Fréttablaðið - 16.09.2020, Qupperneq 33
Átök meðal hluthafa
Á síðastliðnum tveimur áratugum
hafa mikil átök gjarnan geisað innan
hluthafahóps og stjórnar Vinnslu-
stöðvarinnar. Árið 2002 var hópur
hluthafa tengdur S-hópnum svo-
kallaða keyptur út úr fyrirtækinu. Á
næstu árum eftir það hófst áralöng
deila milli Vinnslustöðvarinnar og
Stillu útgerðar, sem var stór hluthafi
í fyrirtækinu, en Stilla útgerð var
félag í eigu bræðranna Guðmundar
og Hjálmars Kristj ánssona. Í sept-
ember 2018 lauk þeim deilum svo
þegar FISK Seafood á Sauðárkróki
hafði keypt þriðjungshlut í Vinnslu-
stöðinni, en seljandinn var Brim.
„Það hefur oft verið mikill slagur
um eignarhaldið á Vinnslustöðinni.
Guðmundur Kristjánsson hafði
náttúrulega þá hugmynd að eignast
Vinnslustöðina að fullu og beitti
til þess ýmsum brögðum. Höfðaði
fjórtán mál og rannsóknarbeiðnir á
hendur félaginu, stjórnendum þess
og hótaði hluthöfum einnig mál-
sóknum og fyrrverandi bæjarstjóra
Vestmannaeyja líka. Hann tapaði
öllum nema einu, sem hann vann í
fyrri hálfleik. En nú eru tvö ár síðan
okkur bárust þær gleðifréttir suður
yfir heiðar að Skagfirðingarnir í
FISK hefðu keypt Guðmund Krist-
jánsson út.“
Binni segir að samstaðan í hlut-
hafahópnum sé góð í dag: „Saga fyr-
irtækisins er lituð af miklum átök-
um meðal hluthafa. Fræg er sagan af
því þegar Vinnslustöðinni áskotn-
aðist mikið magn af niðursoðnum
ávöxtum á sjötta áratugnum. Það
lenti á borði stjórnar hvernig ætti
að deila því góssi út meðal hluthafa.
Hér hefur því ýmislegt gengið á síð-
astliðna áratugi. Vinnslustöðin er
þekkt fyrir átök meðal eigenda hér
í Vestmannaeyjum og víðar, hlut-
hafafundir hafa sjaldan verið ein-
hverjar hallelújasamkomur.“
Breyttar makrílgöngur
Markílvertíðin er nú senn á enda.
Úthlutað af lamark makríls var
138 þúsund tonn á yfirstandandi
kvótaári. Þar sem ekki tókst að veiða
allan makrílkvóta síðasta fiskveiði-
árs færðust þær aflaheimildir yfir
á yfirstandandi ár. Að meðtöldum
yfirfærslum og uppboðspottum
sjávarútvegsráðuneytisins til handa
smærri skipum er heildarmagn sem
leyfilegt er að veiða á yfirstandandi
fiskveiðiári um 167 þúsund tonn.
Sem stendur hefur um 150 þúsund
tonnum verið landað og því líklegast
að takast muni að veiða kvóta þessa
árs að fullu.
Hins vegar hefur makríllinn
haldið sig á öðrum slóðum en vana-
lega. Þegar tegundin gerði fyrst vart
við sig fyrir tíu árum voru veiðar
stundaðar af kappi suður af landinu
vel fram í júlí og torfurnar loks eltar
vestur og austur með landinu eftir
því sem leið á vertíðina. Í ágústlok
og september þurfti svo gjarnan að
sækja fiskinn í Síldarsmuguna aust-
ur af landinu. Í ár var veiðin suður
af landinu hins vegar döpur og allur
flotinn var mættur í Síldarsmuguna
í lok júlí og þar hefur nánast allur
afli veiðst á vertíðinni í ár.
„Það hefur verið erfið vertíð vegna
þess að við höfum þurft að sækja
fiskinn langt. Fiskurinn er að fitna,
laus í sér og viðkvæmur í vinnslu
og ekki sérlega góður matfiskur í
því ástandi. Því miður er makríll-
inn í sumar ekki af sömu gæðum
og undanfarin ár. Það er erfitt að
tryggja gæði aflans þegar náttúru-
legt ástand hans er ekki gott og svo
bætist við að það þarf að sigla með
hann svona langt til hafnar,“ segir
Binni.
„Göngumynstur makrílsins hefur
óneitanlega breyst mikið. Þetta
hefur áhrif á okkur. Það er dýrara
að sækja fiskinn svona langt. Þegar
makríllinn kemur inn í lögsöguna
hér er hann mjög magur. Svo fitnar
hann hratt í júlí og ágúst. Það er ekki
fyrr en undir lok ágúst og í septem-
ber þegar fiskurinn fer að grennast
aftur og fitan rennur inn í holdið
sem hægt er að selja fiskinn á hæsta
verði. Með þessum löngu siglingum
með aflann til hafnar verður afleið-
ingin sú að minni hluti makr ílsins er
seldur á hæsta verðinu og til mann-
eldis en áður. Þetta er því snúin staða
í augnablikinu. Við höfum verið
að veiða mest af þessum fiski rétt
við landhelgislínu Færeyja í suðri
og Norðmanna í austri. Þaðan er
tveggja sólarhringa sigling til Vest-
mannaeyja. Þetta er áhyggjuefni.“
En þegar einar dyr lokast þá opn-
ast aðrar. „Það eru þó jákvæð áhrif
fyrir Vestmannaeyjabæ að einu
leyti. Bærinn er fullur af pysjum
þannig að það er greinilega nóg af
æti í sjónum. Það var lítið af makríl
í fyrra við Eyjar og ennþá minna í
ár og við sjáum að pysjurnar koma
aftur í bæinn og eru núna feitari og
pattaralegri en í langan tíma. Því
gæti sú kenning verið rétt að mak-
ríllinn komi hér eins og engispret-
tufaraldur og tæmi sjóinn af æti.
Einhverjir hafa sagt að kannski
sjáum við árgang af humri verða til
hér suður af landinu þar sem makr-
íllinn stoppaði svo stutt við þetta
árið. Auðvitað verða vísindamenn-
irnir að svara því hvort eitthvað sé
til í þessum hugleiðingum, en marg-
ir hafa sagt að makríllinn éti lirfur
humarsins á hrygningartímanum.“
Þörf á loðnurannsóknum
Loðnubrestur varð annað árið í röð
fyrr á þessu ári. „Það er erfitt að spá í
loðnuna þar sem það hafa ekki verið
gerðar neinar grunnrannsóknir á
stofninum síðan 1927, þegar Bjarni
Sæmundsson var uppi. Mér finnst
skrítið að loðnurannsóknum hafi
ekki verið sinnt sem skyldi á síðast-
liðnum áratugum. Ég veit ekki hver
skýringin er. En við vitum til dæmis
lítið um breytingar á hrygningu
hennar við Ísland, það eru engar
haldbærar kenningar heldur bara
getgátur og sögusagnir. Ef þessum
rannsóknum yrði sinnt betur þá
myndum við kannski hafa meiri
skilning á þessum göngum loðnu og
loðnubresti sem hefur verið síðast-
liðin tvö ár. En sem betur fer sjáum
við breytingu í rétta átt núna í kjöl-
far aukinnar samvinnu útgerða,
Hafró og stjórnvalda,“ segir Binni.
„Það verður spennandi að sjá
loðnumælinguna núna í haust. En
miðað við mælinguna á síðasta ári
ætti kvótinn fyrir komandi vertíð að
geta verið allt að 400 til 500 þúsund
tonn. Það skiptir miklu máli fyrir
þjóðarbúið en líka fyrir markaðina
erlendis sem eru algjörlega tómir.
Sæmileg loðnuvertíð er 20 til 30
milljarðar fyrir þjóðarbúið, þetta er
sambærileg að umfangi og makr íl-
vertíðin.“
Mikil kreppa að skella á
COVID-19 heimsfaraldurinn hefur
haft áhrif á sjávarútveginn líkt
og f lestar aðrar atvinnugreinar.
Útflutningur á frystum fiski hefur
aukist mikið á kostnað fersk-
vöru. Eftirspurn veitingahúsa
hefur minnkað þar sem þeim var
víða lokað. „Það verða breytingar
á neyslumynstri, en áfram verða
jafnmargir munnar að metta í
heiminum. Það sem er hins vegar
áhyggjuefni er að hagkerfi heimsins
er að dragast saman. Meiriháttar
kreppa er að skella á um allan heim,
það er ekki bara á Íslandi. Við höfum
verið að selja töluvert af svokölluðu
masago til sushistaða í Bandaríkj-
unum, sem er afurð unnin úr loðnu-
hrognum. Það hefur hreinlega ekki
verið spurt um það á síðustu mán-
uðum, enda var nánast öllum sushi-
stöðum á vestur- og austurströnd
Bandaríkjanna lokað. Þetta er
aðeins farið að hjarna við núna enda
virðist vera sem við þurfum að læra
að lifa með þessari veiru, því erfitt
virðist að útrýma henni endanlega.
Auðvitað endar með því að
aðferðir verða fundnar til að takast
á við þessa farsótt, sama hvort það
verður með bóluefni eða öðrum
aðferðum. Manni virðist sem fólk
sé ekki að veikjast jafn illa núna og
síðasta vor, svo að vonandi er þetta
í rénun. Það er sennilega vegna þess
að heilbrigðiskerfin eru að læra að
bregðast við þessu og takast á við
þetta. Ég get ekki sagt hvort veiran
sé að veikjast eða ekki, en þetta er
vonandi að síast í gegn. Hins vegar
óttast ég að veitingahús verði síður
vinsæl til skemmri tíma, þess vegna
gætum við þurft að breyta okkar
vöruframboði. Við sjáum það hjá
sölufyrirtæki okkar í Japan að „take
away“ er orðið miklu stærra en það
var og eftirspurn viðskiptavina
breytist samkvæmt því,“ segir Binni
að endingu.
20
18
16
14
12
10
8
6
4
2
✿ Fjárfestingar VSV í varanlegum rekstrarfjármunum
milljónir evra
200
9
201
0
201
1
201
2
201
3
201
4
201
5
201
6
201
7
201
8
201
9
Kosningar til Alþingis
og stjórnarskipti
200
9
201
0
201
1
201
2
201
3
201
4
201
5
201
6
201
7
201
8
201
9
✿ EBITDA VSV 2009-2019
milljónir evra
25
20
15
10
5
Furðar sig á niðurstöðum Kastljóss
Mikið hefur verið fjallað um
vinnuskjal Verðlagsstofu skipta
verðs vegna útflutnings á karfa á
undanförnum vikum, en skjalið
var grundvöllur umfjöllunar
Ríkisútvarpsins árið 2012. Þrátt
fyrir að Samherji hafi verið
aðalumfjöllunarefni fjölmiðla
í tengslum við það var út
flutningur Vinnslustöðvarinnar á
karfa einnig nefndur í téðu skjali í
tengslum við undirverðlagningu
á erlendum mörkuðum, en
einn Kastljóssþáttur fjallaði um
Vinnslustöðina:
„Eftir umfjöllun Kastljóssins
voru bæði stjórn og stjórnendur
Vinnslustöðvarinnar kærð til
sérstaks saksóknara vegna gruns
um ýmis brot, meðal annars
undanskot á gjaldeyri með því að
undirverðleggja fisk erlendis. Það
hefði leitt til þess að sjómenn
fengju lægri tekjur og ríkissjóður
minni tekjur. Af þessu var svo
ályktað að arður af auðlindinni
væri fluttur úr landi í stórum stíl
vegna þess að íslensk útgerðar
fyrirtæki ættu í viðskiptum við
eigin dótturfélög erlendis. Málinu
var vísað frá hjá saksóknara þar
sem ekkert sakarefni fannst.
Svo kemur þetta merkilega
skjal frá Verðlagsstofu skipta
verðs í leitirnar fyrir skömmu. Þar
kemur fram að söluverð Vinnslu
stöðvarinnar var miklu hærra en
meðalverðið á innlendum mörk
uðum hérlendis og hærra en verð
á uppboðsmörkuðum erlendis.
Skjal Verðlagsstofu er mein
gallað og óhæft til samanburðar
og ályktana eins og gert var í
Kastljóssþáttunum. En með
þeim fyrirvara þá kemur þar
fram í skjalinu að á árinu 2008 var
meðalverð á uppboðsmörkuðum
í Þýskalandi tæplega 226 krónur,
en okkar söluverð liggur á bilinu
230 til 290 krónur, mismunandi
eftir bátum. Þetta er Kastljósið
með fyrir framan sig og sakar
okkur svo um undirverðlagningu.
Ég er ekki hissa á að Helgi Seljan
hafi ekki geymt skjalið í gagna
geymslu RÚV, ef hún er þá til, og
ekki viljað að það kæmi fram í
dagsljósið. Það sýnir nefnilega að
allt sem hann sagði um Vinnslu
stöðina í Kastljóssþættinum voru
ósannindi. Eina sem við biðjum
um er leiðrétting og afsökunar
beiðni en auðvitað dettur RÚV
ekki í hug að éta vitleysuna ofan
í sig og biðjast velvirðingar á
ósannindum sínum í okkar garð.
Þeir standa enn við umfjöllun
sína í Kastljóssþættinum fræga.“
hann svona langt til hafnar,“ segir Binni í Vinnslustöðinni. MYND/ÓSKAR PÉTUR
Fræg er sagan af því
þegar Vinnslustöð-
inni áskotnaðist mikið
magn af niðursoðnum
ávöxtum á sjötta áratugn-
um. Það lenti á borði stjórn-
ar hvernig ætti að deila því
góssi út meðal hluthafa.
Það var lítið af
makríl í fyrra við
Eyjar og ennþá minna í ár og
við sjáum að pysjurnar
koma aftur í bæinn og eru
núna feitari og pattaralegri
en í langan tíma. Því gæti sú
kenning verið rétt að
makríll inn komi hér eins og
engisprettufaraldur og tæmi
sjóinn af æti.
MARKAÐURINN 9M I Ð V I K U D A G U R 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0