þannig
að þær yrðu alls 20 talsins ásamt
verslunarrými. Að auki voru ráð-
gerðar fjölmargar aðrar breytingar
á húsinu, til dæmis að rífa bílskúra
og byggja viðbyggingu við fyrstu
hæð og kjallara.
Byg gingarley f i var veitt til
fyrirtækisins en málið var kært til
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála. Þar féll úrskurður
ári síðar, þann 20. júlí 2018, og var
niðurstaðan sú að byggingarleyfið
var fellt úr gildi.
Í kjölfarið lagði eigandi húsnæð-
isins fram umsókn um nýtt deili-
skipulag sem var auglýst þann 26.
febrúar til 9. apríl 2019, en þar var
þess freistað að fá heimild fyrir upp-
byggingunni á lóðinni. Deiluskipu-
lagsbreytingin fór í gegn en aftur
felldi úrskurðarnefnd umhverfis-
og auðlindamála ákvörðunina úr
gildi með úrskurði sem féll 20. mars
2020.
Þriðja tilraunin var svo gerð í
sumar með nýrri deiliskipulags-
breytingu og var hún auglýst 17.
júlí til 28. ágúst 2020. Fjölmargar
athugasemdir frá nágrönnum bár-
ust og eru þær f lestar á þá leið að
eigendur húsnæðisins hefðu ekki
haft neitt samráð við nágranna né
tekið tillit til fyrri athugasemda
þeirra við uppbygginguna.
Í einni umsögninni er sú afstaða
Reykjavíkurborgar að heimila upp-
bygginguna því húsið sé farið að
láta á sjá sögð fráleit. „Hið rétta er
auðvitað að D18 ehf. ber að sinna
eðlilegu viðhaldi fasteigna sinna,
líkt og aðrir á deiliskipulagsreitnum
gera og vísvitandi trassaskapur
D18 ehf. á viðhaldi hússins er deili-
skipulaginu óviðkomandi. Það
getur trauðla staðist að fasteigna-
eigendur séu verðlaunaðir fyrir
sóða- og trassaskap með því að fá að
byggja háhýsi í grónum hverfum,“
segir í einni athugasemdinni. Þá eru
sagðir fjölmargir stjórnsýslulegir
annmarkar á tillögunni og með-
ferð hennar ekki sögð samræmast
lögum.
bjornth@frettabladid.is
Íbúar segja borgina verðlauna
trassaskap eiganda hússins
Eigendur fjölbýlishúss í niðurníðslu í Vesturbænum í Reykjavík reyna í þriðja sinn að fá leyfi fyrir um-
fangsmiklum framkvæmdum. Nágrannar mótmæla harðlega og segja fráleitt að borgin verðlauni sóða-
og trassaskap. Málið hefur velkst um í borgarkerfinu í þrjú ár og hefur húsið grotnað niður á meðan.
Eigendur vilja byggja aukahæð ofan á Dunhaga 18-20 og fjölga íbúðum í húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
S TJÓR N S ÝS L A Dómstólar, lög-
regluembætti og heilbrigðisstofn-
anir standa illa er kemur að því
að uppfylla lög og reglur sem lúta
að skjalavörslu. Þetta kemur fram
í niðurstöðum eftirlitskönnunar
Þjóðskjalasafns sem kynnt var á
ráðstefnu safnsins í gær.
Eftirlitskönnunin, sem fram fór í
febrúar, leiddi í ljós að þótt skjala-
varsla og skjalastjórn ríkisins fari
batnandi miðað við fyrri kannanir
sé enn víða pottur brotinn.
Alls eru 1.400 rafræn gagnakerfi í
notkun hjá ríkinu, hefur Þjóðskjala-
safn aðeins fengið tilkynningar um
20 prósent þessara kerfa og gögn úr
aðeins þremur prósentum þeirra.
Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri
hjá Þjóðskjalasafni, segir að ein
af leiðing þess að ríkið hugi ekki
að varðveislu rafrænna gagna geti
verið sú að mikilvægar upplýsingar
ríkisins tapist. Þá sé upplýsinga-
réttur almennings ekki virkur því
gögn finnist ekki þegar á þarf að
halda eða að gögn sem haft geti
áhrif á réttindi eða hagsmuni séu
ekki á sínum stað.
Nýlegt dæmi er þegar Verðlags-
stofa skiptaverðs fann ekki skjal
sem vísað var til í Kastljósi árið 2012
og rataði aftur í fréttir nýverið. Hóf
Þjóðskjalasafn athugun á málinu í
kjölfarið.
„Ég tel að staðan sé þessi þar sem
ríkisvaldið hafi ekki veitt nægu fjár-
magni til ríkisstofnana til að geta
leyst þessi verkefni,“ segir Njörður.
Dæmi séu um að stofnanir hafi ekki
búnað til að halda utan um skjölin
og af henda þau Þjóðskjalasafni.
„Til dæmis heilbrigðisstofnanir,
þær vantar fé til að sinna sínum lög-
bundnu verkefnum, þá mætir þetta
afgangi.“ – ab
Skjalavarsla mætir afgangi hjá stjórnsýslunni
NÁTTÚRUVERND Dagur íslenskrar
náttúru er haldinn hátíðlegur í dag.
Dagurinn er fæðingardagur Ómars
Ragnarssonar og er tileinkaður því
starfi sem fjölmiðlamaðurinn hefur
unnið á sviði náttúruverndar. Sjálf-
ur fagnar Ómar áttræðisafmæli sínu
á morgun en lítið verður um fagn-
aðarlæti í tilefni dagsins.
„Ástandið í þjóðfélaginu er þann-
ig að ég ætla ekkert að gera í tilefni
dagsins. Ég hef vanalega verið við-
staddur af hendingu verðlauna
umhverfis- og auðlindaráðuneytis-
ins í tilefni dagsins en ekki í ár.“
Hann segist reikna með því að
eyða deginum við skrif borðið á
heimili sínu þar sem hann vinnur
að fjölbreyttum verkefnum í tölv-
unni. „Ég er með nokkur verkefni í
vinnslu. Það er í mörg horn að líta
og ég má engan tíma missa til þess
að ná að klára þessi verkefni.“
Ómar segir margt hafa breyst
varðandi náttúruvernd hérlendis
undanfarinn áratug. „Íslendingar
eru orðnir mun meðvitaðri um
þessi ómetanlegu auðævi sem
þjóðin á. Hins vegar má ekki sofna
á verðinum, það er ekkert lát á hug-
myndum um að nýta náttúruna í
gróðaskyni. Ég líki þessu oft við að
ef mannkyninu vantaði gull, silfur
og kopar þá yrði það seint fyrsta
verk að bræða allt úr Versölum. – bþ
Myndum seint
bræða Versali
Ómar fagnar stórafmæli á morgun.
SJÁVARÚT VEGUR Af li íslenskra
fiskiskipa í síðastliðnum ágúst-
mánuði var rúmlega 131 þúsund
tonn, það er 16 prósentum meiri en
í saman mánuði í fyrra. Um 32 pró-
sent aflans voru uppsjávarafli eða
rúm 89 þúsund tonn og var makríll
meginuppistaða þess afla.
Botnfiskaf li var tæp 39 þúsund
tonn í ágúst og jókst um tíu prósent
miðað við sama mánuð á síðasta ári
og voru rúm tuttugu þúsund tonn
af lönduðum af la þorskur. Þetta
kemur fram á vef Hagstofunnar.
Samdráttur var í af la skel- og
krabbadýra líkt og síðustu mánuði
en í ágúst á þessu ári veiddust 610
tonn sem er ellefu prósenta sam-
dráttur miðað við ágúst 2019.
Heildaraf li á tólf mánaða tíma-
bili frá september 2019 til ágúst
2020 var rúmlega 1.011 þúsund tonn
sem eru sjö prósentum minni afli en
á sama tímabili ári fyrr. – bdj
Meiri veiði í
ágúst en í fyrra
G A R Ð A B Æ R Um hve r f i s ne f nd
Garðabæjar hefur lagt til að óskað
verði eftir undanþágu frá frið-
lýsingarskilmálum Gálgahrauns
og Garðahrauns varðandi friðun
máva á svæðunum. Ástæðan er
sú að nokkuð hefur verið um orð-
sendingar íbúa til bæjarins vegna
ágangs fuglanna og hyggst bærinn
nú ganga lengra í að stemma stigu
við fjölgun þeirra. Hingað til hafa
aðgerðir einskorðast við að bæjar-
starfsmenn stinga á mávaegg sem
finnast í hreiðrum á svæðunum.
Fréttablaðið greindi frá tíðum
kvörtunum bæjarbúa í júlí en þær
voru vegna árása máva á gangandi
vegfarendur auk þess sem það fór
fyrir brjóstið á íbúum að sjá máva
éta ungviði annarra fugla. – bþ
Vilja sleppa frá
friðun máva
REYKJAVÍK Mikill hiti var á fundi
borgarstjórnar í gær eftir að Dóra
Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata,
spurði Eyþór Arnalds, oddvita
Sjálfstæðisf lokksins, hvort hann,
í stöðu sinni sem formaður bæjar-
ráðs Árborgar, hefði fengið stóran
hlut í Morgunblaðinu að gjöf frá
Samherja fyrir að tryggja á Selfossi
góðan grundvöll fyrir uppbyggingu
í miðbænum sem er á vegum eins
eigenda útgerðarfyrirtækisins.
Bæði Eyþór og Vigdís Hauksdótt-
ir, oddviti Miðflokksins, brugðust
hart við. Hafa orð Dóru Bjartar
verið sett á dagskrá á fundi forsætis-
nefndar og var hún sökuð um per-
sónuárásir.
„Hér dylgjar hún algerlega út
í loftið, hún verður sjálfri sér til
minnkunar um miðbæ Selfoss og
greiðslur og fleira sem er ekki bara
henni til vansemdar heldur öllum
hérna inni í salnum,“ sagði Eyþór á
fundi borgarstjórnar. Hafnaði hann
því alfarið að hafa komið nálægt
ákvörðuninni um uppbygginguna
á Selfossi þar sem hann hefði verið
fluttur þaðan þegar ákvörðunin var
tekin. „Það er nú þannig að það er
betra að búa til samsæriskenningar
sem geta staðist, svona mögulega
fræðilega staðist, en ekki búa til
samsæriskenningar sem geta alger-
lega ekki staðist.“
Vigdís sagði Dóru stunda haturs-
orðræðu. „Mér er óglatt yfir þess-
um ummælum sem er sífellt verið
að bera á borð af borgarfulltrúa.
Manneskjan er með Samherja á
heilanum.“
Dóra Björt hafnar því alfarið að
stunda persónuárásir. „Það er eðli-
legt að hann geri grein fyrir sínum
hagsmunum bæði hvað varðar Sam-
herja en einnig hvað varðar upp-
byggingu í Örfirisey sem hann talar
mikið fyrir,“ segir Dóra Björt. Eyþór
hafi verið oddviti þegar aðalskipu-
lagið í Selfossi var samþykkt. Hún
mun halda áfram að spyrja um lán
hans frá Samherja fyrir eignarhlut
í Morgunblaðinu, það sé ekki hlut-
urinn sjálfur sem skipti máli heldur
lánið og hvað hangi á spýtunni.
„Eyþór hefur aldrei svarað þessum
spurningum svo vel sé.“ – eþá
Dóra Björt mun halda áfram að spyrja Eyþór
1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð