Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 11

Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 11
Ekki veit ég hvort er furðulegra, nýafstaðin heimsókn Róberts Spanó, forseta Mannréttinda­ dómstóls Evrópu til Tyrklands, að þiggja þar viðurkenningu úr hendi valdakerfis þess lands, eða leiðari Aðalheiðar Ámundadóttur, fréttastjóra Fréttablaðsins, frá 9. september, sem hrósar forsetanum fyrir þessa för undir fyrirsögninni: Hugr ekki. Framkvæmd og réttlæting Munurinn er náttúrlega sá að Róbert framkvæmir, Aðalheiður réttlætir. Hún kallar það hugr­ ekki að fara til Tyrklands til að „tala við fólkið“ og „byggja brýr“. Þetta kosti náttúrlega þrek, þor og staðfestu, svo hugtök leiðarahöf­ undar séu notuð, enda mátti vita að heimsóknin færi „fyrir brjóstið á meginþorra manna“. En þá væri á það að líta að forsetar Mannrétt­ indadómstóls Evrópu hefðu þegið heiðursorður í ríkjum á borð við Armeníu, Tékkland og Pólland og væri ekki rétt að brjóta þá „órofa hefð“ sem hefði myndast um að þiggja heiðursnafnbætur í aðildar­ ríkjum Evrópuráðsins. Hér kveður við sama tón og hjá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingkonu Pírata, sem situr á þingi Evrópuráðsins, þegar hún lýsti yfir að ekki væri rétt að mismuna aðildarríkjum Evrópu­ ráðsins og að auðvitað hefði Róbert átt að þiggja heimboð Tyrkja. Spurt um afstöðu Íslendinga Varla veit ég hvar á að byrja til að andæfa þessu. Það geri ég opinber­ lega vegna þess að ég veit að fylgst er með hérlendri umræðu um þessa heimsókn. Það gera mannréttinda­ samtök í Tyrklandi, í Evrópu og víðsvegar um heiminn og er þá spurt hvort þessu sé ekki mótmælt á Íslandi, í heimaríki dómsforsetans. Í fyrsta lagi vil ég lýsa þeirri per­ sónulegu skoðun minni að forseti Mannréttindadómstóls Evrópu eigi ekki að þiggja neinar vegtyllur, frá neinu ríki, á meðan viðkom­ andi er í embætti. Í öðru lagi hlýtur dómgreind manna að mismuna í samræmi við aðstæður. Þegar ríki hefur látið reka þúsundir dómara og lögfræðinga úr starfi vegna skoðana sinna og afstöðu til vald­ stjórnarinnar og fangelsa enn fleiri þúsundir mannréttindafrömuða og pólitískra andstæðinga, jafnað heilar borgir við jörðu, eyðilagt menningar verðmæti á minja­ skrá Sameinuðu þjóðanna, hrakið hundruð þúsunda á vergang, lagt á útgöngubann með það að mark­ miði að koma í veg fyrir aðgang að vatni, ráðist inn í önnur ríki og hersitji þau, ekki einhvern tímann í fyrndinni heldur núna, þá fer for­ seti Mannréttindadómstóls Evrópu ekki í heimsókn til að láta næla á sig heiðursmerki. Og ef þarf að brjóta einhverja hingað til „órofa hefð“, þá er þetta rétti tíminn til að rjúfa þá hefð! Til þess hefði varla þurft hug­ rekki, efast ég um það, sennilega bara sæmilega dómgreind. „Fólkið“ sem rætt var við Það er rangt hjá leiðarahöfundi Fréttablaðsins að forseti MDE hafi farið til að „tala við fólkið“. Hann talaði ekki við mannréttindasam­ tök eða fulltrúa hinna kúguðu, ekki þá sem setið höfðu í kennara­ stöðum eða starfað í dómsölum og eru nú útilokaðir þaðan, heldur bara leppana sem settir höfðu verið í þeirra stað. Þess má geta að í Mardin, sem Róbert Spanó heim­ sótti, höfðu Kúrdar sigrað í sveit­ arstjórnarkosningum, en hinir sigursælu borgarstjórar, karl og kona, verið sett af og í þeirra stað settir einstaklingar þóknanlegir stjórnvöldum. Hinir síðarnefndu voru „fólkið“ sem forseti Mann­ réttindadómstólsins hitti að máli og ræddi við í Tyrklandsheimsókn sinni. Án nafns og kennitölu Leiðarahöfundur Fréttablaðsins segir forseta MDE hafa rætt mann­ réttindi í heimsókn sinni. Það sem ég hef séð af ræðum hans hefði getað verið f lutt í kennslustofu Háskóla Íslands eða hvar sem er því þarna var ekki talað tæpitungulaust og sérstaklega um mannréttinda­ brot í Tyrklandi heldur um mikil­ vægi þess að virða mannréttindi almennt, allt án nafns og kennitölu, með öðrum orðum kurteisishjal í húsi mannréttindabrjóta. Allt þetta gerist með troðfull fangelsin af samviskuföngum, lög­ fræðingur nýlátinn í fangelsi eftir mótmælasvelti … og forseti Mann­ réttindadómstólsins neitar að eiga fund með fulltrúum mannrétt­ indasamtaka! Hann var hins vegar myndaður í bak og fyrir með Recep Tayyip Erdoğan forseta og átti fund með ýmsum valdamönnum m.a. með Mustafa Şentop, forseta þingsins, sem lýsti því yfir innan sólarhrings eftir samtal þeirra, að hann væri hlynntur dauðarefs­ ingu. Fræðsla dómsforsetans hefur greinilega ekki hrifið, eða dugað stutt. Tyrklandsförin afleit allra vegna Forseti dómstólsins hefði getað rætt við samtök blaðamanna sem sviptir hafa verið frelsi sínu eða við samtök sem tala fyrir hönd samviskufanga og heyrt þeirra hlið á málum. „Þann­ ig hefði mátt gefa táknræn skilaboð um óhlutdrægni,“ segir í grein á tyrk­ neskum vefmiðli undir fyrirsögn­ inni í lauslegri þýðingu, „Evrópu­ dómstóllinn hrynur í hugum fólks“. Róbert Spanó segir heimsókn sína til Tyrklands hafa verið rækilega ígrundaða af sérfræðingum Mann­ réttindadómstólsins. Ekki þykir mér það góður vitnisburður um þá sér­ fræðinga. Sárt er að það skuli hafa hent Róbert Spanó að gera þessi miklu mistök, Mannréttindadómstólsins vegna, Íslands vegna, því hann er fulltrúi Íslands í dómstólnum, en einnig sjálfs sín vegna því hann á betra skilið af sjálfum sér. Það tel ég mig vita því af mörgu góðu þekki ég hann. Öllu má nafn gefa Ögmundur Jónasson fyrrverandi þingmaður á þingi Evrópu- ráðsins 3 svefnherbergi með skápum - Flísalagt baðherbergi með flísalögðum sturtuklefa Vandað eldhús með góðum tækjum og borðkrók - Stofa og borðstofa samliggjandi með tvennum svölum Tvö bílastæði merkt íbúð í bílakjallara. Opið hús á miðvikudaginn 16. september kl. 12:30 - 13:00 Verð frá 55.000.000 - 58.900.000 kr. DOMUSNOVA - HLÍÐASMÁRA 4 KÓPAVOGI - AUSTURVEGI 6 SELFOSSI & STILLHOLTI 16-18 AKRANESI SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN DALBREKKA 14 KÓPAVOGUR - FJÖLSKYLDUEIGN - ÖRFÁAR ÍBÚÐIR EFTIR Allar upplýsingar veitir: Oscar Clausen Löggiltur Fasteignasali oc@domusnova.is Sími: 861 8466 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.