Fréttablaðið - 22.09.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 22.09.2020, Blaðsíða 30
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Elskulegi faðir minn og afi, Hreinn Bjarnason bóndi, Stakkhömrum 12, áður til heimilis að Berserkseyri, Eyrarsveit, lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn 13. september sl. Útförin verður í Guðríðarkirkju, Grafarholti, kl. 13.00, föstudaginn 25. september. Viðstöddum verður boðið að þiggja veitingar að athöfn lokinni. Ástrós Geirlaug Hreinsdóttir Agnes Rós Egilsdóttir Guðmundur Viktor Egilsson Ehdeb Aref Jasmin Afra Hjörtur Hreinn Hjartarson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Sigurveig Ólafsdóttir frá Syðstu-Mörk undir Eyjafjöllum, Skeiðarvogi 133, Reykjavík, lést 13. september. Útför hennar fer fram frá Langholts- kirkju föstudaginn 25. september kl. 15. Pálmi Guðjónsson Haukur Hjaltason Þóra Steingrímsdóttir Ómar Hjaltason Hjördís Kjartansdóttir sonadætur og makar. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Erlen Jónsdóttir Hlíðarbyggð 32, Garðabæ, lést á Landspítalanum 14. september. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 25. september klukkan 13.00. Í ljósi aðstæðna verður athöfninni jafnframt streymt á https://youtu.be/hZGSspPpg5E Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Erlenar er bent á Rjóðrið, hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Matthías Gíslason Ástkær faðir, afi, tengdafaðir og bróðir, Guðmundur Theódórsson lést þann 3. september. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju 24. september kl. 13. Eiríkur Örn Guðmundsson Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir Guðlaugur Theódórsson Guðbjörg Jónsdóttir Sigurbjartur Sigurðsson Guðný Jónsdóttir og fjölskyldur. Fyrir mig er þetta drauma-djobbið. Ég er búin að starfa lengi að uppbyggingu skól-ans, þannig að þetta er að mörgu leyti framhald á mínu starfi. Ég gleðst yfir að fá að vinna áfram með öllu frábæra fólkinu við skólann, bæði kennurum og nem- endum,“ segir Freyja Gunnlaugsdóttir klarinettuleikari glaðlega um hið nýja embætti sitt sem skólastjóri Mennta- skóla í tónlist, hún tekur við um næstu áramót úr hendi Kjartans Óskarssonar. Það er nýtt að fá fastráðna konu í skólameistarastólinn hjá MÍT. Reyndar er hann bara þriggja ára en leysti af hólmi Tónlistarskólann í Reykjavík sem var stofnaður 1930 og þar var ekki kona skólastjóri nema eitt ár, er Þórunn Guðmundsdóttir var ráðin í afleysingar. En felur starfið samt ekki í sér minni tíma fyrir Freyju til að sinna sjálf tón- listargyðjunni með klarinettuleik? „Á síðustu árum hefur hjarta mitt slegið fyrir skólann og minn metnaður liggur í að byggja upp betri tónlistarmenntun hér á Íslandi. Mér er ósárt um að leggja annað til hliðar á meðan. Er bara mjög þakklát fyrir árin sem ég starfaði sem tónlistarmaður, ég fékk að ferðast um heiminn og upplifa spennandi hluti en þetta er það sem ég vil gera í dag.“ Freyja segir mikla grósku í skólanum og nýsköpun. Hún nefnir nýja braut í popptónlist og fullyrðir að jafnmikið námsframboð hafi ekki áður verið á landinu á framhaldsskólastigi í tónlist. „Hér er góður staður fyrir þá sem vilja dýfa sér ofan í tónlistina og hafa svig- rúm og tíma til að æfa sig vel og það er ekki skortur á þannig fólki.“ Níutíu manns eru að kenna við Menntaskóla í tónlist. „Það eru margir af virtustu og vinsælustu tónlistar- mönnum þjóðarinnar sem starfa við skólann, sannkölluð breiðfylking sem nemendur hafa aðgang að. Nú er til dæmis hægt að sérhæfa sig í raftón- list og tónsmíðum, upptökustjórnun og kvikmyndatónlist svo við getum boðið upp á fjölbreyttari leiðir en áður og ein- staklingsmiðaðra nám.“ Freyja segir gríðarlega aðsókn hafa verið í skólann og stjórnendur neyðst til að takmarka fjöldann. Reynt sé að halda skólastarfinu sem eðlilegustu þrátt fyrir COVID-19 en vissulega sé tekist á við þá stöðu sem upp komi hverju sinni. „Það eru milli 60 og 80 tónleikar sem skólinn stendur fyrir á ári og nemendur fá því mikla reynslu í að koma fram. Við erum með sal í Rauðagerðinu og í Skipholtinu en höldum tónleika víðar um bæinn og verðum að streyma þeim ef ekki má safnast saman.“ gun@frettabladid.is Hjartað slær fyrir MÍT Freyja Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin skólameistari Menntaskóla í tónlist sem stofnaður var árið 2017 á grunni Tónlistarskólans í Reykjavík og efri bekkja FÍH. „Hér er góður staður fyrir þá sem vilja dýfa sér ofan í tónlistina,“ segir Freyja um Menntaskóla í tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Lítið eitt um feril Freyju Freyja lauk magister-prófi í klarín- ettuleik frá Hochschule fur Musik Hanns Eisler Berlin og seinna Konz- ertexamen, æðstu prófgráðu sem veitt er frá þýskum tónlistarhá- skólum. Freyja hefur einnig lokið meistaraprófi í stjórnun og stefnu- mótun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og viðbótardiplóma í kennslufræði frá Menntavísinda- sviði Háskóla Íslands. Freyja starfaði um árabil sem hljóðfæraleikari, lengst af í Berlín þar sem hún tók virkan þátt í fjöl- breyttu og framsæknu tónlistarlífi borgarinnar. Hún hefur frumflutt fjöldann allan af einleiksverkum fyrir klarínettu og gefið út fimm geisladiska. Metnaður minn liggur í að byggja upp betri tónlistar- menntun hér á Íslandi. Mér er ósárt um að leggja annað til hliðar á meðan. 2 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.