Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 20

Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 20
Flestir ættu að kannast við samkvæmisleikinn Blikkmorðingja, hvort sem viðkomandi hefur spilað hann í grunn-skóla, matarboðum eða á öldurhúsum. Í leiknum er einn morðingi valinn af handahófi sem „drepur“ aðra leikmenn með því að blikka þá þegar enginn sér til. Verði annar leikmaður vís að „morðinu“ er blikkmorðinginn úr leik. Blikk- morðingi á rætur sínar að rekja til samkvæma efri stéttarinnar á Vikt- oríutímabilinu og er gott dæmi um svokallaðan blekkingaleik, þar sem athygli og blekking skipta sköpum. Skrök einskorðast ekki við hefð- bundna selskapsleiki en í dag má einnig ljúga á sig gat, rafrænt. Þrátt fyrir einfalt og krúttlegt útlit þá er Among Us, eða Á meðal vor, eins og hann útleggst á ylhýrri íslenskunni, einn vinsælasti tölvuleikurinn á markaðnum í dag. Þar bregða leikmenn sér í hlutverk áhafnar á geimskipi sem þarf að takast á við hin ýmsu verkefni, allt frá hrein- gerningum til rafvirkjunar. Til að f lækja málin leynast hins vegar einn eða f leiri svikarar á meðal áhafnarinnar. Þeir reyna að tefja verkefnin og koma öðrum skip- verjum fyrir kattarnef. Áhöfnin verður því að komast að því hverjir svikararnir eru áður en það verður um seinan. Í hverjum leik fara fram nokkrar atkvæðagreiðslur, þar sem kosið er um hvaða skipverja verði skotið út í geim í von um að viðkomandi sé svikari. Áður en kosið er færa áhafnarmeðlimir og svikarar rök fyrir sínu máli. Hverjum leik lýkur þegar öllum svikurum hefur verið útrýmt, eða þegar fjöldi svikara er jafn fjölda áhafnarinnar. Þótt Among Us sé ansi einfaldur á yfirborðinu er kjötið á beinum leiksins í félagslega þættinum. Leik- menn þurfa að beita rökhugsun, athygli og sannfærandi lygum ef þeir vilja standa uppi sem sigur- vegarar. En hvað er svona heillandi við svik og pretti? Mafíósar og varúlfar Spil og leikir sem tengjast morðum hafa lengi verið vinsæl upplyfting og er borðspilið Cluedo líklega hvað þekktast þeirra. Félagslegi þátturinn var þó aldrei í forgrunni fyrr en árið 1987, þegar Rússinn Dimitry Davidoff fann upp á leikn- um Mafía. Hugmyndina að Maf íu fékk Davidoff við sálfræðirannsóknir við Ríkisháskólann í Moskvu. Í leiknum er leikmönnum skipt í lið mafíósa og óbreyttra borgara. Maf- íósarnir eru færri, en vita hverjir liðsfélagar þeirra eru, á meðan óbreyttu borgararnir eru f leiri en vita ekki hverjir tilheyra hvaða liði. Rétt eins og í Among Us reynir fámennara liðið að útrýma fjöl- mennara liðinu, en á milli morða fer fram atkvæðagreiðsla þar sem leikmenn fá að tjá sig um hverja þeir telja grunsamlegasta. Þrátt fyrir að vera ekki opin- berlega gefinn út í upphafi, varð Mafía gríðarlega vinsæll leikur og dreifðist f ljótt um Sovíetríkin og síðar til vesturlanda. Árið 1997 tók Bandaríkjamaðurinn Andrew Plotkin leikinn í gegn og breytti mafíósunum í varúlfa sem hann taldi rótgróna í menningunni sem óvini sem líta venjulega út að degi til. Af Mafíu og Varúlfi hafa síðan verið spunnin ótal afsprengi blekk- ingaleikja. Grunsamlegt klór „Það er spennandi að ljúga,“ segir Sigursteinn J. Gunnarsson, tölvu- leikja- og borðspilahönnuður, um hvað geri blekkingaleiki svona skemmtilega. „Fólk fær ekki tæk- færi til þess án af leiðinga í raun- veruleikanum, en hér fær það fullt umboð til þess.“ Sigursteinn er ansi kunnugur blekkingaleikjum en þeir Torfi Ásgeirsson hönnuðu og gáfu út leikina Triple Agent og Úti á túni fyrir snjallsíma, sem eru báðir á svipuðum nótum. Hann segir að ólíkir þættir leikjanna geti heillað fólk. „Það er gaman að setja saman þetta púsl um hver sé að segja eitt- hvað sem passar ekki við vísbend- ingarnar. Það er líka mikil kúnst að geta komið auga á hvað fólk gerir ósjálfrátt þegar það lýgur – hvort viðkomandi tali öðruvísi, eða klóri sér í nefinu.“ En það er ekki nauðsynlegt að vera bestur til að hægt sé að skemmta sér yfir þessum leikjum. „Það getur líka verið gaman að heyra rifrildin, og það koma upp svo mörg eftirminnileg atvik þar sem einhver kemur þér á óvart,“ segir Sigursteinn. „Það eru líka sumir sem geta bara ekki svona leiki, sem er líka skiljanlegt. Það eru ekki allir fyrir það að ljúga.“ Sigursteinn segist hafa lært mikið um blekkingaleiki þegar þeir Torfi þróuðu sína eigin leiki. „Þetta snýst allt um að gefa leikmönnum rétt magn af upplýsingum. Svona leikur virkar eiginlega bara fyrir fimm til tíu leikmenn, og maður verður að gefa nógu mikið af upplýsingum en ekki of mikið,“ segir hann og bendir á að Among Us hafi þar góða sérstöðu. „Leikurinn spilar skemmtilega með upplýsingar um rými. Ekki bara að einhver segist hafa gert eða séð eitthvað, heldur líka hvar.“ Fjör í faraldrinum Þegar Among Us kom fyrst út fyrir um tveimur árum var hann ekki mikið spilaður. Leikurinn hefur sótt gríðarlega í sig veðrið á undan- förnum mánuðum og er núna einn vinsælasti leikurinn á tölvuleikja- veitunni Steam. „Þetta hefur klár- lega mikið að gera með faraldur- inn,“ segir Sigursteinn. „Þegar fólk þarf að sæta fjarlægðartakmörk- unum er mjög gott að geta fundið eitthvað svona félagslegt til að gera með vinum sínum. Among Us sem tölvuleikur upp á ýmislegt sem hefðbundin spil á borð við Varúlf gera ekki, bæði í spilun og hvernig hann getur tengt fólk. “ Among Us er fáanlegur á borð- tölvum og snjallsímum og hentar f lestum aldurshópum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur í það minnsta einn hérlendur hópur karlmanna á fertugsaldri lagt það í vana sinn að spila hann og æpa hver á annan fram eftir kvöldi. arnartomas@frettabladid.is Haugalygar í himingeimi Lygarar á landsvísu skemmta sér yfir tölvuleiknum Among Us, þar sem svik, prettir og önnur vélabrögð eru allsráðandi. En af hverju finnst fólki svona skemmtilegt að ljúga? Það mæðir margt á geim- förunum í Among Us sem glíma auk ræst- inga og tækni- vandamála við hnífsstungur í bakið. Sigursteinn segir fólk sækjast í afleiðingalausar lygar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Nokkrir góðir blekkingaleikir Ultimate Werewolf Spil Fjöldi: 5-68 leikmenn Spilatími: Breytilegur eftir fjölda Sígildur blekkingaleikur. Varúlfar dreifa sér smám saman í kringum sveitaþorp á 16. öld og skapa hættu fyrir þorps- búa. Þorpsbúar reyna að veiða varúlfa og koma þeim úr spilinu, á meðan varúlfar reyna að fara huldu höfði á milli þess sem þeir veiða þorpsbúana. Hentar fyrir risastóra hópa – fullkominn í stærstu veislurnar. Spyfall Borðspil Fjöldi: 3-8 leikmenn Spilatími: 15 mínútur Margverðlaunað partýspil. Einn leikmaður bregður sér í hlutverk njósnara sem reynir að villa sér heimildir á meðan aðrir leik- menn reyna að finna hann. Leik- menn skiptast á að spyrja hvern annan spurninga um ákveðinn stað, til að sjá hver er ekki með á nótunum. Stórskemmtilegur og aðgengilegur blekkingaleikur. Triple Agent Símaleikur Fjöldi: 5-9 leikmenn Spilatími: 10 mín. Annar með njósnaþema. Leik- menn skiptast í tvö lið og reyna að verða sér úti um upplýsingar áður en leik lýkur og einn leik- maður er tekinn af lífi. Lið þess sem er tekinn af lífi tapar, en til að flækja málin fær hver leik- maður einnig einstök verkefni í hendurnar sem geta snúið öllu á hvolf. Ókeypis útgáfa fáanleg. Secret Hitler Borðspil Fjöldi: 5-10 leikmenn Spilatími: 45 mín. Hitler leynist á meðal vor! Leik- menn skiptast í hópa fasista og frjálslyndra, og einn leik- maðurinn bregður sér í hlutverk Hitlers. Fasistarnir sá vantrausti og reyna að koma Hitler á valda- stólinn á meðan þeir frjálslyndu reyna að finna og stöðva Hitler. 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.