Fréttablaðið - 16.09.2020, Page 26
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Í ungbarnalínu Childs Farm er að finna einstaklega mildar vörur sem hafa reynst börnum með
viðkvæma húð vel. Vörurnar inni-
halda eingöngu skaðlaus og nátt-
úruleg efni sem ekki valda ertingu
og mikilvægar olíur sem bæði
stuðla að heilbrigði húðarinnar og
gefa yndislegan ilm.
„Meginmarkmið Childs Farm er
að vörur merkisins séu eins mildar
og kostur er, en gefi jafnframt
ungri og viðkvæmri húð mikinn
raka. Þannig innihalda sápurnar
einnig mýkjandi olíur svo bað-
ferðir valdi ekki óþarfa þurrki,“
segir Karen Elva Smáradóttir,
vörumerkjastjóri Childs Farm á
Íslandi.
Róandi fyrir svefninn
„Þegar talað er um að skapa
góðar svefnvenjur fyrir
ungbörn er rauði
þráðurinn sá að
finna ákveðna
röð atburða sem
gerast á hverju
kvöldi fyrir
svefn, svo að
barnið finni að
nú sé að koma
að nætursvefni.
Þótt engin þörf sé
á að baða börn dag-
lega finnst þeim flestum
notalegt í baðinu og það skapar
dýrmætt tækifæri fyrir nána sam-
veru,“ segir Karen Elva.
„Margir kjósa því að hafa
rólegan baðtíma á kvöldin sem
hluta af háttatímarútínu barna
sinna, og þess vegna hefur Childs
Farm þróað vörur sínar með þetta
að leiðarljósi.“
Ein af þessum vörum er Bed-
time Bubbles sem er milt og létt-
freyðandi freyðibað sem inniheld-
ur róandi tangerínuolíu. Karen
segir að olían sé talin hafa svipað
róandi eiginleika og lavender, en
valdi síður ertingu. Freyðibaðið
hefur einnig ýmis rakagefandi
innihaldsefni og hefur því ekki
þurrkandi áhrif á viðkvæma ung-
barnahúð.
„Til þess að vera viss um að
innihald Bedtime Bubbles myndi
ekki valda ertingu fékk Childs
Farm foreldra um allt Bretland
til liðs við sig og voru fengin 100
ungbörn á aldrinum 0-18 mánaða
sem höfðu verið greind með exem
til að prófa vöruna. Foreldrar 94%
þeirra sögðu freyðibaðið ekki hafa
haft ertandi áhrif á húð barna
sinna,“ segir Karen Elva.
Nudd og notalegheit
Eftir baðferðir, hvort
sem þær hafa verið
rólegar eða fjör-
ugar, er tilvalið
að ná enn meiri
ró og tengingu
við barnið
með því að
gefa því létt
nudd. Childs
Farm Massage
Oil er létt nudd-
olía í úðaformi sem
inniheldur fjórar mis-
munandi olíur sem allar hafa sína
eiginleika.
„Lífræn kókosolía ilmar ekki
bara dásamlega heldur hefur
hún mýkjandi og róandi áhrif
á ertingu í húð, eins og exem og
bleyjuútbrot. Olía úr vínberja-
kjarna er talin hafa bólgueyðandi
og græðandi áhrif. Baobab-olía
hefur hátt innihald A-, E-, F- og
D3-vítamína og fyrir utan að vera
frábær rakagjafi fyrir húðina
hefur hún einnig róandi og bólgu-
eyðandi eiginleika sem gerir það
að verkum að hún getur minnkað
húðertingu og og þurrk,“ útskýrir
Karen Elva.
„En Childs Farm nuddolían er
ekki bara góð fyrir rólegt ung-
barnanudd, heldur er hún frábær
sem rakakrem á þurra húð, enda
smýgur hún vel inn í húðina.
Sumar mömmur hafa meira að
segja stolist til þess að bera hana á
fótleggi sína eftir rakstur!“
Þrjóskir þurrkblettir
Það er oft erfitt að eiga við þrá-
láta þurrkubletti og útbrot. Eins
og margar Childs Farm vörur er
bossakremið í ungbarnalínunni
ekki bara ætlað til þess að halda
bleyjubossum mjúkum og sætum,
heldur er kremið svo græðandi
að það hentar einmitt vel á
exem og erfiða þurrkbletti
að sögn Karenar Elvu.
„Bossakremið er
ilmefnalaust, inniheldur
græðandi Aloe vera og
ofurrakagefandi shea- og
kakósmjör. Kremið inni-
heldur ekki sink og smýgur
því hratt inn í húðina og má
nota á alla þurrkbletti ásamt því
að vera öruggt fyrir taubleyjur,“
upplýsir hún.
Childs Farm-vörurnar eru próf-
aðar af húðlæknum og samþykkt-
ar af barnalæknum. Í þeim eru
engin paraben, ekkert SLES, engar
steinefnaolíur né tilbúin litar-
efni. Vörulínan samanstendur af
sérhæfðri ungbarnalínu, krakka-
línu og sólarlínu, sem innihalda
f lestar hársápu, baðsápu, krem og
freyðibað. Sérhæfða ungbarna-
línan inniheldur allt sem þarf til
að hreinsa og næra húð ungbarna,
jafnvel þótt húðin sé viðkvæm eða
gjörn á að fá exem.
Childs Farm fæst í Hagkaup,
Krónunni, Fjarðarkaupum og
apótekum um land allt.
Eftir baðferðir er tilvalið að ná enn meiri ró og tengingu við barnið með því að gefa því létt nudd. Childs Farm
Massage Oil er létt nuddolía í úðaformi sem inniheldur fjórar mismunandi olíur, sem allar hafa sína eiginleika.
Margir kjósa að hafa rólegan baðtíma á kvöldin sem hluta af háttatíma rútínu barna sinna. Childs Farm hefur þróað vörur sínar með þetta að leiðarljósi.
Framhald af forsíðu ➛
Vissir þú: að baðferðir geta haft mjög þurrkandi áhrif á húð okkar allra? Þess vegna skiptir máli að hugsa vel um hvað við setjum í baðið og passa að bera gott rakagefandi krem eða olíu á húðina strax á eftir.
Vissir þú:
að ungbarnanudd
er almennt talið g
óð
leið til þess að sý
na
barninu ást og um
hyggju
í gegnum snerting
u, sem
er mikilvæg fyrir v
öxt
og velferð barna
síðar.
Meginmarkmið
Childs Farm er að
vörur merkisins séu eins
mildar og kostur er, en
gefi jafnframt ungri og
viðkvæmri húð mikinn
raka.
Karen Elva
Smáradóttir
Childs Farm vörurnar eru prófaðar af húðlæknum og samþykktar af barnalæknum. Í þeim eru engin paraben, ekk-
ert SLES, steinefnaolíur eða tilbúin litarefni. Vörulínan samanstendur af ungbarnalínu, krakkalínu og sólarlínu.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RFYRSTU ÁRIN