Fréttablaðið - 16.09.2020, Síða 52
Öll klassíkin
Allar þekktustu, og vinsælustu
Disney-myndirnar í gegnum tíð-
ina eru aðgengilegar á Disney+
þannig að fólk getur fyrirhafnar-
laust tapað sér í nostalgíunni og
notað tækifærið til þess að fylla
í eyðurnar í teiknimyndauppeld-
inu en þessar fimm þurfa allir að
sjá í það minnsta einu sinni.
Mjallhvít og dvergarnir sjö
(1937)
Fyrsta teiknimynd Walt Disney í
fullri lengd er enn töfrum gædd
og hefur haldið aðdráttarafli sínu
í gegnum áratugina enda ævin-
týrið um útlægu prinsessuna,
vondu nornina, spegil hégómans,
eitraða eplið og glerkistuna eins
sígilt og hugsast getur. Svo eru
þarna líka sjö fyndnir dvergar.
Þyrnirós (1959)
Disney hefur frá upphafi gert út
á prinsessur með góðum árangri
og þótt Þyrnirós sé nokkuð yngri
en Mjallhvít hefur hún náð að
skyggja á þá síðarnefndu í seinni
tíð og munar þar mest um slag-
kraftinn í norninni Maleficent
sem er einn eftirminnilegasti
skúrkur Disney.
Efnisveitan Disney+ varð í gær aðgengileg notendum á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Portúgal, Belgíu og Lúxemborg,
þannig að líklega mun bætast
hressilega við þær 60,5 milljónir
sem nú þegar eru áskrifendur að
Disney+.
Úrvalið er enda magnað en veitan
sækir kvikmyndir og þætti til Pixar,
Marvel, Star Wars og National Geo
graphic auk gamla, góða Disney með
allar sínar sígildu teiknimynda
perlur og sögulegu ævintýri, og
heimskupör Mikka músar og Andr
ésar andar, svo eitthvað sé nefnt.
Rosalegur valkvíði
Komu Disney+ til landsins var meðal
annars fagnað í Facebookhópnum
Fullorðnir aðdáendur teiknimynda,
sem telur um 1.100 meðlimi.
„Ég sé að það eru margir mjög
spenntir yfir að Disney+ er loksins
búið að opna aðgang fyrir Íslend
inga. Ég er allavega mjög spennt!
Hvernig er hægt að velja úr hvað
verður fyrst á dagskrá til að horfa
á? Aaaaaalltof mikið í boði!“ bendir
Rakel Ósk, einn stjórnenda hópsins,
á og bætir við að líklega muni hún
byrja í klassíkinni. Mögulega Lion
King. „Ef ég þori að horfa á Múfasa
farast einu sinni enn.“
Þessi viðbrögð við innleggi Rak
elar segja f lest sem segja þarf um
gleðina yfir því að biðin sé á enda.
„Ég lenti akkúrat í sóttkví í dag! Því
lík tímasetning en ég held að ég fari
í nýja Duck Tales fyrst,“ segir Nína
Snorradóttir og Steingrímur Viðar
bætir við: „Er strax farinn að horfa.
Valkvíðinn er rosalegur.“
Allt á einum stað
Marvel og Star Warsnördar fagna
ekki síður, en Daníel Rósinkrans er
einn þeirra. „Ég var reyndar einn af
þeim sem fóru hjáleið. Ég gat náttúr
lega ekkert beðið og nýtti mér að ég
er með Appleaðgang í Bandaríkj
unum og fór þá leið,“ segir hann og
tekur undir að hér sé um hvalreka
við Íslands strendur að ræða.
„Ég myndi segja það. Sérstaklega
ef þú ert Marvel eða Star Wars
aðdáandi eins og ég. Og svo bara
þessar Disneyteiknimyndir. Þá
er þetta held ég alveg solid díll,“
segir Daníel, en mánaðaráskrift að
streymisveitunni kostar 6,99 evrur
eða rétt rúmar 1.100 krónur.
„Mér finnst þetta geggjað vegna
þess að nú er dóttir mín að verða
tveggja ára og fer að geta horft
á kvikmyndir þannig séð og þá
finnst mér frábært að geta flett upp
á Aladdín, Fríðu og dýrinu og öllum
þessum teiknimyndasöguhetjum á
einum stað.“
Íslensku draumurinn
Engan íslenskan texta er þó að sjá
eða heyra á Disney+, sem vekur
furðu margra og á Facebook lýsir
fólk bæði óánægju sinni og vonum,
um að fljótlega verði bætt úr þessu
þar sem enginn skortur er á íslensk
um þýðingum og talsetningum
þegar efni frá Disney er annars
vegar.
„Gleðilegan Disney+ dag. Í 5 mín
útna hraðskoðun sé ég ekkert talsett
a íslensku samt. Vonandi kemur það
fljótt,“ segir Sædís Anna í Facebook
hópi fullorðna teiknimyndafólksins
við nokkrar undirtektir.
Ævar Þór Benediktsson, einnig
þekktur sem vísindamaður, segir
til dæmis: „Hlýtur að koma f ljótt
Disney á allar talsetningarnar svo
það ætti ekki að þurfa að vera neitt
vandamál að setja inn.“ Einhverjir
lýsa því yfir að þeir muni ekki
kaupa aðgang fyrr en íslenskan fer
að streyma og Indriði Einar hvetur
til beinna aðgerða:
„Getum við plís hópast á Disney
að setja íslensku talsetningarnar
með? Ég skal glaður segja upp
Viaplay og draga úr Netflix ef það
gerist fyrir börnin mín.“
toti@frettabladid.is
Disney-straumurinn
skellur á Íslandi
Streymisveitan Disney+ var opnuð á Íslandi í gær og var víða tekið
fagnandi enda efnisúrvalið magnað þar sem afþreyingarrisinn
ræður meðal annars yfir Marvel og Star Wars. Á gleðina skyggir
þó að hvergi er íslenska þýðingu að sjá eða heyra.
COVID-19 varð til þess að Disney frumsýnir glænýja, leikna mynd um
Mulan á veitunni frekar en í bíó. Íslendingar geta séð hana 4. desember.
Daníel Rósinkrans dreif sig á Dis-
ney+ eftir krókaleið. MYND/AÐSEND
Leynilöggumúsin Basil (1986)
Þessi snúningur Disney á Sher-
lock Holmes er með allra bestu
Disney-myndum síðustu ára-
tuga og í raun merkilega van-
metin. Leynilögreglumúsin Basil
stendur enn fyrir sínu og má hafa
sig alla við í baráttunni við erki-
óvin sinn, ræsisrottuna prófessor
Rattigan sem gamla hrollvekju-
goðsögnin Vincent Price gerir
ógleymanleg skil.
Aladdín (1992)
Þetta teiknaða tilbrigði við 1001
nótt sló hressilega í gegn fyrir
28 árum og heldur öllum sínum
sjarma enn. Skúrkurinn Jafar er
öflugur og sagan spennandi en
Robin heitinn Williams yfirskygg-
ir þetta allt saman í brjálæðislega
hressri túlkun á andanum bláa í
lampanum góða.
Múlan (1998)
Það eru ekki liðin nema rétt
22 ár síðan Disney hristi fyrst
almennilega af sér prinsessu-
helgislepjuna með Mulan. Frá-
bærri og æsispennandi mynd
um kínversku stúlkuna Mulan
sem bjargar föður sínum með
því að dulbúast sem hermaður
og vinna mögnuð afrek á víg-
vellinum. Eddie Murphy sér um
senuþjófnaðinn í myndinni sem
verndardrekinn Músú.
Úrvalið á Disney+ er yfirþyrmandi þannig að hætta er á valkvíða en þar eru meðal annars allar gömlu Disney-
myndirnar, ofurhetjuhasarpakkinn frá Marvel, 600 Simpsons-þættir og ævintýri allt frá Bósa Ljósárs til Svarthöfða.
1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ