Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 32
D-vítamín er nauð-
synlegt fyrir heil-
brigt taugakerfi, heila,
hjarta og æðakerfi. Það
er nauðsynlegt fyrir
húðina, beinin, sjónina
og heyrnina svo nokkuð
sé nefnt og það ver
okkur fyrir alvarlegum
sjúkdómum.
Hver einasta fruma líkamans þarf D-vítamín og það er jafnframt eina vítamínið
sem við þurfum að fá á bætiefna-
formi alla ævi. Fljótlega eftir
fæðingu þarf að huga að D-víta-
míngjöf fyrir ungbarnið því að
móðurmjólkin sem er svo nær-
ingarrík inniheldur ekki nægilegt
magn af þessu vítamíni.
Börn með beinkröm á Íslandi
D-vítamín er mikilvægt fyrir
nýtingu kalks í líkamanum og
þeim, sem fá ekki nóg af því, er
hættara en öðrum við að fá bein-
þynningu, vöðvarnir verða veikari
og líkur á beinbrotum aukast.
Hjá börnum kemur algjör D-víta-
mínskortur fram sem beinkröm
en þá bogna bein í fótleggjum og
rif bein svigna. Þessi sjúkdómur er
enn til staðar víða í heiminum og
því miður fyrirfinnst hann enn á
Íslandi þó sjaldgæfur sé. Skortur
á D-vítamíni í fullorðnum getur
valdið beinþynningu, beinmeyru,
vöðvarýrnun og tannskemmdum.
D-vítamínskortur á
norðlægum slóðum
Sérfræðingar við Friedman School
of Nutrition Science and Policy
hafa birt rannsóknir sem gerðar
voru á skólabörnum í Boston og
sýndu að allt að 90% þeirra voru
með D-vítamínskort. Einnig
kom þar fram að þeir sem eru í
ofþyngd, með dökka húð og/eða
lifa á norðlægum slóðum séu oftar
með skort en aðrir. Í framhaldi af
þessu var skoðað hvað það þyrfti
mikið magn í daglegri inntöku
af D-vítamíni til að hækka gildin
hjá þeim börnum sem mældust
með skort. Í ljós kom að stærstur
hluti barnanna þurfti að taka
2.000 a.e. (alþjóðlegar einingar)
af D-vítamíni í 6 mánuði til að
ná ásættanlegum gildum en
hámarksskammtur fyrir 9 ára og
eldri er 4.000 a.e. á dag. Þetta segir
okkur að ef um D-vítamínskort er
að ræða, dugir ekki að taka bara
ráðlagðan dagskammt, enda eru
eru þeir hugsaðir til að viðhalda
þeim gildum sem fyrir eru, ekki til
að hækka þau.
Hvar fáum við D-vítamín?
Þetta vítamín er ekki eins og
önnur vítamín sem getum fengið
úr fjölbreyttri fæðu en aðeins
um 10% af D-vítamíni kemur úr
Eplaedik hefur verið notað sem heilsubótarefni í aldaraðir,
bæði sem forvörn sem og vegna læknandi eiginleika.
Auk eplaediks innheldur Apple Cider ætiþistil, túnfífil og
kólín sem getur elft meltinguna, haft góð áhrif á lifrina og
leitt til eðlilegs niðurbrots á fitu. Svo er króm sem er gott
fyrir blóðsykursjafnvægið og slær þannig á sykurlöngun.
Aðeins ein tafla á dag og ekkert bragð!
Eplaedik
– lífsins elexír
• Hreinsandi
• Vatnslosandi
• Gott fyrir meltinguna
• Getur lækkað blóðsykur
• Getur dregið úr slímmyndun
• Gott fyrir þvagblöðru, lifur og nýru
New Nordic Apple cider 5x10 copy.pdf 1 17/09/2018 12:05
D-vítamín frá fæðingu
Það verður seint talað of mikið um nauðsyn þess að taka inn D-vítamín. Öllum er ráðlagt að gefa
börnum sínum D-vítamín, nánast frá fæðingu, en skortur á því getur haft alvarlegar afleiðingar.
Sumir telja að of lítil inntaka á D-vítamíni sé orðin alvarlegt og útbreitt heilbrigðisvandamál í heiminum í dag.
DLúx – junior er fyrir börn eldri en
þriggja ára. Gott piparmintubragð
og hver úði inniheldur 400 a.e.
Þriggja mánaða skammtur í glasi.
DLúx – infant fyrir börn yngri en
þriggja ára. Hver úði inniheldur
400 a.e. sem er sami styrkleiki og í
junior-blöndinni en bragðlaus.
Sykurlaust
og án
gerviefna
matnum. Það eru ekki
margar tegundir matar
sem innihalda D víta-
mín en helst ber að
nefna lax, egg, ost,
shiitake-sveppi og
svo vítamínbættar
matvörur. Sólin er
helsta og besta uppspretta
D-vítamíns en það verður
til í líkama okkar vegna áhrifa
UVB-geisla sólarinnar á húðina.
Þetta gerist eingöngu þegar hún er
mjög hátt á lofti og því erfitt fyrir
fólk á norðurslóðum að tryggja
sér nægilegt magn nema rétt yfir
hásumarið og þá ef engin sólar-
vörn er notuð. Gott ráð er að leyfa
sólinni að skína á líkamann í ca. 20
mínútur án sólarvarnar en þannig
er vænn skammtur af D-vítamíni
tryggður.
Börnin, beinin, kalk og D
Við höfum öll heyrt að kalk sé
nauðsynlegt fyrir tennur og bein.
Það er alveg hárrétt en ef það fylgir
ekki D-vítamín með, þá frásogast
ekki nema 10-15% af kalkinu.
Það eykst í 30-40% ef D-vítamín
er til staðar og þar sem við erum
að byggja upp og þétta beinin frá
fæðingu er nauðsynlegt að gefa
þetta vítamín strax. Það er ekki
síður mikilvægt fyrir tennurnar og
geta tannskemmdir einmitt verið
eitt af einkennum skorts.
Ráðlagðir dagskammtar
Landlæknisembættið hvetur fólk
til þess að taka D-vítamín sér-
staklega á formi bætiefna og eru
börn ekki undanskilin. Ráðlagt er
að gefa börnum frá 2 vikna aldri
D-vítamín daglega og er ráðlagður
dagskammtur fyrir börn 400 a.e.
Efri mörk ráðlagðrar neyslu eru
100 μg á dag (4.000 AE) fyrir full-
orðna, 50 μg (2.000 AE) fyrir börn
eldri en eins árs að tíu ára aldri og
25 μg (1.000 AE) fyrir ungbörn að
eins árs aldri.
Af hverju DLúx í úðaformi?
Munnúði tryggir hraða og mikla
upptöku því vítamínið seytlar
gegnum slímhúðina í munninum
og beint út í líkamann en þannig
er einnig minni hætta á maga-
ónotum, sérstaklega hjá börnum.
DLúx hentar grænmetisætum
og sykursjúkum sem og þeim sem
eru á glúteinlausu fæði. Inniheldur
engin gerviefni, salt, ger eða lakt-
ósa.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RFYRSTU ÁRIN