Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 34
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Landspítali auglýsir eftir framkvæmdastjóra mannauðsmála til að leiða öfluga uppbyggingu og sókn næstu ára, í samræmi við skipurit spítalans.
Framkvæmdastjóri mannauðsmála stýrir skrifstofu mannauðsmála á Landspítala, sem skiptist í þrjár deildir með um 50 starfsmenn. Hann heyrir beint
undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn spítalans, sem mótar stefnu og stýrir spítalanum.
Leitað er að kraftmiklum og reyndum stjórnanda sem hefur brennandi áhuga á að vinna með forstjóra að því að byggja upp sterka liðsheild og að
framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans.
Hæfnikröfur
• Brennandi áhugi á uppbyggingu Landspítala og innleiðingu stefnu spítalans
• Mikil og farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla
• Djúp fagleg þekking á mannauðsstjórnun
• Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og afburða leiðtogahæfileikar
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar og viðmót, jafnt gagnvart samstarfsfólki
sem ytri aðilum
• Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
• Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og góða liðsheild
• Mikil og farsæl reynsla af umbótastarfi, teymisvinnu og breytingastjórnun
• Mikil hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku
• Háskólapróf auk viðbótarmenntunar sem nýtist í starfi er skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stefnumörkun, markmiðasetning og áætlanagerð mannauðsmála
• Yfirumsjón með kjaramálum, ráðningum, starfsþróun og fræðslustarfi
• Yfirumsjón með heilsuvernd starfsmanna og starfsumhverfi
• Umbótaverkefni tengd vinnustaðamenningu, starfsanda og innri
samskiptum
• Ráðgjöf til stjórnenda í mannauðstengdum málum
• Samskipti við stéttarfélög og samstarfsnefndir
• Samhæfing á starfsemi og þjónustu mannauðsmála við aðra starfsemi
spítalans
• Uppbygging mannauðs og liðsheildar á skrifstofu mannauðsmála
• Ábyrgð á rekstri og fjármálum skrifstofu mannauðsmála
Landspítali er fjölmennasti vinnustaður landsins með um 6.000 starfsmenn. Spítalinn hefur víðtæku hlutverki að gegna sem þjóðarsjúkrahús
landsins og háskólasjúkrahús, og veitir bæði almenna og sérhæfða þjónustu, auk þess að vera miðstöð menntunar og rannsókna í heil brigðis
vísindum. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, þjónusta, mannauður og stöðugar umbætur.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Gert er ráð fyrir að ráðning fram kvæmda stjóra taki gildi 1. desember
2020 og er hún ótímabundin í samræmi 41. gr. laga um opinbera starfsmenn (nr. 70/1996), að loknum reynslu tíma. Mat á umsóknum verður í höndum valnefndar
þar sem forstjóri Landspítala tekur virkan þátt. Forstjóri tekur ákvörðun um ráðningu í störfin.
Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi er innihaldi framtíðarsýn umsækjanda fyrir skrifstofu mannauðsmála og rökstuðning fyrir
hæfni til að gegna stöðunni. Hægt verður að sækja um starfið á í gegnum heimasíðu Landspítala eða www.starfatorg.is frá og með 14. október.
Starfshlutfall er 100% og umsóknarfrestur rennur út 2. nóvember 2020.
Nánari upplýsingar: Páll Matthíasson, pallmatt@landspitali.is, 543 1000 og Anna Sigrún Baldursdóttir, annasb@landspitali.is, 543 1154.
FRAMKVÆMDASTJÓRI MANNAUÐSMÁLA
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R