Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 16.09.2020, Qupperneq 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það er fárán- leg krafa að ætlast til þess að hver einasti maður sem hingað kemur þurfi að sýna fram á að hann sé í bráðri lífshættu. Það fylgir því ábyrgð að standa vörð um þessa mögnuðu náttúru sem við eigum hér á Ís- landi. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlinda- ráðherra Íslendingar ferðuðust um landið sitt sem aldrei fyrr í sumar og nutu einstakrar náttúru. Það er ómetan-legur auður að hafa lítt snortna náttúru, víðerni, fossa og fjöll rétt innan seilingar alls staðar á landinu. En þessi auðæfi eru ekki sjálfsögð og við þurfum að gæta þeirra vel. Árið 2018 hratt ég af stað átaki í friðlýsingum sem unnið er í samstarfi Umhverfisstofnunar og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Með átakinu hafa nú þegar tólf svæði verið friðlýst. Þeirra á meðal eru Goðafoss, Búrfell og Búrfellsgjá, Jökulsá á Fjöllum, háhitasvæði Brennisteinsfjalla, Kerlingarfjöll – og sjálfur Geysir. Útlit er fyrir að margar fleiri friðlýsingar verði að veru- leika á næstu misserum. Með friðlýsingum er stuðlað að því að lífríki fái að þróast á eigin forsendum, að jarðmyndunum sé ekki raskað og náttúrufegurð haldist ósnortin. En friðlýst svæði hafa líka mikið aðdráttarafl og eru í mörgum tilfellum helstu áfangastaðir ferðamanna á Íslandi. Þannig skapa þau tækifæri fyrir fólk um leið og þau sjá náttúrunni fyrir vernd. Rannsóknir sýna að friðlýst svæði skila efnahagslegum ávinningi sem að hluta til verður eftir heima í héraði. Ég tel að mikil sóknarfæri felist í friðlýsingum fyrir ferðaþjónustuna í landinu þegar kórónaveirufaraldrinum slotar, ekki síst í stofnun Hálendisþjóðgarðs, en aðdráttarafl hans sem stærsta þjóðgarðs Evrópu yrði mikið. Ég verð sjaldan eins stoltur og þegar ég skrifa undir friðlýsingar, því ég veit að með því er ég að standa vörð um náttúruna og skapa komandi kynslóðum tækifæri til þess að njóta hennar líka. Friðlýst svæði eru mikil- væg fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði auk þess sem efnahagsleg tækifæri fylgja verndun náttúrunnar. Það fylgir því ábyrgð að standa vörð um þessa mögnuðu náttúru sem við eigum hér á Íslandi. Og ekki bara gagn- vart okkur sem hér búum heldur líka öllum heiminum. Þá ábyrgð þurfum við sem samfélag að axla með sóma. Í dag er Dagur íslenskrar náttúru – stöndum vörð um hana í dag sem og alla aðra daga. Stöndum vörð um náttúru Íslands N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið Með 4,9 Ástráður Haraldsson fór enn og aftur tómhentur heim frá hinni æsispennandi keppni Ísland got talent – special judge selection. Þetta telst vera í sjötta sinn sem hann reynir að hljóta náð fyrir augum dómnefndar. Sem fyrr segir fór hann bikarlaus heim. Ástráður hefur átt góða spretti í keppnum undanfarinna ára, það sýnir sú einkunnagjöf sem dómnefndin hefur gefið honum í gegnum tíðina. Það hefur þó ekki dugað honum til verðlauna enda virðist eins og dómnefndin leggi áherslu á mismunandi þætti milli keppna sem er vesen. Afmælisbarn dagsins orðaði það einu sinni svo: „Gengur bara betur næst.“ Eldvatnið Eftirhermur eru hverfandi stétt. Áður var þetta eitt besta grín sem menn gátu komist í og kútveltust úr hlátri þegar hermt var eftir Sigurbirni biskupi, Halldóri Laxness eða Steingrími Hermannssyni. Nú er öldin önnur og annað og ómerkilegra grín talið fyndið. Þessi sem hringdi inn veiði- frétt á dögunum og sagðist vera Bubbi Morthens er einn örfárra sem kunna að meta menningar arfinn. Hann var að skemmta sér með félögunum við veiðar – hvar annars staðar en í Eldvatni. Það má veiða þar en varasamt að drekka mikið af því. Íslenskt samfélag hefur alla burði til þess að taka á móti þeim útlendingum sem hér vilja setjast að. Við erum þrátt fyrir allt ríkt samfélag. En það er jafn ljóst að sú stefna sem unnið hefur verið eftir í móttöku flóttafólks hér á landi og byggir á því að reka dýrt félagslegt neyðarkerfi fyrir f lóttafólk á f lestum útnárum landsins, oftar en ekki í tekjuöflunarskyni fyrir minni sveitarfélög, er hvorki hagkvæm né sérstaklega mannúðleg. Við eigum að opna fleiri dyr fyrir fólki sem langar að búa hér, starfa og ala upp börn, óháð því af hvaða þjóðerni það er, hvernig það er á litinn eða hvaðan það kemur úr heiminum. Hið félagslega neyðarkerfi sem sett hefur verið upp fyrir fólk í þörf fyrir alþjóð- lega vernd verður að vera til staðar, en það ætti ekki að þurfa að virka eins og neyðarinnlögn á Vogi sem verður eina færa leiðin í meðferð af því allar aðrar eru lokaðar. Það er fáránleg krafa að ætlast til þess að hver einasti maður sem hingað kemur í von um betra líf þurfi að sýna fram á að hann sé í bráðri lífshættu í heimalandi sínu. Sveiflur í atvinnuleysi hafa ekki breytt því að stöðug mannekla virðist hrjá fjölmörg svið atvinnulífsins. Reglulega hefur þurft að loka deildum á leikskólum borgarinnar vegna manneklu. Frístundaheimili stríða við sama vanda. Heilbrigðiskerfið hefur verið á hliðinni um árabil vegna læknaskorts og ómannúðlegs álags á stétt hjúkrunarfræðinga. Það hefur ekki verið viðlit að ráða iðnaðarmann til starfa hér um árabil. Á sama tíma hafa verið sett allt of þröng skilyrði fyrir því að fólk sem ekki er evrópskir ríkisborgarar fái að flytjast hingað. Trúir því einhver að franskir píparar séu undantekningarlaust betri en egypskir eða mexík- óskir? Býr eitthvað annað þar að baki en andúð á þeim sem koma lengra að, trúa á annan guð eða eru öðruvísi á litinn en við? Verkalýðshreyfingin hefur um áratugaskeið barist gegn því að opna íslenskan vinnumarkað fyrir áhuga- sömum útlendingum og stjórnmálastéttin hefur staðið sína plikt með rammgerðri löggjöf gegn fólki sem hefur ekki önnur markmið en að vinna og auðga íslenskt samfélag. Nú hafa fjölmiðlar herjað á félags- og barnamála- ráðherra í leit að túlkun hans á grundvallarreglu Barnasáttmálans um að hagsmunir barns eigi að ráða för í ákvörðunartöku sem varðar þau beint. Ef velferð barna er ráðherranum þyrnir í augum, hefur hann tækifæri til að opna dyrnar á öðru málefnasviði ráðuneytis síns og svara kalli íslensks almennings um manneskjulega stefnu í útlendingamálum. Það er allt of erfitt fyr ir ein stak linga frá lönd um utan Evrópska efnahagssvæðisins að fá at vinnu leyfi á Íslandi. Fyrir því eru hvorki gildar né málefnalegar ástæður. Það verður einfaldlega að endurskoða regl ur um at vinnu leyfi og rýmka heim ild ir út lend inga til að koma hingað til að starfa. Það er ekki fyrsta val allra sem til okkar leita að óska eftir neyðaraðstoð. En á meðan allar eðlilegar leiðir inn í landið eru lokaðar er hún eina leiðin. Velkomin öll 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.