Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 34
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is Landspítali auglýsir eftir framkvæmdastjóra mannauðsmála til að leiða öfluga uppbyggingu og sókn næstu ára, í samræmi við skipurit spítalans. Framkvæmdastjóri mannauðsmála stýrir skrifstofu mannauðsmála á Landspítala, sem skiptist í þrjár deildir með um 50 starfsmenn. Hann heyrir beint undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn spítalans, sem mótar stefnu og stýrir spítalanum. Leitað er að kraftmiklum og reyndum stjórnanda sem hefur brennandi áhuga á að vinna með forstjóra að því að byggja upp sterka liðsheild og að framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans. Hæfnikröfur • Brennandi áhugi á uppbyggingu Landspítala og innleiðingu stefnu spítalans • Mikil og farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla • Djúp fagleg þekking á mannauðsstjórnun • Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og afburða leiðtogahæfileikar • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og viðmót, jafnt gagnvart samstarfsfólki sem ytri aðilum • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun • Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og góða liðsheild • Mikil og farsæl reynsla af umbótastarfi, teymisvinnu og breytingastjórnun • Mikil hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku • Háskólapróf auk viðbótarmenntunar sem nýtist í starfi er skilyrði Helstu verkefni og ábyrgð • Stefnumörkun, markmiðasetning og áætlanagerð mannauðsmála • Yfirumsjón með kjaramálum, ráðningum, starfsþróun og fræðslustarfi • Yfirumsjón með heilsuvernd starfsmanna og starfsumhverfi • Umbótaverkefni tengd vinnustaðamenningu, starfsanda og innri samskiptum • Ráðgjöf til stjórnenda í mannauðstengdum málum • Samskipti við stéttarfélög og samstarfsnefndir • Samhæfing á starfsemi og þjónustu mannauðsmála við aðra starfsemi spítalans • Uppbygging mannauðs og liðsheildar á skrifstofu mannauðsmála • Ábyrgð á rekstri og fjármálum skrifstofu mannauðsmála Landspítali er fjölmennasti vinnustaður landsins með um 6.000 starfsmenn. Spítalinn hefur víðtæku hlutverki að gegna sem þjóðarsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús, og veitir bæði almenna og sérhæfða þjónustu, auk þess að vera miðstöð menntunar og rannsókna í heil brigðis­ vísindum. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, þjónusta, mannauður og stöðugar umbætur. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Gert er ráð fyrir að ráðning fram kvæmda stjóra taki gildi 1. desember 2020 og er hún ótímabundin í samræmi 41. gr. laga um opinbera starfsmenn (nr. 70/1996), að loknum reynslu tíma. Mat á umsóknum verður í höndum valnefndar þar sem forstjóri Landspítala tekur virkan þátt. Forstjóri tekur ákvörðun um ráðningu í störfin. Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi er innihaldi framtíðarsýn umsækjanda fyrir skrifstofu mannauðsmála og rökstuðning fyrir hæfni til að gegna stöðunni. Hægt verður að sækja um starfið á í gegnum heimasíðu Landspítala eða www.starfatorg.is frá og með 14. október. Starfshlutfall er 100% og umsóknarfrestur rennur út 2. nóvember 2020. Nánari upplýsingar: Páll Matthíasson, pallmatt@landspitali.is, 543 1000 og Anna Sigrún Baldursdóttir, annasb@landspitali.is, 543 1154. FRAMKVÆMDASTJÓRI MANNAUÐSMÁLA 6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.