Fréttablaðið - 22.09.2020, Blaðsíða 12
Ég held að baráttan
inni í vítateig
liðanna í föstum leikatrið
um muni ráða miklu um
úrslit leiksins í kvöld.
Guðbjörg
Gunnarsdóttir,
markvörður
Djurgården og
íslenska lands-
liðsins
Við verðum að þora
að halda í boltann
þegar við vinnum hann
þannig þetta verði ekki of
mikill eltingarleikur.
Glódís Perla Viggósdóttir,
leikmaður íslenska landsliðsins
FÓTBOLTI Liðin eru bæði með fullt
hús stiga eftir fyrstu fjóra leiki sína
í undankeppninni og hafa hvort um
sig fengið á sig eitt mark til þessa
en Svíar eru á toppi riðilsins fyrir
þennan leik þar sem liðið hefur
skorað 24 mörk á meðan íslenska
liðið hefur skorað 20 mörk.
Efsta liðið í riðlinum fer beint í
lokakeppni mótsins á meðan þrjú
liðin með bestan árangur í öðru
sæti í riðlunum níu fara beint
þangað. Hin sex liðin sem hafna í
öðru sæti fara í umspil um þrjú laus
sæti á mótinu. England hefur svo nú
þegar tryggt sér farseðilinn á mótið
sem gestgjafi.
Eins og sakir standa er Ísland í
þriðja sæti af þeim liðum sem sitja
í öðru sæti í riðlunum á eftir Sviss
og Írlandi sem hafa 13 stig. Ítalía
er með jafn mörg stig og Ísland en
ítalska liðið er með lakari marka
tölu eftir stórsigra Íslands á Lett
landi í síðustu leikjum liðsins.
Dagný Brynjarsdóttir, sem skor
aði þrennu í síðasta leik Íslands í
riðlinum á móti Lettum, og Elín
Metta Jensen, sem skoraði eitt
marka íslenska liðsins í þeim leik,
eru markahæstu leikmenn riðilsins
með fimm mörk. Anna Anvegård,
samherji Glódísar Perlu Viggós
dóttur hjá Rosengård, og samherj
arnir hjá Juventus, varnarmaðurinn
Linda Sembrant og framherjinn
Lina Hurtig, hafa skorað mest fyrir
Svíþjóð eða þrjú mörk hver.
Guðbjörg Gunnarsdóttir, mark
vörður sænska úrvalsdeildarliðsins
Djurgården, er mjög spennt fyrir
leik kvöldsins en hún er nýfarin að
spila á ný með félagsliði sínu eftir
að hafa fætt tvíbura fyrr á þessu
ári. Guðbjörg sem á að baki 64 leiki
fyrir Íslands hönd segir Svía gera
sér grein fyrir að leikurinn í kvöld
verði afar erfiður en íslenska liðið sé
að mæta því sænska á heppilegum
tíma.
„Þeirra styrkleiki hefur í gegnum
tíðina verið að halda boltanum
vel og splundra vörn andstæðinga
sinna með hröðu spili á réttum
augnablikum. Þær eru alla jafna
með hraða framherja sem gera
varnarlínum lífið leitt. Í síðustu
leikjum hafa hins vegar föst leikat
riði verið helsta sóknarvopn sænska
liðsins. Við höfum verið í heims
klassa á þeim vettvangi og ég held
að baráttan inni í vítateig liðanna
í föstum leikatriðum muni ráða
miklu um úrslit leiksins í kvöld,“
segir Guðbjörg um leikinn gegn
bronsliðinu frá HM síðasta sumar.
„Við erum að mæta þeim á fínum
tíma þar sem það eru meiðsli í leik
mannahópnum og þá eru tveir
lykilleikmenn að spila á Spáni þar
sem lítið hefur verið spilað síðustu
mánuðina vegna kórónaveirufar
aldursins. Aðalmarkvörður þeirra,
Hedvig Lindahl, er meidd og í hópn
um eru góðir markmenn sem hafa
hins vegar ekki mikla landsliðs
reynslu og eru ekki vanar að spila
með varnarlínu sænska liðsins.
Þær eru svo vængbrotnar fram á
við þar sem Fridolina Rolfö, þeirra
besti framherji, og annar framherji,
Stina Blacksteinius, eru meiddar og
verða ekki með.
Þá hafa sóknartengiliðurinn
Kosovare Asllani og sóknarmaður
inn Sofia Jakobsson ekkert spilað
með félagsliði sínu, Real Madrid,
undanfarið og þær eru því ekki í
góðu leikformi. Þetta eru hins vegar
góðir og reynslumiklir leikmenn
sem geta tekið leikinn yfir. Þær eru
með öfluga sóknarmenn til þess að
fylla skörðin, það má ekki gleyma
því. Sænska liðið hefur svo verið í
vandræðum með hægri bakvarðar
stöðuna og það var til að mynda
miðvörður sem spilaði þar í síðasta
leik. Ég held að okkur hröðu kant
menn ættu að geta herjað á bak
verðina hjá þeim,“ segir landsliðs
markvörðurinn enn fremur.
Óvíst er hvort Jón Þór Hauksson
teflir fram sama liði og lék frábær
lega gegn Lettlandi á fimmtudaginn
eða breyti til. Miðvörðurinn Ingi
björg Sigurðardóttir sem fór meidd
af velli gegn Lettum er búin að
hrista af sér smávægileg meiðsli og
æfði með liðinu í gær. Sveindís Jane
Jónsdóttir, leikmaður Breiðabliks,
lék frábærlega í eldskírn sinni með
kvennalandsliðinu gegn Lettlandi
á dögunum. Þar fékk Sveindís leyfi
til að herja á bakvörð Letta og fór
oft á tíðum illa með vörn gestanna
sem skilaði tveimur af níu mörkum
íslenska liðsins en sóknartengiliðir
Íslands þurfa eflaust að sinna meiri
varnarskyldu í kvöld.
Þá gæti þjálfarateymið fært
Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur upp á
miðjuna til að færa liðinu meira stál
á miðsvæðið við hlið Söru Bjarkar
og Dagnýjar en þá þyrfti að finna
bakvörð í stað Gunnhildar sem
hefur leyst stöðuna stórvel í undan
förnum leikjum.
hjorvaro@frettabladid.is
Næstu tveir leikir íslenska
liðsins munu skipta sköpum
Toppliðin tvö í F-riðli í undankeppni Evrópumótsins 2022 í knattspyrnu kvenna, Ísland og Svíþjóð,
leiða saman hesta sína á Laugardalsvelli í kvöld. Um er að ræða úrslitaleiki um það hvort liðið fer beint
áfram í lokakeppni mótsins. Sænska liðið mætir á Laugardalsvöllinn án nokkurra sterkra leikmanna.
HANDBOLTI Britney Cots, leikmaður
kvennaliðs FH í handbolta, hefur
verið valin í æfingahóp Senegal sem
mun koma saman til æfinga í Frakk
landi dagana 28. september til 3.
október. Þetta er í fyrsta skipti sem
Cots er í leikmannahópi Senegal.
Cots er markahæsti leikmaður
FH sem er nýliði í efstu deild á yfir
standandi keppnistímabili með 22
mörk í tveimur leikjum. Þessi öfluga
skytta er að hefja sína þriðju leik
tíð með FH en hún skrifaði undir
tveggja ára samning við Hafnar
fjarðarliðið síðastliðið vor.
FH sem leikur undir stjórn Jak
obs Lárussonar hefur beðið ósigur
í þessum leikjum gegn Stjörnunni
og Haukum. Eftir næsta leik FH fer
Cots til Frakklands en hlé verður
gert á Íslandsmótinu til fimmtu
dagsins 8. október. Cots ætti að
vera búin með sóttkví sína þegar
FH sækir HK heim laugardaginn
10. október. – hó
Cots valin í hóp
hjá Senegal
FÓTBOLTI Jón Þór Hauksson, þjálf
ari íslenska liðsins, og Glódís Perla
Viggósdóttir, varnarmaður liðsins,
virtust hóflega bjartsýn en á sama
tíma meðvituð um baráttuna sem
þarf til að ná í úrslit í kvöld.
„Nokkrir leikmenn fengu högg
í leiknum gegn Lettum og á æfing
unum á milli leikjanna. Svava Rós
[Guðmundsdóttir] er í mesta kapp
hlaupinu við tímann en við vonum
að hún og aðrir leikmenn sem eru
tæpir verði klárir í slaginn. Svíar
eru með líkamlega sterkt lið en við
teljum okkur vera það líka og við
munum mæta þeim af fullum krafti
í baráttunni,“ segir Jón Þór.
„Mér finnst hafa verið stígandi
í spilamennsku liðsins eftir að ég
tók við og það var gott að sjá liðið
spila jafn vel og það gerði eftir hléið
vegna kórónaveirufaraldursins á
móti Lettlandi. Vonandi heldur sá
góði taktur sem hefur verið í liðinu
áfram í þessum leik. Það er afar
mikilvægt að ná hagstæðum úrslit
um,“ segir þjálfarinn enn fremur.
Glódís Perla þekkir vel til leik
manna sænska liðsins enda eru sex
leikmenn í sænska hópnum liðs
félagar Glódísar hjá Rosengård.
„Við munum líklega liggja til baka
í þessum leik og spila þéttan og
agaðan varnarleik þegar við erum
ekki með boltann. Við verðum hins
vegar að þora að halda í boltann
þegar við vinnum hann þannig að
þetta verði ekki of mikill eltingar
leikur. Skyndisóknir okkar þurfa að
vera vel útfærðar þegar færi gefst á
þeim. Við verðum síðan að standa
vaktina vel í föstum leikatriðum og
nýta okkar föstu leikatriðin vel að
sama skapi,“ segir Glódís Perla.
„Það hefur verið gaman að fylgj
ast með ungu leikmönnunum sem
hafa verið að brjóta sér leið inn í
liðið í síðustu leikjum og stóðu sig
mjög vel í leiknum á móti Lettum.
Vonandi halda þær áfram að vaxa
og það er hlutverk okkar reynslu
meiri leikmannanna að aðstoða
þær við það,“ segir Glódís sem leikur
á morgun sinn 86. landsleik sem er
afar vel af sér vikið þegar litið er
til þess að hún er einungis 25 ára
gömul. – hó
Þurfum að spila þéttan og agaðan varnarleik án bolta
FÓTBOLTI Landsliðsfyrirliðinn Sara
Björk Gunnarsdóttir mun í kvöld
jafna leikjametið hjá kvenna
landsliðinu þegar hún leikur sinn
133. leik fyrir Íslands hönd. Með
því jafnar Sara leikjamet Katrínar
Jónsdóttur sem lék á sínum tíma
133 leiki á nítján ára landsliðsferli.
Sara var aðeins sextán ára gömul
þegar hún lék fyrsta leik sinn fyrir
Ísland í 12 tapi gegn Slóvenum
ytra. Það tók Söru ekki langan tíma
að stimpla sig inn í liðið sem lykil
leikmaður og hefur hún byrjað alla
tíu leiki Íslands í lokakeppnum EM.
Í leikjunum 132 hefur Sara skorað
tuttugu mörk og vantar aðeins eitt
til að jafna Katrínu Jónsdóttur í
fimmta sæti yfir markahæstu leik
menn Íslands frá upphafi. Þá er Sara
sá leikmaður sem hefur oftast hlotið
gult spjald eða þrettán spjöld. – kpt
Jafnar leikjamet
Katrínar í dag
Einbeitingin skein úr augum íslenska liðsins á æfingu þess á Laugardalsvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sara fagnar marki gegn Lettum.
FÓTBOLTI Landsliðsmarkvörðurinn
Rúnar Alex Rúnarsson skrifaði í
gær undir fjögurra ára samning við
enska stórveldið Arsenal. Enska
félagið greiddi Dijon tæpar tvær
milljónir punda fyrir þjónustu
íslenska markmannsins sem verður
um leið sjötti Íslendingurinn til að
skrifa undir hjá Skyttunum.
Rúnari er ætlað að vera varaskeifa
fyrir Bern Leno en mun einnig fá
leiki þegar Leno þarf hvíld. Hann
gæti því leikið sinn fyrsta leik fyrir
Arsenal annað kvöld þegar Skytt
urnar mæta Leicester í enska deild
arbikarnum. – kpt
Rúnar skrifaði
undir til 2024
2 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT