Hvöt - 01.04.1952, Blaðsíða 26
24
H V Ö T
manna sveitum og skipuSu þeir þrír,
er náSu beztum tíma, sveit síns skóla.
Þetta var jafnframt einstaklingskeppni.
ISnskólapiltamir fóru aS nýju meS
sigur af liólmi, og sýndú mikla yfir-
burSi eins og sjá má af úrslitum. Áttu
þeir þrjár fyrstu sveitir og marga kepp-
endur framarlega í einstaklingskeppn-
inni.
Úrslit:
1) A-sveit ISnskólans á 201,0 sek.
2) B-sveit ISnskólans á 219,0 —
3) C-sveit ISnskólans á 238,7 —
4) A-sveitG-Austurbæjar á 264,5 —
5) Sveit Menntaskólans á 267,9 —
6) Sveit Háskólans á 287,4 —
7) B-sveitG-Austurbæjar á 313,6 —
Sveit GagnfræSask. Yesturbæjar féll
úr leik.
Valdimar Örnólfsson, Menntaskólan-
um, varS fyrstur í einstaklingskeppn-
inni á 60,5 sek., GuSm. Jónsson, ISn-
akólanum, varS annar á 64,5 sek. og
Bjarni Einarsson, Iðnsk., þriðji á 66,3
sek.
Hinir tveir síðarnefndu mynduðu
ásamt Jónasi Guðmundssyni sigursveit
Iðnskólans. Gagnfræðaskólanemarnir
vöktu athygli og þóttu standa sig vel
í keppni við hina eldri.
Svigkeppni kvenna hófst strax að
lokinni keppni karla. Menntaskólinn
einn sendi fulla sveit, en Kvennaskól-
inn og Verzlunarskólinn áttu sinn kepp-
andann hvor.
Auður Kjartansdóttir, Verzl.sk., varð
fyrst á 57,9 sek., Guðlaug Lúðvíksdótt-
ir, Kvennask. önnur á 62,0 sek. og þar
á eftir Þórunn Haraldsdóttir, Stefanía
Sveinbjömsdóttir og Karen Jónsdóttir
allar frá Menntaskólanum.
Þátttaka var of lítil í þessari keppni,
og munu margar góðar skíSakonur hafa
setið lieima, enda komu ekki allar,
sem böfðu tilkynnt þátttöku sína.
Brunkeppni karla var síðasti liður
mótsins. Hún fór fram á sama stað
og svigið, og þótti brautin í stytzta
lagi.
Iðnskólinn átti sem fyrr tvær fyrstu
sveitir, og sýndi einu sinni enn, hve
miklum fjölda góðra skíðainanna hann
heftir á að skipa.
Úrslit:
1) A-sveit Iðnskólans á 116,2 sek.
2) B-sveit Iðnskólans á 125,9 —
3) Sveit Menntaskólans á 126,0 —
4) Sveit G.-Austurbæjar á 138,6 —
5) Sveit G.-Vesturbæjar á 155,1 —
6) B-sveitG-Austurbæjar : 130,'5 —
Guðmundur Jónsson, Iðnsk., varð
fyrstur í einstaklingskeppninni á 37,4
sek., annar Vald. Örnólfsson, Mennta-
skólanum á 38,1 sek. og þriðji Her-
mann Guðjónsson, Iðnsk. á 38,3 sek.
Guðmundur sýndi að nýju, hve ágætur
skíðamaður hann er, og var sannkall-
aður foringi Iðnskólantanna í allri
keppninni.
Flest stig í „Alpatvíkeppni“ (svig og
brun) hlaut Valdimar Örnólfsson, Msk.,
eða 62,3 stig, Guðmundur Jónsson, Iðn-
skólanum, lilaut 63,2 stig, og Hermann
Guðjónsson, Iðnsk., hlaut 68,3 stig.
Um mótið í heild má fullyrða, að
það hafi tekizt ágætlega og verið í. F.
R. N. til sóma. Margir skíðamenn úr
íþróttafélögum bæjarins veittu kær-
komna aðstoð við framkvæmd mótsins,
og flyt ég þeim beztu þakkir móts-
nefndar.