Fréttablaðið - 22.09.2020, Side 33
ÉG GERÐI ÓVART
TEXTA VIÐ ALLA 9.
SINFÓNÍUNA, ÞANNIG AÐ ÞEIR
KAFLAR ERU TIL OG GETA
GEYMST TIL NÆSTU ALDAR.Við erum að þróa þennan leik og end-urbættum ýmislegt frá því í fyrra. Erum núna með áheyr-endur í sal, það gefur
aukakikk og við Björg stöndum
þéttar saman. Svo breyttum við
þrautum og reynum að skrúfa upp í
fjörinu,“ segir Bragi Valdimar Skúla-
son þegar haft er orð á að þátturinn
Kappsmál hafi farið af stað með
trukki, þetta haustið.
Þegar hafa þrettán þættir verið
teknir upp, það var gert í júní. Þeir
fjalla um íslenskt mál og Bragi
Valdimar segir hvern sem er geta
tekið þátt. „Helstu prófessor-
arnir gata alveg jafn mikið og hinir
sem halda að þeir kunni ekkert í
íslensku en brillera í svona þætti.
Getan snýst ekki bara um kunnáttu,
það hjálpar að vera fljótur að hugsa
en það er innbyggt í okkur að nota
þetta blessaða tungumál.“
En ætlar Bragi Valdimar að gefa
nýyrðin sem verða til í þáttunum út í
sérstakri orðabók, eða kannski nota
þau við yrkingar?
Það er góð hugmynd að safna
nýyrðunum saman. Mörg þeirra eru
vel nothæf, tungumálið er stöðugt
að verða til og það er líka gaman að
draga fram orð sem hafa ekki verið
notuð í mörg hundruð ár. Þátturinn
snýst aðallega um að leika sér að
málinu en minna um reglur, boð og
bönn.“
Bragi Valdimar virðist f ljótur
að hugsa þegar hann er að meta
hvort orð sem þátttakendur búa
til séu tæk eða ekki. Hann kveðst
ekki vera einn í ráðum. „Það er fullt
af fólki bak við tjöldin f lettandi
orðabókum og -söfnum og talandi
í eyrun á okkur stanslaust svo við
fáum ágætis hjálp en alltaf er maður
skíthræddur um að hafa klúðrað
einhverju þegar þættinum lýkur –
og yfirleitt gerir maður það.“
Orti alltof mikið
Bragi Valdimar er einn þeirra
Íslendinga sem yrkja eftir hefð-
bundnum bragarháttum. Úr hans
smiðju er nýtt ljóð, Gleðisöngurinn,
sem risakór íslenskra ungmenna
frumf lutti í Hörpu á afmælistón-
leikum Beethovens fyrir skemmstu,
við lokakaflann í 9. sinfóníunni.
„Textinn var pantaður. Maður er
alltaf að hnoða einhverju saman,“
segir skáldið hógvært – og bætir við:
„Ég gerði óvart texta við alla 9. sin-
fóníuna, þannig að þeir kaflar eru
til og geta geymst til næstu aldar.“
Þá vitum við það.
Skyldi hann hafa verið hagmælt
barn?
„Nei, alls ekki. Ég bara lærði þetta
með tíð og tíma, þetta er nokkuð
sem þarf að æfa upp. Ákveðin iðn.
Maður ætti kannski bara að skrá
sig í Iðngreinasambandið. Það er
alltaf einhver eftirspurn eftir hag-
yrðingum.“
Tvöfaldur vínyll í ofninum
Svo eru það Baggalútsfréttirnar.
„Við erum að gefa út plötu í haust.
Reyndar ekki með eigin textum
heldur eftir vesturíslenska skáldið
Káin. Þegar ekki er hægt að halda
tónleika, þá verður bara að gefa út
plötur. Þessi er alveg eftir bókinni,
tvöföld vínylplata með ljóðum eftir
Káin og lögum eftir okkur. Það er
sko veisla fram undan.“
Af hverju Káinn?
„Við fórum tvær ferðir til Kanada
fyrir nokkrum árum. Hittum þar
konu sem hét Kristín Hall og var þá
að verða 100 ára. Fréttum að hún
hefði þekkt Káin, hann hefði verið
vinnumaður á bænum hennar og
meðal annars samið vísu um hana.
Byrjuðum á að gera lag við vísuna
Stína litla og færðum henni þetta
lag, það varð upphafið að plötunni
Sólskinið í Dakota sem kom út 2009.
Svo héldum við áfram að gramsa í
kvæðakverinu hans Káins og nú
eru að koma út þrettán ný lög við
ljóð hans. Stína litla varð 106 ára,
f lott kona, kom aldrei til Íslands
en talaði íslensku. Við erum bæði
að hylla Ísland og Vesturheim með
plötunni.“
Talið berst að hinum vinsælu
jólatónleikum. „Við settum í sölu
grunnpakka, tvær helgar, en vitum
ekkert hvort við getum haldið þá.
Þá fær fólk þá endurgreidda,“ segir
Bragi Valdimar. „Stemningin er
ekki alveg með tónlistarbrans-
anum þessa dagana en við verðum
að vona það besta. Fólk þarf alltaf
smá gleði.“
Innbyggt í okkur að nota
þetta blessaða tungumál
Hinn orðhagi Bragi Valdimar Skúlason heldur úti skemmti-
þættinum Kappsmáli með Björgu Magnúsdóttur og ásamt
félögum í Baggalúti gefur hann út plötu með ljóðum Káins.
„Maður ætti kannski bara að skrá sig í Iðngreinasambandið,“ segir Bragi Valdimar Skúlason. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
Þú finnur bæklinginn
husgagnahollin.is
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
S
ENDUM FR
ÍT
T
DANSKIR
DAGAR
AFSLÁTTUR
20%
AF ÖLLUM DÖNSKUM VÖRUM*
* Gildir ekki af sérpöntunum og einungis af völdum vörum frá Skovby.
LOKAVIKAN
LÝKUR UM
HELGINA
DC 3600
Ekta danskur og stílhreinn
með mjúku, svörtu, savoy/split leðri.
Nettur og sérlega fallegur sófi með
háa arma sem gott er að sitja við.
2ja sæta, stærð:
143 x 80 x 80 cm
191.992 kr.
239.990 kr.
3ja sæta, stærð:
202 x 80 x 80 cm
239.992 kr.
299.990 kr.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 2 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0