Hvöt - 01.04.1952, Blaðsíða 13
H V Ö T
11
að ekkert er urmið við neyzlu þeirra.
Þess vegna lieiti ég því að neyta
ekki áfengis eða tóbaks næsta ár frá
undirritun heits þessa, að vinna að
því, að aðrir neyti þess ekki heldur,
og að vinna með öðrum, sem rita
nöfn sín í þessa bók, fyrir málefnið
á þann hátt, sem sameiginlega verður
ákveðið.
Ég gef leyfi til þess, að nafn mitt
verði birt meðal nafna þeirra manna,
sem að bindindi vilja vinna, svo og,
ef ég rýf þetta lieit mitt, að brot rnitt
verði auglýst á þann bátt, sem gæzlu-
maður bókar þessarar telur bezt henta“.
Það er einkennandi fvrir þetta bind-
indisheit, að þar er ekki farið fram
á óhóflega miklar félagslegar kvaðir.
Reyndin hefut því orðið sú, að það
hefur orðið tiltölulega auðvelt að fá
menn til þess að vinna lieitið, og
]>etta fvrirkomulag hefur gert þeim
mönnum, sem vilja vera stuðningsmenn
bindindishreyfingarinnar, kleift að ger-
ast þarna þátttakendur og fá vini sína
og kunningja til þess að vinna þetta
heit. Hins vegar liefði ef til viil ekki
verið unnt að fá þessa menn til þess
að starfa í stúku. — Það virðist tals-
vert almennt, að þátttakendur fái vini
sína og kunningja til þess að gerast
þarua félagsmenn, og síðan verður það
siðferðisleg skvlda þeirra að gæta bróð-
ur síns.
Upp úr þessari bindindishreyfingu
á ef til vill eftir að spretta mikil og
öflug starfsemi, en það er ekki komin
full revnsla á þessu sviði ennþá, lield-
ur er verið að feta sig áfram. Það er
ætlazt til, að þátttakendur endurnýi
nöfn sín árlega í bókinni. Þykir sum-
um það mjög hentugt að geta sett sér
ákveðið markmið til skamms tíma,
markmið, sem þeim finnst viðráðan-
legt, en getur orðið vísir að áfram-
haldandi bindindi. Einnig befur þetta
fyrirkomulag þann kost, að fleiri liafa
aðstöðu til þess að gerast þátttakendur
en í stúku, og það er alltaf auðveld-
ara að fá fleiri til að gerast þátttak-
endur, ef þeir vita, að það liggur
straumur af fólki í þennan félagsskap.
En velferð þess hlýtur alltaf að vera
að miklu leyti komin undir dugnaði
og hæfileikum gæzlumanns.
Þessi leið eða svipuð mun liafa verið
reynd hér á landi áður, en lítt haldið
á lofti. En hún er mjög athugandi, og
ef til vill geta skólanemendur fundið
eitthvað í henni, sem þeir geta notað.
Eins getur það komið fyrir síðar á
lífsleiðinni, að núverandi nemendur,
sem eru áhugasamir um bindindismál,
geti hafið starfsemi sem þessa á sín-
um aðsetursstað. Þá er vel.
Sannleikurinn á í sér fólgið gegnumþrengj-
andi afl, sem hvorki þekkir villúr né rang-
indi. Eg segi „sannleikurinn“, og þid vitið,
hvað ég á vió. því að hin fögru orð sannleika
og réttlæti þarf ekki að skilgreina, til þess
að þau verði skilin í réttri merkingu. Þau
bera í sér skínandi fegurð og himneskt ljós.
Eg trúi óbifanlega á sigur sannleikans: Þetta
er það, sem gefur mér kraft á tímum reynsl-
unnar. Anatole Franee.
Lífið er dýrust eign mannsins. Hverjum manni
er aðeins gefið eitt líf, og varðar mest að verja
því þannig, að hann þurfi aldrei að þjást af
nagandi samvizkubiti vegna fánýtra ára: lifi
þannig, að aldrei brenni hann blygðun vegna
kjarklausrar og lítilmótlegrar fortíðar; lifi
þannig, að á banastund geti hann sagt: Öll
ævi mín, allur minn styrkur, var gefin göf-
ugasta málstaðnum .. . Lenin.