Fréttablaðið - 16.09.2020, Page 42

Fréttablaðið - 16.09.2020, Page 42
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Hátt kólesteról, hár blóðþrýst-ingur og kvíði eru algengir kvillar sem oft eru með- höndlaðir með lyfjum. En stundum þolir fólk ekki lyfin eða vill ekki nota þau af einhverjum ástæðum. Dr. Donald Levy, yfirlæknir við sjúkrahúsið Brigham and Women’s hospital í Boston og aðstoðarpró- fessor í læknisfræði við læknadeild Harvard-háskóla, segir að í þessum tilvikum geti fæðubótarefni verið valkostur. Rannsóknir hafa sýnt að sumar jurtir, vítamín, steinefni og önnur efni, ein og sér eða notuð með hefðbundinni meðferð, geta verið áhrifarík við meðhöndlun þessara kvilla og eru að mestu leyti örugg í notkun. Auðvitað skal þó aldrei sleppa lyfjum án þess að ráðfæra sig við lækni. Hátt kólesteról Statínlyf eru oft notuð við háu kól- esteróli. En samkvæmt greininni frá Harvard eru aðrir kostir í boði fyrir fólk sem getur ekki tekið lyfin. Fyrir sjúklinga sem þola ekki statínlyf og eru með D-vítamín- skort gæti D3-vítamín viðbót hjálpað, samkvæmt dr. Levy. Hann segir áhugavert að sumir sem þoldu statín ekki áður þola það eftir að hafa tekið inn D3-vítamín. Plöntusterólar eru unnir úr frumuhimnum plantna og hægt er að taka þá í pilluformi. Þeir finnast einnig náttúrulega í matvælum eins og hnetum, baunum, ávöxtum og grænmeti. Rannsóknir sýna að plöntusterólar geta lækkað „slæmt“ LDL-kólesteról um allt að 14% hjá fólki sem tekur 2.000 til 3.000 milli- grömm á dag, samkvæmt dr. Levy. Nýleg rannsókn sem meðal annars var unnin af vísindamönnum íslenskrar erfðagreiningar, sýnir aftur á móti að það getur verið varhugavert að neyta viðbættra plöntusteróla í miklu magni. Rauð hrísgrjón eru hrísgrjón sem hafa verið gerjuð með rauðu geri. Þau hafa lengi verið notuð í kínverskri læknisfræði og nútíma- rannsóknir sýna að fólk sem tekur 2.400 til 3.600 mg á dag í hálft ár getur lækkað LDL-kólesteról- magnið í blóðinu um 20% til 25% samkvæmt dr. Levy. Rannsókn frá 2008 sem birt var í tímariti banda- rískra hjartalækna leiddi í ljós að rauð hrísgrjón minnkuðu líkur á dauðsföllum og endurteknum hjartaáföllum hjá hátt í 5.000 manns sem tóku bætiefni gerð úr hrísgrjónunum eftir að hafa fengið hjartaáfall. Dr. Levy ráðleggur fólki þó að vanda vel valið á bæti- efnum úr rauðum hrísgrjónun þar sem sum þeirra geta innihaldið skaðleg efni. Hár blóðþrýstingur Dr. Levy segir að sýnt hafi verið fram á að nokkur fæðubótarefni geti dregið úr háum blóðþrýstingi. Sumt fólk skortir magnesíum en þar sem magnesíum er að miklu leyti geymt í frumunum eru blóð- rannsóknir ekki góðar til að greina heildarmagnesíumgildi líkamans. Skorturinn uppgötvast oft ekki fyrr en næringarfræðingur hefur greint mataræði fólks, samkvæmt dr. Levy. Hjá þessu fólki geta fæðu- bótarefni aukið magnesíumgildi og hjálpað til við að draga úr háum blóðþrýstingi, þegar þau eru tekin ásamt hefðbundinni blóðþrýst- ingsmeðferð. Dr. Levy segir að það taki venjulega allt að sex vikur áður en fæðubótarefnin hafa áhrif en ítrekar samt að inntaka magn- esíums sé ekki fyrir alla, sérstak- lega ekki fólk með nýrnasjúkdóm, þess vegna sé best að ráðfæra sig við lækni áður en fólk ákveður að taka inn magnesíum. Lýkópen er andoxunarefni sem getur einnig hjálpað til við að draga úr háum blóðþrýstingi. Það er efnið sem gefur grænmeti eins og tómötum rauða litinn. Þó að matvörur úr tómötum, þar með taldar niðursoðnar sósur, inni- haldi lýkópen, þá innihalda þessi matvæli oft mikið af natríum. Þess vegna getur verið betra í mörgum tilfellum að taka inn bætiefni sem innihalda lýkópen. Dr. Levy segir best að nota bætiefni sem inni- halda einnig tómatþykkni. Hann segir að venjulega þurfi taka 15 til 25 mg af lýkópeni daglega til að blóðþrýstingurinn lækki. Kvíði Efni sem dregið er úr kamillu hefur lengi verið notað sem meðferð við kvíða. Kvíði helst oft í hendur við svefnleysi og því kemur það ekki á óvart að oft er mælt með að taka inn kamillu við svefnvanda- málum. Það er algengt að drekka kamillute en það getur verið gott að taka kamillu inn sem bætiefni sé hún tekin inn seint á kvöldin, til að trufla ekki nætursvefn með salernisferðum. Rannsóknir hafa leitt í ljós að fólk sem tók inn bæti- efni úr kamillu upplifði að kvíði minnkaði, mun meira en fólk sem tók lyfleysu samkvæmt dr. Levy. Bætiefni geta virkað vel á þessa þrjá algengu kvilla Rannsóknir sýna að vissar jurtir, vítamín og steinefni geta hjálpað til við að stjórna kólesteról- magni, blóðþrýstingi og kvíða, samkvæmt grein sem birtist á vef læknadeildar Harvard-háskóla. Bætiefnin geta verið áhrifarík við meðhöndlun þessara kvilla og eru að mestu leyti örugg. Rannsóknir hafa sýnt að sumar jurtir, vítamín og steinefni geta verið áhrifarík við meðhöndlun algengra kvilla. MYND/GETTY Lýkópen er andox- unarefni sem getur einni hjálpað til við að draga úr háum blóð- þrýstingi. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.