Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 26

Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 26
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Í ungbarnalínu Childs Farm er að finna einstaklega mildar vörur sem hafa reynst börnum með viðkvæma húð vel. Vörurnar inni- halda eingöngu skaðlaus og nátt- úruleg efni sem ekki valda ertingu og mikilvægar olíur sem bæði stuðla að heilbrigði húðarinnar og gefa yndislegan ilm. „Meginmarkmið Childs Farm er að vörur merkisins séu eins mildar og kostur er, en gefi jafnframt ungri og viðkvæmri húð mikinn raka. Þannig innihalda sápurnar einnig mýkjandi olíur svo bað- ferðir valdi ekki óþarfa þurrki,“ segir Karen Elva Smáradóttir, vörumerkjastjóri Childs Farm á Íslandi. Róandi fyrir svefninn „Þegar talað er um að skapa góðar svefnvenjur fyrir ungbörn er rauði þráðurinn sá að finna ákveðna röð atburða sem gerast á hverju kvöldi fyrir svefn, svo að barnið finni að nú sé að koma að nætursvefni. Þótt engin þörf sé á að baða börn dag- lega finnst þeim flestum notalegt í baðinu og það skapar dýrmætt tækifæri fyrir nána sam- veru,“ segir Karen Elva. „Margir kjósa því að hafa rólegan baðtíma á kvöldin sem hluta af háttatímarútínu barna sinna, og þess vegna hefur Childs Farm þróað vörur sínar með þetta að leiðarljósi.“ Ein af þessum vörum er Bed- time Bubbles sem er milt og létt- freyðandi freyðibað sem inniheld- ur róandi tangerínuolíu. Karen segir að olían sé talin hafa svipað róandi eiginleika og lavender, en valdi síður ertingu. Freyðibaðið hefur einnig ýmis rakagefandi innihaldsefni og hefur því ekki þurrkandi áhrif á viðkvæma ung- barnahúð. „Til þess að vera viss um að innihald Bedtime Bubbles myndi ekki valda ertingu fékk Childs Farm foreldra um allt Bretland til liðs við sig og voru fengin 100 ungbörn á aldrinum 0-18 mánaða sem höfðu verið greind með exem til að prófa vöruna. Foreldrar 94% þeirra sögðu freyðibaðið ekki hafa haft ertandi áhrif á húð barna sinna,“ segir Karen Elva. Nudd og notalegheit Eftir baðferðir, hvort sem þær hafa verið rólegar eða fjör- ugar, er tilvalið að ná enn meiri ró og tengingu við barnið með því að gefa því létt nudd. Childs Farm Massage Oil er létt nudd- olía í úðaformi sem inniheldur fjórar mis- munandi olíur sem allar hafa sína eiginleika. „Lífræn kókosolía ilmar ekki bara dásamlega heldur hefur hún mýkjandi og róandi áhrif á ertingu í húð, eins og exem og bleyjuútbrot. Olía úr vínberja- kjarna er talin hafa bólgueyðandi og græðandi áhrif. Baobab-olía hefur hátt innihald A-, E-, F- og D3-vítamína og fyrir utan að vera frábær rakagjafi fyrir húðina hefur hún einnig róandi og bólgu- eyðandi eiginleika sem gerir það að verkum að hún getur minnkað húðertingu og og þurrk,“ útskýrir Karen Elva. „En Childs Farm nuddolían er ekki bara góð fyrir rólegt ung- barnanudd, heldur er hún frábær sem rakakrem á þurra húð, enda smýgur hún vel inn í húðina. Sumar mömmur hafa meira að segja stolist til þess að bera hana á fótleggi sína eftir rakstur!“ Þrjóskir þurrkblettir Það er oft erfitt að eiga við þrá- láta þurrkubletti og útbrot. Eins og margar Childs Farm vörur er bossakremið í ungbarnalínunni ekki bara ætlað til þess að halda bleyjubossum mjúkum og sætum, heldur er kremið svo græðandi að það hentar einmitt vel á exem og erfiða þurrkbletti að sögn Karenar Elvu. „Bossakremið er ilmefnalaust, inniheldur græðandi Aloe vera og ofurrakagefandi shea- og kakósmjör. Kremið inni- heldur ekki sink og smýgur því hratt inn í húðina og má nota á alla þurrkbletti ásamt því að vera öruggt fyrir taubleyjur,“ upplýsir hún. Childs Farm-vörurnar eru próf- aðar af húðlæknum og samþykkt- ar af barnalæknum. Í þeim eru engin paraben, ekkert SLES, engar steinefnaolíur né tilbúin litar- efni. Vörulínan samanstendur af sérhæfðri ungbarnalínu, krakka- línu og sólarlínu, sem innihalda f lestar hársápu, baðsápu, krem og freyðibað. Sérhæfða ungbarna- línan inniheldur allt sem þarf til að hreinsa og næra húð ungbarna, jafnvel þótt húðin sé viðkvæm eða gjörn á að fá exem. Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Eftir baðferðir er tilvalið að ná enn meiri ró og tengingu við barnið með því að gefa því létt nudd. Childs Farm Massage Oil er létt nuddolía í úðaformi sem inniheldur fjórar mismunandi olíur, sem allar hafa sína eiginleika. Margir kjósa að hafa rólegan baðtíma á kvöldin sem hluta af háttatíma rútínu barna sinna. Childs Farm hefur þróað vörur sínar með þetta að leiðarljósi. Framhald af forsíðu ➛ Vissir þú: að baðferðir geta haft mjög þurrkandi áhrif á húð okkar allra? Þess vegna skiptir máli að hugsa vel um hvað við setjum í baðið og passa að bera gott rakagefandi krem eða olíu á húðina strax á eftir. Vissir þú: að ungbarnanudd er almennt talið g óð leið til þess að sý na barninu ást og um hyggju í gegnum snerting u, sem er mikilvæg fyrir v öxt og velferð barna síðar. Meginmarkmið Childs Farm er að vörur merkisins séu eins mildar og kostur er, en gefi jafnframt ungri og viðkvæmri húð mikinn raka. Karen Elva Smáradóttir Childs Farm vörurnar eru prófaðar af húðlæknum og samþykktar af barnalæknum. Í þeim eru engin paraben, ekk- ert SLES, steinefnaolíur eða tilbúin litarefni. Vörulínan samanstendur af ungbarnalínu, krakkalínu og sólarlínu. 2 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RFYRSTU ÁRIN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.