Fréttablaðið - 10.10.2020, Síða 6
í vinnuna sem er í gangi með Vega-
gerðinni, ráðuneytinu og Faxaflóa-
höfnum.“
Helsta breytingin á þessu aðal-
skipulagi er að horft sé saman á
bæði húsnæðis- og samgöngu-
kostnað. Er þá stefnt að því að innan
við helmingur borgarbúa árið 2040
noti bíl. „Húsnæði og samgöngur
eru tvær hliðar á sama peningnum.
Þess vegna erum við að breyta
ferðavenjum. Við stefnum að því
að hlutfall einkabílsins fari undir 50
prósent og eru það metnaðarfyllstu
markmið um breyttar ferðavenjur
sem sett hafa verið. Það er bæði til
að minnka kolefnisfótsporið en
einnig til að bæta lífsgæðin. Færri
bílastæði, f leiri græn svæði.“
arib@frettabladid.is
Þessi breyting er
okkar stærsta
framlag til loftslagsmála og
bættra lífsgæða.
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir,
formaður skipu-
lags- og sam-
gönguráðs
Reykjavíkur
Miðað við áætlun verður
íbúafjöldi Reykjavíkur
kominn hátt í eða yfir 160
þúsund árið 2040.
REYKJAVÍK „Þetta er stór sýn sem er
teiknuð upp til 20 ára. Það er gríðar-
lega mikilvægt að við hugsum þetta
ekki í kjörtímabilum. Þessi breyting
er okkar stærsta framlag til lofts-
lagsmála og bættra lífsgæða. Við
erum að sjá mörg góð þéttingar-
verkefni í hinum sveitarfélögunum
á höfuðborgarsvæðinu og það er
samstaða um að nýta vel núverandi
innviði á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir,
formaður skipulags- og samgöngu-
ráðs Reykjavíkur.
Í vikunni voru lagðar fram breyt-
ingar á aðalskipulagi Reykjavíkur,
þar á meðal var viðauki um fram-
tíðarsýn til ársins 2040.
Miðað við áætlun verður íbúa-
fjöldi Reykjavíkur kominn hátt
í eða yfir 160 þúsund árið 2040.
„Við erum með þrjár sviðsmyndir,
miðjusviðsmyndin, sem við miðum
okkur helst við, gerir ráð fyrir að
þúsund íbúðir verði byggðar á ári,“
segir Sigurborg.
„Stærstu uppbyggingarsvæðin
næstu 20 árin verða Ártúnshöfði,
en það hverfi mun haldast í hendur
við Vogabyggðina. Síðan sjáum við
fram á mikla uppbyggingu með-
fram Borgarlínunni, mest með-
fram Suðurlandsbrautinni. Það eru
Skeifan, Orkuhússreiturinn og fleiri
svæði. Svo er það flugvallarsvæðið,“
segir Sigurborg.
Gert er ráð fyrir að 13.500 íbúar
bætist við í austurhluta borgar-
innar, á Ártúnshöfða, í Vogabyggð,
Úlfarsárdal og Keldum. Á þéttingar-
reitum miðsvæðis, við Kringluna og
Suðurlandsbraut, er gert ráð fyrir
sjö þúsund íbúum. Í miðborginni,
í Vatnsmýrinni, á háskólasvæðinu
og á f lugvallarsvæðinu er gert ráð
fyrir 16 þúsund íbúum. Sigurborg
útilokar ekki að þétta þurfi meira
í miðborginni til að ná loftslags-
markmiðum borgarinnar.
Hún segir að í þessu aðalskipu-
lagi sé ekki gert ráð fyrir að f lug-
völlurinn fari strax. „Við gefum
þessu rúman tíma í samræmi við
þá vinnu sem er í gangi núna með
ríkinu. Það mun taka einhvern tíma
að færa hann,“ segir Sigurborg. Er
gert ráð fyrir að flugvöllurinn verði
farinn árið 2032. „Við reiknum með
að sá tími fari í að finna honum
nýjan stað.“
Í dag eru tæplega 53.600 íbúðir
í Reykjavík. Miðað við hóf legan
vöxt þarf þeim að fjölga um 17.200
til ársins 2040, stefnan er tekin á
að reisa þúsund íbúðir á ári, eða 20
þúsund á tímabilinu. Stefnt verði að
Innan við helmingur borgarbúa keyri
Skipulags- og samgönguráð hefur afgreitt framtíðarsýn Reykjavíkurborgar til ársins 2040. Markmiðið er að reisa þúsund íbúðir á ári,
sextán þúsund manna byggð í Vatnsmýri og stórt íbúðahverfi á Ártúnshöfða. Þá verði innan við helmingur ferða farinn á einkabílum.
Telur markmiðin óraunhæf
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins, segir að uppbygging-
in verði of hæg til að mæta skorti
og markmiðin séu óraunhæf.
„Miðað við nýjustu upplýsingar
Samtaka iðnaðarins þá fer upp-
safnaður íbúðaskortur vaxandi.
Til að mæta því þarf að tryggja
framboð af nýju hagstæðu bygg-
ingarlandi, ekki einungis að þétta
byggð,“ segir Eyþór.
Hann segir borgina vera að
missa af kjörnu tækifæri til að
skipuleggja Keldnaland fyrir
stofnanir og íbúðabyggð. „Skipu-
lagið er að minnsta kosti fimm
árum of seint í tíma. Það er mjög
dýrt að þétta byggð og það
kemur á óvart að félagshyggju-
flokkarnir leggi einungis áherslu á
að byggja dýrar íbúðir.“
Þá telur hann óraunhæft að
gera ráð fyrir að flugvöllurinn víki
á næstu árum. Þar geri borgin ráð
fyrir 4.000 íbúðum á næstu tíu
árum sem hann telur óraunhæft
að treysta á. „Fyrst þyrftum við
að vinna okkur upp úr efnahags-
þrengingunum, síðan að finna
nýtt flugvallarstæði, ná sátt
meðal þjóðarinnar til að fjár-
magna slíka uppbyggingu og loks
klára að byggja nýjan flugvöll. Þó
þetta gengi allt eftir þá mundi
það taka mörg mörg ár. Þessi
vinnubrögð munu auka áfram á
íbúðaskortinn í borginni.“
Skilar miklum ábata
Fyrsta lota Borgarlínu skilar 25,6
millj arða sam fé lags legum ábata
á næstu 30 árum samkvæmt út-
reikningum dönsku verk fræði-
stof unnar COWI og Mannvits
sem birtir voru í gær. Gert er
ráð fyrir að framkvæmdirnar
kosti 38 milljarða króna með
óvissuálagi.
Ábatinn skýrist mikið til
af tímasparnaði þeirra sem
munu nota Borgarlínu. „Tíðni
og forgangur vagna er mikil-
vægast, því þá styttist ferða-
tíminn,“ segir Lilja G. Karlsdóttir,
samgönguverkfræðingur hjá
Verkefnastofu Borgarlínunnar.
„Þetta er aðferðafræði sem hin
Norðurlöndin nota til að bera
saman framkvæmdir, þá er strax
kominn samanburðargrund-
völlur, í mínum draumaheimi
yrði þetta gert fyrir allar stórar
innviðaframkvæmdir hins opin-
bera.“
✿ Mikil uppbygging fram undan meðfram Borgarlínu
því að fjórðungur nýrra íbúða verði
á vegum húsnæðisfélaga sem ekki
eru rekin í ágóðaskyni.
Sigurborg segir það gríðarlega
stórt hagsmunamál fyrir borgina
að f lugvöllurinn víki, rauði þráð-
urinn í allri skipulagsvinnunni sé
að minnka kolefnisfótspor. „Að
byggja þarna gefur okkur minnsta
kolefnissporið. Við styttum vega-
lengdir þeirra sem munu búa þarna
í framtíðinni alveg gríðarlega. Það
er ekki róttækni að ætla að standast
markmið Parísarsamkomulagsins.
Heldur er það sjálfsagður hlutur og
því eðlilegt að við gerum það sem
þarf.“
Sundabraut er óbreytt á aðal-
skipulaginu. „Við breytum því ekki
þar sem ekki er komin niðurstaða
Það er mjög dýrt
að þétta byggð og
það kemur á óvart að
félagshyggjuflokkarnir
leggi einungis áherslu á að
byggja dýrar
íbúðir.
Eyþór Arnalds,
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð