Fréttablaðið - 16.09.2020, Page 11
Ekki veit ég hvort er furðulegra, nýafstaðin heimsókn Róberts Spanó, forseta Mannréttinda
dómstóls Evrópu til Tyrklands,
að þiggja þar viðurkenningu úr
hendi valdakerfis þess lands, eða
leiðari Aðalheiðar Ámundadóttur,
fréttastjóra Fréttablaðsins, frá 9.
september, sem hrósar forsetanum
fyrir þessa för undir fyrirsögninni:
Hugr ekki.
Framkvæmd og réttlæting
Munurinn er náttúrlega sá að
Róbert framkvæmir, Aðalheiður
réttlætir. Hún kallar það hugr
ekki að fara til Tyrklands til að
„tala við fólkið“ og „byggja brýr“.
Þetta kosti náttúrlega þrek, þor og
staðfestu, svo hugtök leiðarahöf
undar séu notuð, enda mátti vita
að heimsóknin færi „fyrir brjóstið
á meginþorra manna“. En þá væri
á það að líta að forsetar Mannrétt
indadómstóls Evrópu hefðu þegið
heiðursorður í ríkjum á borð við
Armeníu, Tékkland og Pólland og
væri ekki rétt að brjóta þá „órofa
hefð“ sem hefði myndast um að
þiggja heiðursnafnbætur í aðildar
ríkjum Evrópuráðsins. Hér kveður
við sama tón og hjá Þórhildi Sunnu
Ævarsdóttur, þingkonu Pírata, sem
situr á þingi Evrópuráðsins, þegar
hún lýsti yfir að ekki væri rétt að
mismuna aðildarríkjum Evrópu
ráðsins og að auðvitað hefði Róbert
átt að þiggja heimboð Tyrkja.
Spurt um afstöðu Íslendinga
Varla veit ég hvar á að byrja til að
andæfa þessu. Það geri ég opinber
lega vegna þess að ég veit að fylgst
er með hérlendri umræðu um þessa
heimsókn. Það gera mannréttinda
samtök í Tyrklandi, í Evrópu og
víðsvegar um heiminn og er þá
spurt hvort þessu sé ekki mótmælt á
Íslandi, í heimaríki dómsforsetans.
Í fyrsta lagi vil ég lýsa þeirri per
sónulegu skoðun minni að forseti
Mannréttindadómstóls Evrópu
eigi ekki að þiggja neinar vegtyllur,
frá neinu ríki, á meðan viðkom
andi er í embætti. Í öðru lagi hlýtur
dómgreind manna að mismuna í
samræmi við aðstæður. Þegar ríki
hefur látið reka þúsundir dómara
og lögfræðinga úr starfi vegna
skoðana sinna og afstöðu til vald
stjórnarinnar og fangelsa enn fleiri
þúsundir mannréttindafrömuða
og pólitískra andstæðinga, jafnað
heilar borgir við jörðu, eyðilagt
menningar verðmæti á minja
skrá Sameinuðu þjóðanna, hrakið
hundruð þúsunda á vergang, lagt
á útgöngubann með það að mark
miði að koma í veg fyrir aðgang
að vatni, ráðist inn í önnur ríki og
hersitji þau, ekki einhvern tímann
í fyrndinni heldur núna, þá fer for
seti Mannréttindadómstóls Evrópu
ekki í heimsókn til að láta næla á sig
heiðursmerki. Og ef þarf að brjóta
einhverja hingað til „órofa hefð“, þá
er þetta rétti tíminn til að rjúfa þá
hefð! Til þess hefði varla þurft hug
rekki, efast ég um það, sennilega
bara sæmilega dómgreind.
„Fólkið“ sem rætt var við
Það er rangt hjá leiðarahöfundi
Fréttablaðsins að forseti MDE hafi
farið til að „tala við fólkið“. Hann
talaði ekki við mannréttindasam
tök eða fulltrúa hinna kúguðu,
ekki þá sem setið höfðu í kennara
stöðum eða starfað í dómsölum og
eru nú útilokaðir þaðan, heldur
bara leppana sem settir höfðu
verið í þeirra stað. Þess má geta að
í Mardin, sem Róbert Spanó heim
sótti, höfðu Kúrdar sigrað í sveit
arstjórnarkosningum, en hinir
sigursælu borgarstjórar, karl og
kona, verið sett af og í þeirra stað
settir einstaklingar þóknanlegir
stjórnvöldum. Hinir síðarnefndu
voru „fólkið“ sem forseti Mann
réttindadómstólsins hitti að máli
og ræddi við í Tyrklandsheimsókn
sinni.
Án nafns og kennitölu
Leiðarahöfundur Fréttablaðsins
segir forseta MDE hafa rætt mann
réttindi í heimsókn sinni. Það sem
ég hef séð af ræðum hans hefði
getað verið f lutt í kennslustofu
Háskóla Íslands eða hvar sem er því
þarna var ekki talað tæpitungulaust
og sérstaklega um mannréttinda
brot í Tyrklandi heldur um mikil
vægi þess að virða mannréttindi
almennt, allt án nafns og kennitölu,
með öðrum orðum kurteisishjal í
húsi mannréttindabrjóta.
Allt þetta gerist með troðfull
fangelsin af samviskuföngum, lög
fræðingur nýlátinn í fangelsi eftir
mótmælasvelti … og forseti Mann
réttindadómstólsins neitar að eiga
fund með fulltrúum mannrétt
indasamtaka! Hann var hins vegar
myndaður í bak og fyrir með Recep
Tayyip Erdoğan forseta og átti
fund með ýmsum valdamönnum
m.a. með Mustafa Şentop, forseta
þingsins, sem lýsti því yfir innan
sólarhrings eftir samtal þeirra, að
hann væri hlynntur dauðarefs
ingu. Fræðsla dómsforsetans hefur
greinilega ekki hrifið, eða dugað
stutt.
Tyrklandsförin afleit allra vegna
Forseti dómstólsins hefði getað rætt
við samtök blaðamanna sem sviptir
hafa verið frelsi sínu eða við samtök
sem tala fyrir hönd samviskufanga
og heyrt þeirra hlið á málum. „Þann
ig hefði mátt gefa táknræn skilaboð
um óhlutdrægni,“ segir í grein á tyrk
neskum vefmiðli undir fyrirsögn
inni í lauslegri þýðingu, „Evrópu
dómstóllinn hrynur í hugum fólks“.
Róbert Spanó segir heimsókn sína
til Tyrklands hafa verið rækilega
ígrundaða af sérfræðingum Mann
réttindadómstólsins. Ekki þykir mér
það góður vitnisburður um þá sér
fræðinga.
Sárt er að það skuli hafa hent
Róbert Spanó að gera þessi miklu
mistök, Mannréttindadómstólsins
vegna, Íslands vegna, því hann
er fulltrúi Íslands í dómstólnum,
en einnig sjálfs sín vegna því
hann á betra skilið af sjálfum sér.
Það tel ég mig vita því af mörgu
góðu þekki ég hann.
Öllu má nafn gefa
Ögmundur
Jónasson
fyrrverandi
þingmaður á
þingi Evrópu-
ráðsins
3 svefnherbergi með skápum - Flísalagt baðherbergi með flísalögðum sturtuklefa
Vandað eldhús með góðum tækjum og borðkrók - Stofa og borðstofa samliggjandi með tvennum svölum
Tvö bílastæði merkt íbúð í bílakjallara. Opið hús á miðvikudaginn 16. september kl. 12:30 - 13:00
Verð frá 55.000.000 - 58.900.000 kr.
DOMUSNOVA - HLÍÐASMÁRA 4 KÓPAVOGI - AUSTURVEGI 6 SELFOSSI & STILLHOLTI 16-18 AKRANESI SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS
LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN
DALBREKKA 14 KÓPAVOGUR - FJÖLSKYLDUEIGN - ÖRFÁAR ÍBÚÐIR EFTIR
Allar upplýsingar veitir:
Oscar Clausen
Löggiltur Fasteignasali
oc@domusnova.is
Sími: 861 8466
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0