Fréttablaðið - 10.10.2020, Síða 16

Fréttablaðið - 10.10.2020, Síða 16
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Með þeim hefur verið stigið langt út fyrir verksvið þeirra sem létu þau um munn sér fara. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Ein sú mest íþyngjandi ráðstöfun sem gripið er til í samfélagi manna er að svipta þá frelsi sínu. Til þess þurfa að liggja ríkar ástæður og ákvörðunin þarf að styðjast við skýr laga-fyrirmæli. Um þessar mundir eru þúsundir manna sviptir frels- inu hérlendis og þeim skipað í sóttkví eða einangrun á grundvelli sóttvarnalaga. Að auki hefur frelsi hinna verið stórkostlega skert með því að setja fjöldamörk á samkomur, mæla fyrir um lágmarksfjarlægð á milli fólks, banna eða takmarka ýmiss konar starfsemi, svo sem íþróttastarfsemi og veitingahúsarekstur og til- mæli um að halda sig í heimahögum. Þá er ónefnt það misráð að loka landamærum. Allt setur þetta líf okkar úr skorðum sem var þó nægjanlega úr lagi gengið fyrir. Sumir hafa misst lífs- viðurværi sitt að hluta eða öllu leyti og ótti og kvíði grefur um sig. Þessar aðgerðir eru byggðar á minnisblöðum frá sóttvarnalækni til heilbrigðisráðherra, sem eftir atvikum ræðir þær í ríkisstjórn áður en þær öðlast gildi stjórnvaldsfyrirmæla. Einhver misbrestur hefur þó orðið á því síðastnefnda undanfarið. Við trúum því að nauðsynlegt sé að berjast gegn eyðandi afli vágestsins, en höfum gripið til svo stór- tækra viðbragða að líkja má við að meðalið eyðileggi nú meira en því var ætlað að lækna. Við höfum búið við lýðræðislegt fyrirkomulag þar sem við kjósum fulltrúa til setu á Alþingi til að setja lög og úr þeim hópi er að jafnaði valið fólk til að manna framkvæmdavaldið sem gefur út fyrirmæli, annað hvort á eigin spýtur eða felur stofnunum sínum að gera það. Lykilatriði í því er að þau fyrirmæli verða að eiga sér stoð í lögum og mega ekki vera í andstöðu við lög. Ákvarðanir stjórnvalda í tengslum við sóttvarnir undanfarið hafa sumsé byggst á minnisblaði. Nær án undantekninga hafa þær ákvarðanir verið samhljóða minnisblaðinu. Nú er rétt að fram komi að gengið er út frá að allir sem að þessu máli koma séu að reyna sitt besta í baráttunni við óhræsið, en þetta fyrirkomulag er óheppilegt og þegar svo langur tími líður þar sem takmörkunum og frelsisskerðingum er beitt án afláts, eykst krafan um að til kasta Alþings komi. Í Fréttablaðinu í vikunni var greint frá því að efa- semda gætti meðal þingmanna og ráðherra eins af stjórnarflokkunum um sóttvarnaaðgerðir heilbrigðis- ráðherra og hvernig að þeim er staðið. Í kjölfarið var haft eftir sóttvarnalækni og yfirlögregluþjóni úr þríeykinu að þjóðin þurfi að flykkjast að baki aðgerð- unum, líkt og landsliði í kappleik. Lítið var gert úr fréttinni með því að fullyrða að úr lausu lofti sé gripið að óeining sé um aðgerðirnar og það sé orðum aukið. Sérstakur kapítuli út af fyrir sig er hvað menn segja frammi fyrir myndavélum, en ummælin hljóta að teljast sérkennileg. Með þeim hefur verið stigið langt út fyrir verksvið þeirra sem létu þau um munn sér fara. Ákall um samstöðu er góðra gjalda vert en þegar ekki er betur gengið um grundvallarmannréttindi er við því að búast að samstaðan bili. Þá verða ráðstafanirnar úr lausu lofti gripnar. Úr lausu lofti Fyrir fimm árum fóru fram mótmæli í miðbæ Waltham Forest hverfisins í Lundúnum. Mót-mælendur báru líkkistu um götur með áletrun- inni „hvíl í friði Walthamstow“. Samkvæmt hverfis- dagblaðinu „kom til ryskinga þar sem fólk mundaði regnhlífar“. Ástæðan var ákvörðun hverfisráðsins um að taka hagsmuni gangandi vegfarenda og hjól- reiðafólks fram yfir hagsmuni ökumanna og loka götum miðbæjarins fyrir bílaumferð. Framkvæmdin var hugarfóstur Clyde Loakes, aðstoðarhverfisstjóra hverfisins. Fyrst um sinn hlaut hann litlar þakkir fyrir. Fólk hreytti í hann fúkyrðum á götum úti. En nú er öldin önnur. Nýverið gekk blaðamaður dagblaðsins The Times með Loakes um miðbæ Waltham Forest. „Sjáðu,“ sagði Loakes hróðugur og benti á verslanir fullar af fólki, þétt setin kaffihús og götur iðandi af mannlífi þar sem fólk heilsaðist og stoppaði jafnvel til að spjalla. „Hver vill ekki búa svona?“ spurði Loakes. „15 mínútna nágrennið“ er hugmynd sem ryður sér nú til rúms víða um heim. Er markmiðið að íbúi hverfis þurfi aldrei að ferðast lengra frá heimili sínu en 15 mínútur – gangandi, hjólandi eða með almenningssamgöngum – til að sækja sér nauð- synlega þjónustu á borð við verslanir, skóla, heil- brigðisþjónustu og líkamsrækt. Sóttvarnaaðgerðir vegna COVID-19 faraldursins eiga vafalítið þátt í hversu hratt hugmyndin sækir í sig veðrið þessa dagana. Um heim allan eyðir fólk nú meiri tíma í nærumhverfi sínu en það er vant. Borgarstjóri Parísar, Anne Hidalgo, lofaði Parísar- búum „15 mínútna hverfum“ í nýafstaðinni kosn- ingabaráttu, en hún var endurkjörin borgarstjóri í júní. Skipulagsyfirvöld og ráðafólk alls staðar að úr heiminum f lykkist til Waltham Forest til að skoða miðbæinn og leita ráða hjá Clyde Loakes um hvernig bæta megi lífsskilyrði í andlausum, umferðar- þungum hverfum. Hjarta hvers samfélags Auglýsing athafnamannsins Bolla Kristinssonar, sem löngum er kenndur við Verslunina 17, vakti athygli á dögunum. Í opnuauglýsingu sem birtist í öllum helstu dagblöðum landsins undir yfirskriftinni „borgar- stjórann burt“ gagnrýnir hann borgaryfirvöld fyrir að hafa breytt Laugaveginum í „draugagötu“. Segir Bolli orsökina vera „heft aðgengi með lokunum gatna og fækkun bílastæða“. Ekki virðast þó allir deila óánægju Bolla. Sam- kvæmt nýrri könnun sem birt var í vikunni eru 67,2 prósent Reykvíkinga jákvæð gagnvart göngugötum, þremur prósentum meira en í fyrra. Alls eru 82 pró- sent þeirra sem heimsækja göngugötur vikulega eða oftar jákvæð gagnvart slíkum götum. Bílablæti hefur lengi verið þungamiðja borgar- skipulags. Síðari hluta 20. aldar virtist forgangsatriðið ávallt vera að koma bifreiðum frá stað A til staðar B með sem skemmstum hætti. Borgir voru slægðar, heilu hverfin jöfnuð við jörðu, fólk látið víkja, hjarta hvers samfélags fjarlægt fyrir umferðaræð í gegnum það. Allt svo skafa mætti nokkrar mínútur af bíltúr ökumanns. Fólk gerir nú í auknum mæli kröfu til nærumhverfis síns. Fyrrnefnd könnun um viðhorf til göngugatna í Reykjavík sýnir að því nær göngugötu sem fólk býr því jákvæðara er það í garð þeirra. Þeir sem búa í miðborginni eru jákvæðastir en úthverfin eru nei- kvæðust. Neikvæðastir eru Grafarvogsbúar. Svo skemmtilega vill til að Bolli Kristinsson er ein- mitt gangandi (eða kannski akandi) sönnun þess- arar niðurstöðu. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, svaraði gagnrýni Bolla. Benti hann meðal annars á að Bolli byggi ef til vill helst til langt frá Laugavegi til að verða vitni að lífinu í götunni. Á daginn kemur að Bolli, einn ákafasti andstæðingur göngugatna sem við Íslendingar eigum, býr eins langt frá göngugötum miðborgarinnar og hugsast getur. Nei, ekki í Grafar- vogi – heldur á Spáni. Laugavegurinn – Draugavegurinn D-vítamínbætt mjólk – eins og hollur sólargeisli 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.