Hvöt - 01.04.1952, Blaðsíða 14
12
H V ö T
( >
HVÖT
RITNEFND:
Baldur Halldótsson (Samvinnusk.),
Jón BöÓvarsson (Háskólanum).
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.
V__________________________________J
Bindindisfræðsla
Þann 13. janúar 1936 var gefin út
reglugerð af kennslumálaráðimeytinu
um bindindisfræðslu samkvæmt 23: gr.
áfengislaga nr. 33, 9. janúar 1935. 1
þessari reglugerð segir, að bindindis-
fræSsla skuli fara fram í öllum skól-
um ríkisins og öðrum skólum, sem
njóta stvrks úr ríkissjóði. Bindindis-
fræðsla skal fara fram í sambandi við
eftirfarandi námsgreinar: heilsufræði,
líffræði, líffærafræði, íþróttir, félags-
fræði, náttúrufræði, siðfræði, t. d. í
sambandi við kristinfræði, efnafræði,
átthagafræði og sagnfræði.
í’egar athugað er, hvernig þessari
reglugerð er framfylgt, þá er það næsta
hótfyndið. T>að er ekki nokkur skóli
á öllu landinu, sem framfylgir þessari
reglugerð til hlítar, og fjöldinn allur
fer lítið, að ég segi ekkert eftir þess-
um fyrirmælum, og er það skrýtið,
þar sem um svo sjálfsagðan hlut er
að ræða sem bindindisfræðshi. Við
þessu væri svo sem ekkert að segja, ef
þekking manna á þessum hlutum væri
almennt staðgóð, varanleg, og ef áfeng-
isneyzlan væri sáralítil, en með tilliti
til aðstæðnanna, þekkingarleysis fólks-
ins, hinnar gífurlegu áfengisnevzhi,
hinna margföldu glæpa, sem er bein-
línis hægt að rekja til brennivíns, hinn-
ar straumföstu villimennsku, sem menn
eru nú fyrst að koma auga á, þá er
þetta þvílík himinhrópandi skömni og
svívirða, að út yfir allt liugsanlegt vel-
sæmi tekur. Fræðslumálastjóri, kenn-
arar, yfirleitt allir, sem hafa með
skólamálin að gera, hafa með þessu
fádæma sleifarlagi orðið sekir um eitt-
hvert það alvarlegasta brot siðferðis-
skyldunnar, sem enginn fær þvegið af.
Þeir vita ósköp vel, að plága áfengis-
ins er eitt ítærsta vandamál þjóðar-
innar, plága, sem hefur gripið stóran
hluta þjóðarinnar kverkataki, og er á
góðri leið með að gera menntastofn-
anirnar, skólana, að svínastíum, en allt
fyrir það er andleysið, þrælshátturinn,
byrjunarstig eymdarinnar, svo rótgró-
ið í þessari annars svo ága'tu stétt, að
bindindisfræðsla er ekki talin vera að
bennar dómi æskileg stoð í uppbygg-
ingu gkólanna og um leið eitt örugg-
asta veganesti áhrifagjamrar æsku, sem
svo mjög er uppvæg fyrir hvers konar
spillingu.
Reglugerðin var send öllum skóla-
nefndum, fræðslunefndum, skólaráðum
og skólastjórum til útbýtingar meðal
kennara, svo að hún hefur ekki getað
f'arið framhjá nokkrum læsum manni
í þeirri stétt. Hér er því um skýlaust
hrot að ræða, brot, sem varðar hvern
þjóðfélagsþegn, þar sem hiin mælir
að mikht leyti á um velferð hans, vel-
ferð landsins, framtíð þjóðarinnar.
Framtíð þessa lands er komin undir
því, hvemig okkur tekst á ókomnum
árum baráttan við áfengið; það dugir
ekki að tala um frjálsa þjóð, lýðfrjálst
land, menningarþjóð, á meðan hún er
drepin í dróma brennivínssölu, á með-
an drykkjuskapurinn er skipulagður af