Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 26
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Hlín Ósk hefur rekið lítið skartgripafyrirtæki Óska-bönd-ÓSK í 10 ár ásamt
fjölskyldu sinni. Á þessum árum
hefur vörulínan stækkað mikið og
margar konur þekkja orðið vöru-
merkið og eiga sitt óskaband. Hlín
Ósk opnaði vefverslun fyrir fjórum
árum og hefur hún sömuleiðis
vaxið og dafnað vel, enda hefur
vöruúrvalið aukist mjög mikið.
Féll fyrir orkusteinum
Hlín Ósk segist hafa verið um tví-
tugt þegar hún fór að búa til eyrna-
lokka en þá voru stórir lokkar
mikið í tísku og eftirspurn eftir
þeim. „Ég fann fyrir eftirspurninni
og fór að selja lokkana,“ segir hún.
„Ég hef alla tíð haft mikla þörf fyrir
að skapa eitthvað með höndunum.
Sömuleiðis hef ég unnið töluvert
úr keramik og gleri, allt frá skarti
upp í matarstell. Eftir að ég kynnt-
ist orkusteinunum hefur það hrá-
efni átt hug minn allan og því verið
uppistaðan í Óskaböndunum.
Mér finnst orkusteinar bæði alveg
of boðslega fallegir og fjölbreyttir
og svo trúi ég að þeir hafi jákvæð
áhrif á okkur mannfólkið,“ segir
Hlín Ósk, en skartgripir hennar
eru gerðir úr eðalorkusteinum,
Swarovsky-kristöllum, sterling,
silfri, eðalmálmum, hrauni og
stáli. „Þetta eru tímalausar ger-
semar sem gefa orku og fegurð,“
útskýrir hún.
Fjölskyldan hjálpast að
Óskabönd er lítið fjölskyldufyrir-
tæki og Hlín Ósk segir að flestir
fjölskyldumeðlimir séu virkjaðir
á einhvern hátt. „Ég á mörg börn
og hafa þau flest hjálpað mér á ein-
hvern hátt í starfseminni. Stelp-
urnar mínar hafa verið fyrirsætur
og aðstoðað við framleiðsluna,
tengdadóttir mín hefur líka verið
í fyrirsætustörfum hjá mér, en
ég legg alltaf mikið upp úr því að
hafa fallegar myndir. Ég lét útbúa
glæsilegan bækling sem fylgir með
öllum gersemunum. Sonur minn
hefur einmitt hjálpað með tækni-
málin og heimasíðuna. Mér finnst
mikilvægt að halda úti góðri vef-
verslun en það er heilmikil vinna á
bak við hana.“
Glæsilegar gjafir
Á heimasíðunni má skoða úrvalið
sem Hlín Ósk býður upp á, en
skartgripir hennar eru frábærir til
gjafa. Hún leggur líka mikið upp úr
því að hafa glæsilegar og vandaðar
gjafaumbúðir sem gleðja þann
sem fær gjöfina. „Það er svo mikið
upplifun að fá fallega gjöf og ekki
er minna ánægjulegt þegar hún
inniheldur gersemar,“ segir Hlín
Ósk og bætir við að vöruúrvalið
sé orðið mjög mikið og alltaf að
bætast eitthvað nýtt við. „Við erum
með margar týpur af armböndum,
hálsmenum, hringum og eyrna-
lokkum. Vinsælustu vörurnar eru
orkusteinaarmböndin og orku-
steinafestarnar, ásamt fíngerðum
keðjum í mörgum útfærslum bæði
stuttum og síðum. Ég er mjög
hrifin af skarti sem hægt er að nota
á mismunandi vegu, eins og til
dæmis stuttum festum sem einnig
er hægt að vefja tvisvar um úln-
liðinn og nota sem armband.“
Þegar Hlín Ósk er spurð hvaðan
hún fái innblástur fyrir sköpun
sína og handverk, svarar hún:
„Innblásturinn kemur aðallega frá
þessari þörf minni og áhuga á að
skapa og búa til með höndunum.
Sköpunargleðin og ánægjan sem
felst í því að sjá gersemarnar
fullskapaðar veitir mér mikinn
innblástur, einnig þykir mér alltaf
jafn vænt um þegar kúnni kemur
til mín og verslar aftur og aftur
og er ánægður með þjónustuna
og vöruna, það gefur mér mjög
mikið,“ segir hún.
Skartgripir breyta kjólnum
Hlín Ósk hefur alla tíð haft mikinn
áhuga á hönnun og fallegum
hlutum og finnst fylgihlutir og
skart geta breytt svo miklu. „Ætli
fallegt skart og skór séu ekki í
mestu uppáhaldi hjá mér. Kona
getur til dæmis breytt einföldum
svörtum kjól svo mikið bara með
því að bera við hann fallega háls-
festi. Hann verður sem nýr kjóll
með flottri hálsfesti, þess vegna
geta skartgripir hjálpað til að gera
fataskápinn miklu meira spenn-
andi og fjölbreyttari. Allar konur
elska að fá fallegan skartgrip að
gjöf og ekki er verra ef honum
fylgir orka,“ segir Hlín. „Það er líka
gaman að geta þess að Óskabönd
hafa frá upphafi lagt baráttunni
gegn brjóstakrabbameini lið með
því að styrkja Bleiku slaufuna.
Með hverju armbandi fer hluti til
Krabbameinsfélagsins í október og
mér þykir það alltaf svo ótrúlega
gleðilegt þegar ég get fært félaginu
afraksturinn sem hlýst af þessu
framtaki,“ segir Hlín Ósk.
Glæsilegar hálsfestar, hringir og armbönd.
Falleg armbönd með orkusteinum sem hafa verið mjög
eftirsótt, tilvalin í jólapakkann eða sem tækifærisgjöf.
Glæsileg gjöf sem er afhent í fallegum gjafaumbúðum.
Í tilefni 10 ára afmælis Óskabanda verða ýmis
afsláttartilboð í vefverslun á oskabond.is sem
gilda út október. Öllum kaupum yfir 10 þúsund
fylgir glaðningur í vefverslun.
Skartgripirnir
frá Óska-
böndum fást
í nokkrum
verslunum
og hafa verið
mjög vinsælir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Óskabönd
bjóða upp á
margvíslega
skartgripi,
armbönd,
hringi, háls-
festar og
eyrnalokka.
Óskabönd fást í nokkrum fal-
legum verslunum og auðvitað er
Óskabönd bæði á Facebook og
Instagram.
Sölustaðir
n Maí, Garðatorgi, Garðabæ.
n Kona, tískuverslun, 2. hæð, Firði
í Hafnarfirði.
n RYK, íslensk hönnun, Bæjarlind í
Kópavogi.
n Heimadecor, Vestmannaeyjum.
n Verslunin Kista, Hofi, Akureyri.
n Vinnustofa/verslun, Þrúðsalir 17
í Kópavogi.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R