Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 54

Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 Þú finnur bæklinginn husgagnahollin.is www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N S ENDUM FR ÍT T 3ja sæta: 224 x 86 x 80 cm 239.992 kr. 299.990 kr. DC 8900 Klassískur og sérlega fallegur sófi með mjúku savoy/ split leðri. Sófinn er með mjúkbólstraða arma og það er einstaklega þægilegt að sitja í honum. 3ja sæta í svörtu og koníaksbrúnu leðri. DANSKIR DAGAR AFSLÁTTUR 20% AF ÖLLUM DÖNSKUM VÖRUM* * Gildir ekki af sérpöntunum og einungis af völdum vörum frá Skovby. LOKAVIKAN LÝKUR UM HELGINA Kristín Björg Sigurvins-dóttir gefur nú síðar í september út sína fyrstu bók, Dóttur hafsins. Þetta er sér-staklega merkilegt fyrir þær sakir að Kristín skrifaði grunninn að bókinni þegar hún var einungis þrettán ára gömul. Krist- ínu langaði að verða rithöfundur en útskrifaðist sem lögfræðingur áður en hún ákvað að gefa sig alla í það að skrifa, enda segist hún hafa áhuga á lögfræðinni en elska það að skrifa. Hún er þakklát eiginmanni sínum, Ívari Elí Sveinssyni, fyrir að hafa kvatt hana áfram í því að láta drauminn loksins rætast. „Ég byrja að skrifa tólf ára gömul og þetta var eitt af mínum helstu áhugamálum. Ég var feimin og vildi helst láta sem minnst fyrir mér fara. Þess vegna þótti mér svo gaman að lesa og skrifa. Í skáldskapnum gat maður verið hver sem er og ferðast hvert sem er,“ segir Kristín. Lengi verið draumurinn Kristín skrifaði þrjár bækur á aldr- inum þrettán til sautján ára. „Tvær á íslensku, það voru Dóttir hafsins og framhaldssaga af henni. Síðan skrifaði ég eina á ensku af því að ég fór í gegnum tímabil þar sem mér þótti hún flottari en íslenskan,“ segir Kristín. En hvernig tilfinning er það að gefa út sína fyrstu bók? „Það er erfitt að lýsa því, sérstak- lega þar sem þetta er búið að vera draumur frá tólf ára aldri. En ef ég reyni að koma því í orð þá myndi ég segja að það væri bara algjör draum- ur.“ Bókin Dóttir hafsins fjallar um Elísu sem er sextán ára unglingur á Vestfjörðum. „Eina nóttina heyrir hún tónlist berast frá hafinu. Tónlistin leiðir hana niður í fjöru og þar dregst hún inn í spennandi atburðarás í undir- djúpunum. Það sem mér finnst svo skemmtilegt við bókina er hvað sögu- sviðið er einstakt enda gerist bókin að mestu neðansjávar. Þar er heill heimur sem lesandi fær að kynnast.“ Hafið veitti Kristínu mikinn inn- blástur við skriftirnar. „Við búum á eyju og hafið er stór hluti af okkar menningu. Ég hef allt- af búið nálægt sjónum og það er svo mikil dulúð yfir hafinu sem gerir það að frábærum innblæstri fyrir skáld- skap.“ Í skúffu í rúman áratug Handritið að bókinni sat í tólf ár ofan í skúffu, þar til Kristín tók það aftur upp og las yfir fyrir tveimur árum. „Það læddist að mér stolt þegar ég las textann og það rifjaðist upp fyrir mér hversu gaman mér þótti að skrifa bókina,“ segir hún. Hún viðurkennir að það hafi komið henni nokkuð að óvart hve góð bókin var, þrátt fyrir að hún hafi skrifað hana svona ung. „Já, handritið kom mér virkilega á óvart þegar ég las það aftur öllum þessum árum seinna. Ég vissi í raun ekki alveg við hverju ég átti að búast. Í minningunni fannst mér handritið flókið og slitrótt þar sem ég hafði breytt því svo oft, en það reyndist ekki vera. Þarna var bara fullklárað handrit með skemmti- legum söguþræði. Margar hug- myndirnar komu mér á óvart og ég man eftir að hafa hugsað af og til á lestrinum: Mikið var ég sniðug þarna,“ segir Kristín, sem endur- skrifaði þó bókina frá grunni en studdist við hugmyndirnar úr upp- runalega handritinu, ásamt því að bæta við nýjum og skemmtilegum þráðum. Löngunin alltaf til staðar Kristín segist hafa þurft leggja skrifin til hliðar þegar hún byrjaði í lögfræðinni, enda námið krefjandi. „En löngunin til að skrifa var allt- af til staðar. Ég man að eina önnina tók ég mig til og byrjaði aftur að skrifa en það fór ekki betur en svo að ég ætlaði aldrei að geta slitið mig frá skrifunum og endaði á því að frumlesa allt efnið fyrir jólaprófin þá önnina. Svo það var öruggara að bíða með skrifin.“ Kristín ákvað að segja upp starfi sínu sem lögfræðingur til að geta helgað skrifunum meiri tíma. „Ég fór að vinna í hlutastarfi í bókabúð í staðinn. Mér finnst mjög gott að vinna með skrifunum, það brýtur svo upp daginn. Það var ekki auðveld ákvörðun að geyma lög- fræðina í bili og snúa sér að fullu að skrifunum. En mikið svakalega er ég ánægð með að hafa gert það og elt drauminn,“ segir hún. Dóttir hafsins kemur í allar helstu bókabúðir þann 22. september. Hún er fyrsta bókin í bókaf lokknum Dulstafir. steingerdur@frettabladid.is Skrifaði sína fyrstu skáldsögu þrettán ára Síðar í september kemur út fyrsta skáldsaga Kristínar Bjargar Sigurvinsdóttur og ber hún heitið Dóttir hafsins. Bókina skrifaði Kristín upphaflega þegar hún var einungis þrettán ára gömul. Kristín Björg Sigurvinsdóttir byrjaði að skrifa þegar hún var einungis tólf ára gömul. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÞAÐ VAR EKKI AUÐVELD ÁKVÖRÐUN AÐ GEYMA LÖGFRÆÐINA Í BILI OG SNÚA SÉR AÐ FULLU AÐ SKRIFUNUM. EN MIKIÐ SVAKA- LEGA ER ÉG ÁNÆGÐ MEÐ AÐ HAFA GERT ÞAÐ OG ELT DRAUM- INN. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook HVER VANN? Sportið á frettabladid.is færir þér allar nýjust fréttirnar úr heimi íþróttanna. 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.