Fréttablaðið - 22.09.2020, Side 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Það er
sannarlega
undarleg
staða en
skyndilega
snúast
forsetakosn-
ingar Banda-
ríkjanna að
miklu leyti
um rétt
kvenna til
þungunar-
rofs.
Grófarhúsið á
að verða
lifandi
menningar-
og samfélags-
hús í miðborg
Reykjavíkur.
Ruth Bader Ginsburg, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, lést síðastliðinn föstudag, 87 ára gömul, 46 dögum fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum.Ruth hafði þjónað sem dómari við réttinn í 27 ár og var önnur konan frá upphafi
til að taka sæti við dómstólinn sem samanstendur af
níu dómurum, skipuðum af sitjandi Bandaríkjaforseta.
Ruth tilheyrði frjálslyndari armi dómstólsins og
eiga kynsystur hennar, samkynhneigðir, innflytjendur
og fleiri hópar henni mikið að þakka, enda hefur hún
greitt atkvæði með mörgum stærstu mannréttinda
úrbótum sem rétturinn hefur fjallað um.
Líklega hefur aldrei verið sótt eins harkalega að jafn
rétti kynjanna og þessa stundina í landi hinna frjálsu,
Bandaríkjunum. Donald Trump, sitjandi forseti, hefur
fyrir löngu sannað að virðing fyrir réttindum kvenna,
er ekki eitt af hans aðalsmerkjum. Og nú, rétt fyrir
kosningar, fær hann óvænt tromp upp í hendurnar – en
örvæntingarfullt útspil er einmitt það sem hann þarf
til að kreista fram sigur í þarnæsta mánuði.
Árið 2016 fékk Trump mikinn meirihluta atkvæða
strangkristinna en sá hópur hefur hægt og bítandi
fjarlægst forseta sinn á líðandi kjörtímabili. Kannanir
hafa undanfarið sýnt að það væri óvarlegt af honum að
treysta á að kristnir kjósendur sem studdu hann síðast
tryggi honum áframhaldandi veru í Hvíta húsinu.
Fjörutíu og sex dögum fyrir kosningar fellur Ruth
frá. Konan sem staðið hefur vörð um lögin sem kennd
eru við Roe v. Wade og vernda rétt kvenna til fóstur
eyðinga. Hún hefur þar staðið sem dyggur vörður en
nú er raunveruleg hætta á að lögin verði afnumin.
Fram undan er val á eftirmanni hinnar alræmdu
RBG eða „Notorious RBG“ eins og hún var oft kölluð.
Þeir, sem er annt um jafnrétti og almenn mannrétt
indi, hafa kviðið þeim degi og vonast til að Ginsburg,
sem lengi barðist við heilsubrest, lifði fram yfir kosn
ingar. Þá væri í það minnsta von til þess að í forsetastól
væri sestur aðili með þankagang sem hæfði ártalinu,
en ekki afturhaldssinninn sem þar hefur ráðið og ríkt.
Það er sannarlega undarleg staða en skyndilega snú
ast forsetakosningar Bandaríkjanna að miklu leyti um
rétt kvenna til þungunarrofs. Það gæti skýrst af
því að Trump sá sæng sína útbreidda og spilaði út því
örvæntingarfulla spili. Þannig á hann góða möguleika
á að ná til baka sínum kristnu kjósendum.
Forsetinn hefur opinberað lista með 40 nöfnum sem
koma til greina í embættið en lofaði því nú um helgina
að kona yrði fyrir valinu. Það eru þó nokkrar konur á
listanum en það sem allir sem til greina koma eiga þó
sameiginlegt er að hver einn og einasti tekur afstöðu á
móti réttindum kvenna til þungunarrofs.
Að svo mikilvægt réttindamál kvenna, að hafa loka
vald yfir eigin líkama, skuli enda sem tól í kosninga
baráttu karls sem margoft hefur sýnt rétti kvenna og
konum óvirðingu, er ekki bara þyngra en tárum taki,
háalvarlegt og afturhvarf til verri tíma. Heldur er það
skýrt og augljóst merki um að lýðræðislegt kerfi eins
valdamesta ríkis heims er stórgallað.
Og það kemur okkur öllum við.
Til fortíðar
„Hugsaðu þér stað, þar sem allir eru velkomnir, það
kostar ekkert inn… Það eru engar kröfur um atgervi,
en þér er meira en velkomið að deila því sem þú
hefur… Hér leitarðu athvarfs frá amstri dagsins…
Þegar þú gengur út, finnst þér þú tilheyra einhverju
stærra, vita og skilja aðeins meira.“
Þessi orð koma úr vinnu við nýja bókasafns
stefnu sem nú er unnið að í Reykjavík. Borgar
ráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að
fela umhverfis og skipulagssviði að undirbúa
hönnunarsamkeppni um endurgerð og stækkun
Grófarhúss í Tryggvagötu. Þar eru nú höfuðstöðvar
Borgarbókasafnsins, Ljósmyndasafn Reykjavíkur
og Borgarskjalasafn.
Grófarhúsið á að verða lifandi menningar og
samfélagshús í miðborg Reykjavíkur, fjölbreyttur
ævintýra og fróðleiksheimur fyrir börn og fjöl
skyldur, og fólk á öllum aldri. Gert er ráð fyrir að
endurheimta upprunalegt útlit hússins. Hug
myndir eru einnig um þakgarð þar sem borgar
búar geti notið samveru og útsýnis yfir höfnina og
Grjótaþorpið.
Nokkrar ástæður liggja að baki þessari ákvörð
un. Ný viðbygging við Grófarhúsið stendur tóm og
búist er við að Borgarskjalasafnið muni fljótlega
flytjast í nýtt húsnæði. Við það losnar talsvert
rými. Það þarf því að hugsa fyrirkomulag hússins
upp á nýtt. Fyrirmyndin er þróun bóksafna víða
um heim. Bókasöfn eru að verða meiri sam
komustaður en áður. Oodibókasafnið í Helsinki
hefur vakið mikla heimsathygli og dregur til sín
þúsundir gesta í hverjum mánuði, sama má segja
um splunkunýtt Deichmannbókasafnið við höfn
ina í Osló. Ekki má gleyma Dokken við höfnina
í Árósum. Innanbæjarlest, borgarlína, keyrir í
gegnum húsið og á jarðhæð er almenn borgara
þjónusta. Þar er meðal annars hægt að endurnýja
ökuskírteini og vegabréf. Reiknað er með að í
nýju Grófarhúsi verði sambærileg borgarþjónusta
í boði. Úrslit hönnunarsamkeppninnar eiga að
liggja fyrir í maí á næsta ári.
Hugsaðu þér stað
Fedtmúlaþing
Unnið er nú að því að mynda
meirihluta í nýja sveitarfélag-
inu á Austurlandi. Verður það
líklega meirihluti Sjálfstæðis-
og Framsóknarmanna. Fyrsta
verkefnið verður að velja nafn
á sveitarfélagið. Um er að ræða
mikið ábyrgðarhlutverk þar
sem slík nöfn eiga það til að loða
við sveitarfélög, jafnvel í margar
aldir. Líklegast verður nafnið
Múlaþing fyrir valinu. Vísar
það til Fedtmúla, vinar Mikka
músar, sem bjó lengi á svæðinu.
Ólíklegt er að hið eitursvala
nafn Drekabyggð verði valið.
Sama á við um nöfnin Mulan,
sem vísa á til Austurlanda fjær,
og Moulin Rouge.
Stoppa, hugsa, athuga
Fjölmiðlaf lóran á Íslandi í dag
er langt frá því að vera eins-
leit, ástandið mun svo skána
til muna þegar nýr fjölmiðill
frumkvöðlafræðingsins Mar-
grétar Friðriksdóttur lítur
dagsins ljós eftir nokkrar
vikur. Margrét hefur tilkynnt
meðlimum Stjórnmála-
spjallsins að þar muni loksins
birtast alvöru fréttir lausar við
„fasísk vinnubrögð“ fjölmiðla
sem starfa í dag. Á það væntan-
lega einnig við um Útvarp
Sögu, Fréttatímann og Skinnu.
Leitar hún nú að nafni á nýja
miðilinn, má þá stinga upp á
„Stoppa, hugsa, athuga“, en það
eru uppáhaldsorð fjölmiðla-
nefndar.
TAX FREE*
af förðunarvörum, ilmvötnum
og völdum húðvörum
* 19,35% verðlækkun
Gildir 4. september - 15. október 2020
í verslunum og í netverslun Lyfju
Lyfja.is
2 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN