Hvöt - 01.04.1952, Blaðsíða 10

Hvöt - 01.04.1952, Blaðsíða 10
8 H V Ö T Jökull Jnkobsson og Kristján Arnason stud. art. II. Höfundur nefnir bók sína Tæmdan bikar, og má það til sanns vegar færa. Hann hefur setzt að drykkju, þar sem áður hafa kneyft miklir drykkjumenn: Halldór Kiljan Laxness og hans rauð- vínsmenn. Allt frá því að Kiljan tók að gefa út grínsögur sínar á Islandi, liefur enguin íslenzkum unghöfundi þótt sæmilegt að skrifa öðru vísi en í hálfkæringi og skopi um lífið, jafnvel alls ókimnir menn eins og Elías Mar liafa reynt að taka það upp. Skáld- sögur Halldórs Kiljans Laxness eru skopmyndir af þjóðfélaginu, hið af- káralega og sérkennilega í fari liverrar stéttar er dæmigent og ýkt, þannig sýnir H. K. L. oss þjóðfélagið allt í einni sjónhendingu. Skopmyndir þessar eru mikil listaverk, að baki þeim kann að liggja djúp alvara og sannieikur. Hins vegar er ekki öllum höfundum hent að draga upp skopmyndir, þó að H. K. L. liafi fundið í þeim sitt tján- ingarform og það þó eftir langa leit. Hver er sinna vopna smiður; ef miðl- ungsliöfundar reyna að skopast, kann svo að fara, að þeir kasti steini um megn sér og úr verði nánast ljósmynd eins og Vögguvísa lir. E. Marar. 111. í hinum mestu listaverkum er það, sem gerist, aukaatriði, atburðirnir sett- ir inn í ákveðnum tilgangi: til þess að varpa Ijósi á persónurnar og tjá liug listamannsins að fullu. Þannig er morðið í Raskolníkofssögu í sjálfu sér lítilvægt atriði, aðalatriðið er sál morð- ingjans sjálfs, Raskolníkofs, fyrir og eftir glæpinn, hugsjónir lians og sálar- ástand, sem valda glæpnum, og síðan glæpamaðurinn gagnvart gerðum sín- um. Hugmyndin er þessi: Enginn skyldi mann drepa, að minnsta kosti enginn „geniall“ maður. — Skáldið setur Hamlet í aðstöðu, sem varpar Ijósi á íhygli og draumlyndi hins unga manns. — Aðalvandamál rithöfundarins er að fá það til að gerast, sem sýnir lesand- anum hugfóstur hans. Það, sem skilur á milli listrænnar skáldsögu og reyfara, er hið sama sem skilur á milli málverks og ljósmyndar. 1 málverki hefur hvert smáatriði til- gang, liver skuggi hefur sitt gildi fyrir heildaráhrifin, en ljósmyndin speglar heiminn, eins og hann lítur út, ekki eins og liann er. Hins vegar getur skáldsaga hvort tveggja verið impress- jónsk og expressjónsk. Sumar skáld- sögur geta gefið oss andrúmsloft heils tímabils eða þjóðfélags, en enga full- komna persónu. Eðjót* Dostojefskis er einstaklingur, en tæpast Ljósvíkingur Kiljans, aðeins skynjun, en ekki vilji. * Kennarinn tekur ekki ábyrgð á þessu orði.

x

Hvöt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.