Fréttablaðið - 16.09.2020, Page 18

Fréttablaðið - 16.09.2020, Page 18
MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is 3 TEGUNDIR AF SÚRDEIGSBRAUÐUM VELDU GÆÐI! PREN TU N .IS ................................................ Ný lög, sem heimila líf-eyrissjóðum að fjárfesta í ákveðnum kaupréttum, fela ekki í sér heimild til að fjárfesta í söluréttum af sama tagi. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis vannst ekki nægt svigrúm til þess að meta hvort auknar fjárfestingaheimildir sjóðanna ættu einnig að ná til sölu- rétta en málið verður tekið til skoð- unar. „Það að auknar heimildir nái einungis til kauprétta þýðir að ein- ungis eru leyfðar afleiður sem geta ýtt undir eignabólur. Það vantar mótvægið – sölurétti – þannig að hægt sé að taka stöðu með því að eignaverð lækki,“ segir viðmælandi Markaðarins á fjármálamarkaði. Frumvarp um breytingar á lögum um heimildir lífeyrissjóða var lagt fram og samþykkt í aðdrag- anda hlutafjárútboðs Icelandair Group sem hefst í dag. Hverjum seldum hlut í hlutafjárútboðinu fylgja áskriftarréttindi sem teljast af leiður í skilningi laganna. Þar sem heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í afleiðum voru háðar því skilyrði að þær drægju úr áhættu sjóðs var talið mikilvægt að breyta lögunum áður en útboðið færi fram. Frumvarpinu var meðal annars ætlað að veita lífeyrissjóðunum möguleika á að hljóta ábata af hag- felldri verðþróun eigna þar sem tapsáhætta er takmörkuð. „Með því að opna á möguleika lífeyrissjóða til þess að eignast afleiður sem fela aðeins í sér rétt til að kaupa aðra eign eða áskriftar- réttindi að henni, aukast mögu- leikar þeirra til áhættudreifingar og ábatasamra fjárfestingartækifæra,“ segir í frumvarpinu. Við vinnslu málsins fékk efna- hags- og viðskiptanefnd á sinn fund fulltrúa frá Landssamtökum lífeyr- issjóða sem lögðu til við nefndina að notast yrði við hugtakið „valréttar- samningur“ í frumvarpinu. Þannig næði heimildin jafnt til kaup- og söluréttar sem væri í samræmi við markmið frumvarpsins. Þá stæðu rök til þess að sömu reglur giltu um skuldabréf með breytirétti enda væru þau nátengd áskriftarrétt- indum og rétt að taka af vafa um heimildir lífeyrissjóða til slíkra fjárfestinga. Nefndinni vannst ekki nægt svig- rúm innan þess tíma sem gafst við vinnslu frumvarpsins til að leggja fullnægjandi mat á framangreindar tillögur og hafa um þær nauðsyn- legt samráð við sérfræðinga og hagaðila. „Meiri hluti nefndarinnar, sem stendur að framlagningu frum- varpsins, telur þó ríkt tilefni til að slík vinna fari fram. Leggur meiri hlutinn til að nefndin hafi samráð um þá vinnu, meðal annars við ráðuneytið og Seðlabanka Íslands, á komandi löggjafarþingi,“ segir í umfjöllun um störf efnahags- og viðskiptanefnda. – þfh Hafa minni heimildir til að fjárfesta í söluréttum heldur en kaupréttum Þar sem heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í afleiðum voru háðar því skilyrði að þær drægju úr áhættu sjóðs var talið mikilvægt að breyta lög- unum fyrir hlutafjárútboð Icelandair Group. Mik il óvissa er um mögulega a ð k o m u l í f -eyrissjóðanna að hlutafjárút-boði Icelandair Group, sem hefst í dag, miðviku- dag, og lýkur á morgun klukkan fjögur, en þátttaka þeirra mun ráða úrslitum um hvort félaginu takist að sækja sér nýtt hlutafé fyrir allt að 23 milljarða króna. Fjór ir stærstu lífey r issjóðir landsins – Lífeyrissjóður versl- unarmanna (LIVE), LSR, Gildi og Birta – halda spilunum afar þétt að sér og hafa enn ekki gefið upp hvort, og þá að hversu miklu marki, þeir muni fjárfesta í útboði f lug- félagsins. Stjórnir sjóðanna, sem eru samanlagt með eignir upp á meira en þrjú þúsund milljarða króna, hafa boðað til fundar síðar í dag og snemma á morgun þar sem endanleg ákvörðun verður þá tekin um þátttöku í útboðinu. S a m k v æ mt v ið m æ l e ndu m Markaðarins, meðal annars úr röðum lífeyrissjóðanna og eins í hópi ráðgjafa Icelandair við hluta- fjárútboðið, þykir vera mest óvissa um afstöðu LIVE og Gildis. Stjórn LIVE, sem telur átta manns, kemur saman til fundar eftir hádegi í dag en talsverð gjá er á milli fulltrúa atvinnurekenda annars vegar og fulltrúa VR hins vegar í stjórninni um hvort lífeyrissjóðurinn eigi að koma að útboðinu. Sjóðurinn er í dag næststærsti hluthafi Icelandair með um 11,8 prósenta hlut. Verði tveir af stærstu lífeyris- sjóðunum, sem ætla að draga það fram á síðustu stundu að taka ákvörðun um fjárfestingu, ekki með gæti það sett verulegt strik í reikninginn með þátttöku annarra og minni sjóða og þá um leið hvort útboðið klárist. Fjölmargir forystumenn verka- lýðshreyf ingarinnar, nú síðast Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Sól- veig Anna Jónsdóttir, formaður Ef lingar, hafa tjáð sig um hluta- fjárútboð Icelandair og mælt gegn því að eftirlaunasjóðir launafólks verði nýttir til að taka þátt í útboð- inu. Ef ling skipar tvo fulltrúa í átta manna stjórn Gildis, sem er fjórði stærsti hluthafi Icelandair í dag, en þeirra á meðal er Stefán Ólafsson, formaður stjórnarinnar, en hann starfar jafnframt sem ráðgjaf i Ef lingar. Verðbréfaf y rirtækið Arctica Finance, sem hefur verið ráðgjafi Birtu, Gildis og LSR í aðdraganda hlutafjárútboðsins, skilaði af sér ítarlegri skýrslu, sem telur á annað hundrað blaðsíður, í lok síðustu viku til sjóðanna um Icelandair þar sem samkeppnisstaða þess var greind og lagt mat á hversu fýsilegt það væri að fjárfesta í félaginu. Þá hafa sömu sjóðir, samkvæmt heimildum Markaðarins, einnig fengið Magnús Árna Skúlason, hag- fræðing hjá ráðgjafarfyrirtækinu Reykjavík Economics, til að gera greiningu á efnahagslegum áhrif- um Icelandair fyrir hagkerfið og hvaða þýðingu það hefði ef útboðið heppnaðist ekki og félagið myndi hverfa af markaði. Magnús Árni vann sambærilega skýrslu fyrir WOW air í mars 2019, skömmu áður en f lugfélagið fór í greiðslu- þrot. Biðla til einkafjárfesta Að sögn viðmælenda Markaðar- ins er útlit fyrir ágætis þátttöku í útboðinu á meðal verðbréfasjóða, hjá einkabankaþjónustum og eignastýringum bankanna, og eins almennum fjárfestum. Fáir einka- fjárfestar eða fjárfestingafélög eru hins vegar sögð ætla að skrá sig fyrir stórum upphæðum í útboðinu enda sé áhættan við fjárfestinguna umtalsverð og lýsa sumir henni sem í reynd „af leiðu á bóluefni“. Á f járfestafundum með stjórn- endum Icelandair hefur komið fram að þeir áætli að við núverandi aðstæður, þar sem nánast allt f lug félagsins liggur niðri og tekjur eru litlar sem engar, sé neikvætt sjóðs- streymi vegna rekstursins um 15 til 20 milljónir Bandaríkjadala á mánuði. Á síðustu dögum hefur verið biðlað til f jölmargra umsvifa- mikilla einkafjárfesta og forsvars- manna fjárfestingafélaga um að skuldbinda sig fyrir myndarlegum hlut í útboðinu og í kjölfarið sækj- ast eftir sæti í stjórn félagsins. Markmiðið hefur meðal annars verið að fá hóp einkafjárfesta, sem hver um sig myndi fjárfesta fyrir mögulega hundruð milljóna, til að taka að sér leiðandi hlutverk, í samf loti með lífeyrissjóðunum, og auka um leið líkur á góðri þátttöku í útboðinu. Sú vinna hafði hins vegar enn ekki borið árangur síðla dags í gær, samkvæmt heimildum. Icelandair freistar þess sem fyrr segir að auka hlutaféð með því að selja nýja hluti á genginu 1 króna á hlut fyrir alls 20 milljarða króna. Komi til umframeftirspurnar mun stjórn hafa heimild til að auka hlutafé enn frekar um allt að þrjá milljarða. Þá hefur félagið náð samkomulagi við Íslandsbanka og Landsbankann um sölutryggingu og munu bankarnir kaupa hlutafé fyrir allt að sex milljarða króna ef ekki næst að selja allt sem boðið er út. Áætlanir Icelandair gera meðal annars ráð fyrir að f lugframboð félagsins aukist jafnt og þétt. Árið 2024 verði framboðið komið í sama horf og það var árið 2018. Þá er gert ráð fyrir að tekjur félagsins hafi hækkað upp í 1,6 milljarða dala árið 2024 og verði þannig um þremur prósentum hærri en þær voru í fyrra. EBIT, rekstrarhagnaður fyrir fjár- magnsliði og skatta, tekur hressi- lega við sér árin 2023 og 2024 og verður kominn í 175 milljónir dala árið 2024. Til samanburðar var EBIT 134 milljónir dala árið 2015 og 113 milljónir dala árið 2016. Enn mikil óvissa með aðkomu sjóðanna Stóru sjóðirnir ekki tekið ákvörðun um þátttöku í útboði Icelandair. Skiptar skoðanir meðal stjórnarmanna og mesta óvissan hjá LIVE og Gildi. Tilraunir til að fá stóra einkafjárfesta í leiðandi hlutverk hafa ekki enn borið árangur. Hlutafjárútboð Icelandair Group hefst í dag og stendur til klukkan fjögur á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is 15-20 milljónir dala er áætlað neikvætt sjóðsstreymi á mánuði vegna reksturs Icelandair við núverandi aðstæður. 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.